Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Blaðsíða 83
81
5. STÓRFELLDAR ÆRUMEIÐINGAR Í NÁNUM SAMBÖNDUM
Með lögum nr. 27/2006 var 191. gr. hgl. felld brott.30 Ákvæðið var í XXI.
kafla laganna (Sifskaparbrot) og hafði að markmiði að vernda friðhelgi
og æru einstaklinga í samskiptum við aðra fjölskyldumeðlimi. Ákvæðið
hafði staðið efnislega óbreytt frá gildistöku hegningarlaganna og þótti
bæði úrelt og óskýrt. Lítið hafði reynt á það fyrir dómstólum. Þegar litið
var til réttarframkvæmdar í Noregi og Danmörku var sömu sögu að segja
um samsvarandi ákvæði í refsilöggjöf í þessum löndum.31 Í stað 191. gr.
var sett ákvæði um stórfelldar ærumeiðingar í nánum samböndum í 233.
gr. b í XXV. kafla hegningarlaganna meðal ákvæða um ærumeiðingar
og brota gegn friðhelgi einkalífs. Ákvæðið hljóðar svo:
233. gr. b
Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða
annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í
sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum.
Í greinargerð er sérstök áhersla lögð á að 233. gr. b geymi ekki
ný mæli, heldur sé verið að útfæra með skýrari hætti og nútímalegra
orðalagi þann efnis þátt 1. mgr. 191. gr., sem varði stórfelldar æru-
meiðingar í sam skiptum við aðra fjölskyldumeðlimi. Forsendur
ákvæðisins séu áfram vernd friðhelgi og æru einstaklinga í sam-
skiptum við nána vanda menn, en til viðbótar sú löggjafarþróun sem
hafi átt sér stað á síðari tímum um þörfina á að vernda einstaklinga
betur en áður gegn afbrotum nákominna, í skjóli hjónabands og
fjölskyldu, í rúmri merkingu þess orðs. Raunhæfara sé að ná fram þeim
refsiréttarlegu og réttar pólitísku markmiðum, sem eðlilegt þyki að
leggja til grundvallar í þessu sambandi, með nýju ákvæði sem hafi það
að markmiði að virkja þá refsivernd gegn stórfelldum ærumeiðingum
sem mælt var fyrir um í 1. mgr. 191. gr. hgl.32
30 191. gr. hljóðaði svo: 1. mgr.: Ef nokkur misbýður með stórfelldri vanrækslu eða móðgunum
eiginkonu sinni eða eiginmanni, barni sínu eða öðru barni eða ungling undir 18 ára aldri, sem
hann hefur til umsjónar eða fósturs, eða manni, sem er skyldur honum eða tengdur í beinan
legg upp á við, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum. 2. mgr.: Fangelsi allt að 1 ári eða sektum
skal sá sæta, sem af þverúð vanrækir framfærsluskyldu sína eða skyldu til meðlagsgreiðslu
gagnvart nokkrum framangreindra aðilja, sem af því geta orðið bjargþrota. 3. mgr.: Ákveða
má, að sök samkvæmt grein þessari skuli niður falla, ef sá æskir þess, sem misgert var við.
31 Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 27/2006, sbr.
þskj. 419, 365. mál, 132. löggjafarþing (2005–2006). Norðmenn gjörbreyttu inntaki 219.
gr. norsku hegningarlaganna nr. 10/1902, sem svaraði til 191. gr. alm. hgl., með lögum
nr. 131/2005 og lögfestu nýtt ákvæði um ofbeldi í nánum samböndum. Danir hafa enn
ákvæði er svarar til 191. gr. alm. hgl. í sinni löggjöf, sbr. 213. gr. dönsku hegningarlaganna
(Borgerlige straffelov nr. 126 fra 15. april 1930).
32 Sjá nánar V. kafla (Efni frumvarpsins) og skýringar við 3. gr.