Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 58

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 58
56 slíks er að fullnægjandi rannsókn á mögulegum kostum hafi áður farið fram. Í fyrrgreindum dómum Hæstaréttar í fjórum samkynja málum sem vörðuðu lögmæti eignarnáms vegna styrkingar raforkuflutnings- kerfis á Reykjanesi með svokallaðri Suðurnesjalínu 2 reyndi á þýðingu rannsóknarreglunnar, sbr. dóma Hæstaréttar frá 12. maí 2016 í málum nr. 511, 512, 513 og 541/2015 (Suðurnesjalína 2). Af hálfu eignarnámsþola höfðu ítrekað verið gerðar athugasemdir við ráðagerðir um að leggja loftlínu og því lýst að jarðstrengur væri minna íþyngjandi framkvæmdarkostur. Höfðu eignarnámsþolar andmælt gögnum sem Landsnet hafði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti, lagt fram gögn til að sýna fram á að jarðstrengur væri raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna kostinn til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Byggt var á því að eignarneminn, Landsnet, hefði ekki uppfyllt skyldu sína til rannsóknar á mismunandi fram- kvæmdarkostum og að ráðuneytið hefði við töku ákvörðunar um eignarnám ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni, sbr. meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar og 10. gr. stjórnsýslulaga. Um þetta sagði í dómi meirihluta Hæstaréttar: „Þrátt fyrir þetta verður ekki séð af gögnum málsins að stefndi Landsnet hf. hafi við undirbúning framkvæmdanna látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng vegna þeirrar línu sem hér um ræðir, heldur hefur hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Fékk ráðherra málefnið til sín í þessum búningi en lét eigi að síður hjá líða að hafa forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Verður til að mynda ekki með viðhlítandi hætti ráðið af gögnum eða flutningi málsins hvar slíkur strengur gæti legið eða hver yrðu umhverfisáhrif hans og kostnaður af lagningu hans eftir atvikum með tilliti til þjóðhagslegrar hagkvæmni, sbr. 1. gr. raforkulaga. Við meðferð málsins fyrir dómi hafa stefndu heldur ekki sýnt fram á að atvik séu með þeim hætti að líta beri fram hjá þessum galla á meðferð málsins.“82 Af þessu verður ráðið að ábendingar og athugasemdir eiganda þess lands, sem eignarnám beinist að, geta kallað á sérstaka rannsókn af 82 Í sératkvæði tveggja dómara var komist að þeirri niðurstöðu að eignarnámsákvörðun væri lögmæt. Þar var vísað til þess að gerður hefði verið samanburður á lagningu loftlína og jarðstrengja vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar, meðal annars í matsskýrslu eignarnemans Landsnets samkvæmt lögum nr. 106/2000. Þá hefðu eignarnámsþolar ítrekað fengið að koma athugasemdum á framfæri og yrði ekki annað ráðið af gögnum málsins en að ráðherra hafi fullnægt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga áður en tekin var ákvörðun um að veita Landsneti heimild til eignarnáms.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.