Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 97

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 97
95 umfangi og tíðni heimilisofbeldis á Íslandi, sem gerir yfirvöldum og rannsakendum kleift að fá betri yfirsýn yfir vandann, í þeim tilgangi m.a. að vinna að forvörnum og hjálparúrræðum.63 9. ÁKVÖRÐUN REFSINGAR FYRIR OFBELDI Í NÁNU SAMBANDI 9.1 Viðurlög fyrir brot gegn 218. gr. b Náin sambönd ættu við eðlilegar aðstæður að fela í sér kærleika, velvilja og traust. Hugsunin að baki 218. gr. b er að brot á trúnaði og trausti auki á grófleika ofbeldisins. Lágmarksrefsing er 30 daga fangelsi, sbr. 1. mgr. 34. gr. hgl., en hámarksrefsing 6 ára fangelsi. Stórfellt brot getur þó varðað fangelsi allt að 16 árum. Við mat á því hvort grófleiki verknaðar sé slíkur að telja megi brot stórfellt ber að líta til þess hvort þolandi hafi beðið stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlotist af. Ennfremur hvort brot hafi verið framið á sérstaklega sársaukafullan eða meiðandi hátt, staðið yfir í langan tíma eða hvort gerandi hafi misnotað freklega yfirburðastöðu sína gagnvart þolanda. 9.2 Hæfileg refsing Við ákvörðun refsingar er dómari annars vegar bundinn af refsiramma lagaákvæðis og hins vegar eldri dómum í sambærilegum málum, til að tryggja jafnræði sakborninga og samræmi í réttarframkvæmd. Í almenna hluta hegningarlaganna eru talin upp atriði, sem eiga að hafa áhrif á refsihæðina og gilda um öll brot, sbr. VIII. kafla (Atriði, er áhrif hafa á refsihæðina). Reglur af sama meiði má jafnframt finna á stöku stað í sérstaka hluta laganna. Þær þjóna þeim tilgangi að draga fram atriði sem eiga að skipta máli við ákvörðun refsingar fyrir einstök brot, sbr. t.d. 195. gr.64 Ákvæði 218. gr. b tók gildi 5. apríl 2016. Ekki hafa enn þegar þetta er ritað verið kveðnir upp dómar í Hæstarétti þar sem sakfellt hefur verið fyrir brot gegn hinu nýja ákvæði og dómaframkvæmd þar af leiðandi ekki fyrir að fara. Á hinn bóginn hefur Hæstiréttur kveðið upp dóma um ofbeldi í nánum tengslum eftir gildistöku refsiþyngingarákvæðis 3. mgr. 70. gr. hgl., sem veita vísbendingar um þau sjónarmið sem líklegt er að komi til skoðunar við ákvörðun refsingar í málum af 63 Sjá nánar kafla 3.4 (Sérstakt ákvæði um ofbeldi í nánum samböndum) í greinargerð. 64 Í 195. gr. eru tiltekin atriði, sem skylt er að líta til og ætlað er að hafa áhrif til refsi- þyngingar fyrir nauðgun, sbr. 194. gr.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.