Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Síða 30

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Síða 30
28 við það 21,84 hektarar. Í forsendum héraðsdóms kemur fram að af fyrirmælum vegalaga leiddi að ekki mætti staðsetja mannvirki eða grafa framræsluskurði nær veginum en 30 metra frá miðlínu hans. Hagnýting eignar sætti því takmörkum og væri eignarréttur þannig skertur. Hins vegar væri ekki um sviptingu eignarráða að ræða og gætu eignarnámsþolar nýtt landsvæðið að öðru leyti. Reyndi því á mörkin milli eignarnáms og almennra eignarskerðinga. Til þess yrði þá að líta að í vegalögum væri ekki mælt fyrir um neinar bætur fyrir þessar takmarkanir. Væri hér um að ræða almennar kvaðir sem hvíldu á öllum landeigendum. Enn fremur yrði að líta til þess að landsvæðið væri ekki líklegt byggingarland. Þá taldi héraðsdómur sjónarmið um jafnræði ekki hagga þessari niðurstöðu, en af hálfu eignarnámsþola var bent á að í öðrum og sambærilegum tilvikum hefði Vegagerðin greitt landeigendum fyrir 30 metra belti á hvora vegu. Niðurstaða Hæstaréttar varð á sömu lund með nokkuð öðrum rökstuðningi þó. Var kröfum eignarnámsþola því hafnað og eignarnámsákvörðunin stóð óhögguð. Loks er vert, í þessu samhengi, að nefna á nýjan leik til sögunnar dóm Hæstaréttar frá 26. mars 2015 í máli nr. 583/2014 (Hjarðarhagi). Þar reyndi á túlkun 37. gr. vegalaga þar sem að Vegagerðinni er veitt heimild til eignarnáms og annars konar skerðingar á eignarrétti til þjóðvegagerðar og hvers kyns veghalds, svo sem breytinga, breikkunar eða viðhalds. Ágreiningur málsaðila fólst í því að Vegagerðin gerði skilyrðislausa kröfu um að öðlast beinan eignarrétt að því landi sem þörf var á vegna vegagerðarinnar, en eignarnámsþoli bauð ótímabundinn afnotarétt og taldi Vegagerðina eins vel setta á grundvelli þess viðurhlutaminna inngrips. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að tilvitnuð heimild vegalaga fullnægði þeim skilyrðum sem sett eru í 2. og 3. málslið 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar. Síðan segir svo í forsendum réttarins: „Þó verða þau ekki skýrð á þann hátt að þau feli í sér fortakslausan rétt og jafnframt skyldu stefnda til að öðlast beinan eignarrétt að landi til vegagerðar, sbr. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms, heldur verður í því efni að líta til sjónarmiða um meðalhóf.“ Niðurstaða Hæstaréttar varð síðan sú, af nánar tilgreindum atviks- bundnum ástæðum, að fallist var á að Vegagerðinni væri nauðsynlegt að öðlast beinan eignarrétt að landinu. Mat á lagaskilyrðum eignarnáms er eðli málsins samkvæmt ein- ungis einn þátturinn í aðdraganda lögmætrar eignarnámsákvörðunar. Ákvörðunin verður auk þess að uppfylla skilyrði formlegs eðlis og sæta ströngu og margþættu efnislegu mati, þar sem meðal annars
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.