Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Page 97
95
umfangi og tíðni heimilisofbeldis á Íslandi, sem gerir yfirvöldum og
rannsakendum kleift að fá betri yfirsýn yfir vandann, í þeim tilgangi
m.a. að vinna að forvörnum og hjálparúrræðum.63
9. ÁKVÖRÐUN REFSINGAR FYRIR OFBELDI Í NÁNU
SAMBANDI
9.1 Viðurlög fyrir brot gegn 218. gr. b
Náin sambönd ættu við eðlilegar aðstæður að fela í sér kærleika, velvilja
og traust. Hugsunin að baki 218. gr. b er að brot á trúnaði og trausti
auki á grófleika ofbeldisins. Lágmarksrefsing er 30 daga fangelsi,
sbr. 1. mgr. 34. gr. hgl., en hámarksrefsing 6 ára fangelsi. Stórfellt brot
getur þó varðað fangelsi allt að 16 árum. Við mat á því hvort grófleiki
verknaðar sé slíkur að telja megi brot stórfellt ber að líta til þess hvort
þolandi hafi beðið stórfellt líkams- eða heilsutjón eða bani hlotist af.
Ennfremur hvort brot hafi verið framið á sérstaklega sársaukafullan
eða meiðandi hátt, staðið yfir í langan tíma eða hvort gerandi hafi
misnotað freklega yfirburðastöðu sína gagnvart þolanda.
9.2 Hæfileg refsing
Við ákvörðun refsingar er dómari annars vegar bundinn af refsiramma
lagaákvæðis og hins vegar eldri dómum í sambærilegum málum, til
að tryggja jafnræði sakborninga og samræmi í réttarframkvæmd. Í
almenna hluta hegningarlaganna eru talin upp atriði, sem eiga að hafa
áhrif á refsihæðina og gilda um öll brot, sbr. VIII. kafla (Atriði, er áhrif
hafa á refsihæðina). Reglur af sama meiði má jafnframt finna á stöku
stað í sérstaka hluta laganna. Þær þjóna þeim tilgangi að draga fram
atriði sem eiga að skipta máli við ákvörðun refsingar fyrir einstök
brot, sbr. t.d. 195. gr.64
Ákvæði 218. gr. b tók gildi 5. apríl 2016. Ekki hafa enn þegar þetta er
ritað verið kveðnir upp dómar í Hæstarétti þar sem sakfellt hefur verið
fyrir brot gegn hinu nýja ákvæði og dómaframkvæmd þar af leiðandi
ekki fyrir að fara. Á hinn bóginn hefur Hæstiréttur kveðið upp dóma
um ofbeldi í nánum tengslum eftir gildistöku refsiþyngingarákvæðis
3. mgr. 70. gr. hgl., sem veita vísbendingar um þau sjónarmið sem
líklegt er að komi til skoðunar við ákvörðun refsingar í málum af
63 Sjá nánar kafla 3.4 (Sérstakt ákvæði um ofbeldi í nánum samböndum) í greinargerð.
64 Í 195. gr. eru tiltekin atriði, sem skylt er að líta til og ætlað er að hafa áhrif til refsi-
þyngingar fyrir nauðgun, sbr. 194. gr.