Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 39

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 39
37 framkvæmdaleyfis“. Þá var ekki talið sýnt fram á að bráð hætta af yfirvofandi hlaupi hefði réttlætt skort á að ráðist væri í nægar undir- búningsrannsóknir. Vegna þessa ágalla og þar sem stjórnvöldin höfðu ekki sýnt fram á að breytt lega varnargarðsins hefði ekki valdið tjóni á landi landeigenda var fallist á kröfu um ógildingu leyfisins. Af dómaframkvæmd má ráða að brot á rannsóknarreglunni við töku íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana leiði til ógildingar, nema sýnt sé fram á að rannsókn hefði ekki getað haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins.67 Hvað varðar ákvörðun um eignarnám fær þetta stoð í dómum Hæstaréttar frá 12. maí 2016 í málum nr. 511/2015 o.fl. (Suðurnesjalína 2) þar sem broti á rannsóknarskyldu ráðherra var slegið föstu og tekið fram að ekki hefði verið „sýnt fram á að atvik [væru] með þeim hætti að líta beri fram hjá þessum galla á meðferð málsins“. Rétt er þó að leggja áherslu á að í þessum málum, sem og í dómi Hæstaréttar frá 18. maí 2006 í máli nr. 511/2005 (Gullver) og dómi frá 15. júní 2017 í máli nr. 193/2017 (Kröflulína 4 og 5), var krafa um ógildingu á grundvelli rannsóknarreglu jafnframt studd tilvísun til annarra reglna. Í þeim málum sem vörðuðu Suðurnesjalínu 2 og Kröflulínu 4 og 5 var rann- sóknarreglan túlkuð með hliðsjón af stjórnskipulegu meðalhófi, en í Gullversmálinu var rannsóknarreglan túlkuð með hliðsjón af þeirri kröfu sem gerð er til samningsumleitana eignarnema. Í dómi Hæstaréttar frá 11. febrúar 2016 í máli nr. 411/2015 (enduruppbygging flóðavarnargarðs við Þórólfsfell) sýnist rannsóknarreglan þó standa ein og óstudd til grundvallar niðurstöðu um ógildingu framkvæmdaleyfis. Jafnframt skal tekið fram að þær ályktanir verða alls ekki dregnar af fyrrnefndum dómum um eignarnámsákvarðanir að meira þurfi að koma til en brot á rannsóknarreglunni einni þannig að ákvörðun verði ógilt. ii) Andmælaréttur Við mat á efnislegu inntaki andmælaréttar eignarnámsþola verður eðli málsins samkvæmt horft til viðmiða 13. gr. stjórnsýslulaga þess efnis að hann eigi þess kost að tjá sig um efni málsins áður en ákvörðunin er tekin. Þess má geta að löngu fyrir gildistöku stjórnsýslulaga má sjá merki þess að óskráð regla um andmælarétt hafi gilt við töku ákvörðunar um eignarnám.68 67 Páll Hreinsson: Stjórnsýsluréttur – Málsmeðferð, bls. 532-539. Sjá jafnframt Arnar Þór Stefánsson: „Um ógildingu stjórnvaldsákvarðana“. Úlfljótur 2005, bls. 277-289. 68 Gaukur Jörundsson: „Um framkvæmd eignarnáms“, bls. 123-153. Sjá m.a. Hrd. 1948, bls. 434 (Leigunám húsaleigunefndar Reykjavíkur).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.