Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 100

Tímarit lögfræðinga - 01.04.2017, Side 100
98 og annarra kynferðismaka eins og í ákæru greinir. Þá verður litið til þess að hann notaði hníf í atlögunni, svipti hana frelsi sínu og hótaði henni og barni þeirra. Brot ákærða fól í sér rof á heimilisfriði brotaþola með ofríki og má slá því föstu að framganga hans hafi valdið ótta og er þá sérstaklega haft í huga að brotið var til þess fallið að valda barninu vanlíðan um lengri tíma þar sem barn þeirra var vitni að hluta atburðanna.“ Ekki var vísað til 3. mgr. 70. gr. hgl. við ákvörðun refsingar. H 843/2014 Maður var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. og 2. mgr. 218. gr. hgl., með því að hafa ráðist á sambýliskonu sína í fjögur skipti og beitt hana líkamlegu ofbeldi, auk þess að móðga hana og smána. Var sú háttsemi hans metin sem stórfelldar ærumeiðingar í merkingu 233. gr. b. hgl. Til viðbótar var hann sakfelldur fyrir þjófnað, sbr. 244. gr. hgl., með því að hafa millifært fjármuni í gegnum heimabanka konunnar af bankareikningi hennar inn á eigin bankareikning í leyfisleysi. Maðurinn var dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af voru 12 mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár. Við ákvörðun refsingar var litið til 78. gr. hgl. vegna hluta brotanna en að öðru leyti til 77. gr. sömu laga, auk þess sem tillit var tekið til 3. mgr. 70. gr. laganna. H 125/2015 Maður var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. hgl. gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni og fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. gagnvart stjúpdóttur sinni. Hann braut sér leið inn á heimili konunnar, þar sem tvö börn þeirra voru fyrir, og réðst fyrst á hana og síðan á stjúpdóttur sína. Með broti sínu rauf hann skilorð eldri dóms. Í dóminum segir: „Brot ákærða eru alvarleg, en þau beinast að mikilsverðum hagsmunum. Eru brotaþolarnir tveir.“ Með hliðsjón af því, sbr. 3. mgr. 70. gr. hgl., sbr. og 1. og 3. tl. 1. mgr. 70. gr., var hann dæmdur í fangelsi í 18 mánuði. H 300/2015 Maður var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. hgl., með því að hafa ráðist á föður fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður. Hann var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Í dóminum segir: „Í máli þessu er ákærði sakfelldur fyrir að veitast með ofbeldi að brotaþola á heimili hans, í viðurvist fjölskyldu hans. Hafði ákærði áður hunsað ítrekuð tilmæli brotaþola um að hverfa á brott. Var atlaga hans að brotaþola tilefnislaus og harkaleg.“ Ekki var vísað til 3. mgr. 70. gr. hgl. við ákvörðun refsingar. 9.4 Til hvers líta dómstólar við ákvörðun refsingar? Dómarnir sem reifaðir eru að framan eiga það sammerkt að ofbeldis- maðurinn og þolandinn tengjast fjölskylduböndum. Þrátt fyrir hin nánu tengsl er það ekki sjálfgefið að ofbeldi falli undir ákvæði 218. gr. b. Fleiri skilyrði þurfa að vera til staðar. Krafa er gerð um endurtekið ofbeldi þó að sá möguleiki sé fyrir hendi að eitt tilvik geti verið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.