Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 81
79
Nefndin skilaði áliti í ágúst 2005. Þar kom fram að hún teldi ekki
viðhlítandi lagaleg eða refsipólitísk rök standa til þess að lögfesta
slíkt sérrefsiákvæði. Aftur á móti var lagt til að náin tengsl geranda
og þolanda yrðu að sérstakri refsiþyngingarástæðu, með þeim rökum
að þau þættu auka á grófleika verknaðar. Þannig yrði dómendum gert
að líta til aðstæðna af þessu tagi við ákvörðun refsingar í stað þess að
lögfesta sérstakt refsiákvæði um heimilisofbeldi.24
Í framhaldi af áliti refsiréttarnefndar var henni falið að vinna
lagafrumvarp í samræmi við tillögur sínar. Frumvarpið var lagt fram
á Alþingi í nóvember 2005.25 Í greinargerð kemur fram að í ljósi þeirra
viðhorfa, sem fram hafi komið hér á landi og erlendis um málefni
fjölskyldunnar og þjóðréttarlegra skuldbindinga Íslands á því sviði,
verði að telja að rökrétt sé og nauðsynlegt að íslensk refsilöggjöf
endurspegli með skýrari hætti það mat löggjafans að brot, sem framin
eru í samskiptum nákominna, hafi sérstöðu. Sé þá bæði horft til
refsiréttarlegra og afbrotafræðilegra raka er tengjast varnaðaráhrifum
og samkvæmni í löggjöfinni og hins vegar mikilvægra sjónarmiða um
táknræn eða réttarpólitísk áhrif slíkra lagareglna á félagslegt samneyti
þeirra sem tengjast eða hafa tengst nánum fjölskylduböndum í rúmri
merkingu.26 Þá segir orðrétt:
Í ljósi ofangreindra sjónarmiða og raka verður hins vegar ekki talið rétt eða
nauðsynlegt að fara þá leið að lögfesta sérstakt refsiákvæði um heimilisofbeldi
heldur að brugðist verði við með því að gera dómendum að líta til atvika
af þessu tagi við ákvörðun refsingar. Með því móti verði það lagt í hendur
dómarans á refsiákvörðunarstigi að meta hvort náin tengsl geranda og
brotaþola séu þess eðlis að slík atvik verða talin auka á grófleika þeirra brota
sem sannað er að viðkomandi hafi framið.
Í samræmi við framangreind sjónarmið var sett nýtt ákvæði í 70. gr.
hgl. sem dregur fram sérstöðu brota sem framin eru í samskiptum
nákominna, sbr. lög nr. 27/2006 um breyting á almennum hegningar-
lögum nr. 19 12. febrúar 1940 (heimilisofbeldi). Ákvæðið, sem varð að
nýrri 3. mgr., hljóðar svo:
24 Upplýsingar um efni álitsgerðar refsiréttarnefndar, dags. 29. ágúst 2005, er að finna í
greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 27/2006, sbr. nánar inngangskafla og
IV. kafla (Er þörf á að lögfesta sérrefsiákvæði um heimilisofbeldi?). Þar er greint frá niðurstöðu
nefndarinnar og rakin þau lagalegu og refsipólitísku rök sem lágu henni til grundvallar,
sbr. þskj. 419, 365. mál, 132. löggjafarþing (2005–2006).
25 Þskj. 419, 365. mál, 132. löggjafarþing (2005–2006).
26 Sjá nánar V. kafla (Efni frumvarpsins).