Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 55
53 Í áðurnefndum úrskurðum Skipulagsstofnunar og umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum af Norðausturvegi voru kostir og gallar hverrar veglínu ítarlega kannaðir og metnir. Niðurstöður þessara stjórnvalda voru ótvírætt á þann veg að allar leiðirnar þrjár væru ásættanlegar og að umhverfisáhrif yrðu í engu tilviki talin umtalsverð. Hlutverk þessara stjórnvalda var ekki að velja á milli leiða og það gerðu þau heldur ekki. Um tiltekin atriði voru ókostir við leið 150 [um land í eigu ríkisins] taldir ívið meiri en af hinum leiðunum tveimur, en sá munur er óverulegur þegar borin er saman í heild sinni umsögn um leiðirnar þrjár, sem komu til álita. Umhverfisáhrif gátu því ekki réttlætt ákvörðun stefnda Vegagerðarinnar um að leita eignarnáms til að svipta áfrýjendur eign sinni í stað þess að leggja veginn eftir leið 150 yfir land ríkisins. Að öðru leyti hefur Vegagerðin borið fyrir sig að af vegtæknilegum ástæðum, sem svo eru nefndar, hafi veglínur 140 og 141 kosti umfram leið 150 og að kostnaður af þeim fyrrnefndu sé minni. Þessar staðhæfingar eru engum gögnum studdar og hafa ekki verið skýrðar frekar. Þá hefur Vegagerðin einnig hreyft því að vegalengdir milli þéttbýliskjarna verði styttri með því að velja fyrrnefndu leiðirnar. Af áðurnefndum úrskurði Skipulagsstofnunar verður þvert á móti ráðið að leið 150 sé rúmlega einum kílómetra styttri en hinar leiðirnar tvær. Sé litið til vegalengdar milli Kópaskers og hinna þéttbýlisstaðanna tveggja jafnast sá munur þó út þegar virt er að tenging Norðausturvegar kemur inn á þjóðveg nr. 85 heldur sunnar frá Kópaskeri með leið 150 en með annarri hvorri hinna leiðanna. Þessar ástæður stefnda Vegagerðarinnar fyrir að fara yfir land áfrýjenda eru því haldlausar.“ [áherslubr. höfunda] Samkvæmt öllu framanröktu var skilyrði 2. málsliðar 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar um almenningsþörf ekki talið uppfyllt til þess að Vegagerðin gæti beitt eignarnámi í umrætt sinn. Krafa eignarnámsþola um ógildingu eignarnámsins var því tekin til greina. Eins og framan- greind reifun leiðir í ljós þá er dómurinn skýrt dæmi um þýðingu meðalhófs við mat á því hvaða leið skuli valin vegna framkvæmdar sem er í almannaþágu. Um leið má sjá hversu langt dómstólar telja sér fært að ganga í endurskoðun mats stjórnvalds, sem ætla mætti að væri fyrst og fremst sérfræðilegt, en í dóminum eru borin saman atriði á borð við kostnað, umferðaröryggi, umhverfisáhrif og vegalengdir. Annar dómur Hæstaréttar, þar sem meðalhóf við beitingu eignar- námsheimildar er í forgrunni, er fyrrnefndur dómur frá 5. nóvember 2015 í máli nr. 173/2015 (Hestamannafélagið Funi). Í málinu krafðist jarðeigandi í Eyjafirði ógildingar á ákvörðun ráðherra frá árinu 2010 þar sem Eyjafjarðarsveit var veitt heimild til eignarnáms á landi úr jörðinni undir reiðstíg á austurbakka Eyjafjarðarár. Talið var leiða af 1. mgr. 10. gr., sbr. 6. gr. vegalaga, að reiðstígar teldust til vegakerfis landsins. Bæði hefðu Eyjafjarðarsveit með nánar tilgreindu aðalskipulagi og vegamálastjóri í tillögu til ráðherra byggt á því að nauðsynlegt væri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.