Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 11

Veiðimaðurinn - 01.12.1940, Side 11
Hrauntangar ganga út í vatnið ann- ars vegar, þar er aðdjúpt, fisköndin kafar þar rauðeygð og áhugasöm. Við ströndina, í gjótum og glufum, vex hvannstóð og burkni. Þú getur lagt frá þér stöngina og synt út í hólmann. Þar vex mjaðurt, blóðberg og blágresi, en öndin hefir verpt í gulvíðisrunna, 12 grænblá egg liggja í mjúkum dún- hring — láttu þau liggja kyrr, það er meira gaman að því, eftir nokkra daga, þá hættir öndin að hræðast þig, og bið- ur um vernd. Þú gleymir stund og stað, nótt og degi, mánuði og ári, ef til vill verður þú skyggnari og skilur vatnið, sérð að það hefir sína eiginleika og fegurð. Tvídægruvötn, Fiskivötn, Ánavötn, hversu ólík eruð þið. Veiðimaðurinn verður að hafa auga fyrir lögun og lit silungsins. Aurriði úr Fiskivötnum eystri, brúnn, bolstutt- ur með stórar rauðar doppur, er ólík- ur Þingvalla-aurriða, sem líkist mest sjóbirting. Bleikja úr Hvítárvatni er með stál- blátt bak og zinnoberrauðan kvið, hún er rennilegust allra bleikjutegunda í fjallavötnunum. 1 kvíslum Ullarvatna hefi ég veitt gulsvartan aurriða, — uggamikinn straumvatnafisk. Einnig við Hattavers- lindir. Eitt sinn lágu digrir aurriðar við Reykjarvatnsós og enn liggja þeir við Breiðavatnsstokk. Reynið gráar flugur að morgni, og dökkar, er fyrstu kvöldskuggarnir færast yfir dalinn; dökk bromborin- girni og léttar stengur. Stundum fer það svo, að margur urrið- inn er laginn við að „hrista úr sér“, og hent getur það mann, að hitta slíkan ærslabelg, að hann sprelli í loftinu á með.an hann getur. Morgunveiði — fjallvatna-nnið:. Ljúfustu endurminningarnar eru frá vötnunum bláu. — í tibrá molluheitra daga og sandbyljum rosalegra ofveðra, finnum við andstæðurnar sem veita líf- inu gildi. Margur veiðimaðurinn, sem þreyttur er á kapphlaupinu um stóru árnar — og öllu ónæðinu sem þeim fylgir, — leitar til fjallanna og finnur þar aftur hina sönnu veiðigleði. Tínið kalvið eða hafið meðferðis dá- lítið af viðarkolum og reynið að steikja silung við glæður. Þegar kvöldskuggarn- ir færast yfir, þá setjist þið umhverfis eldinn með silung á teini, er þið steikið varlega og berið feiti á roðið, er það fer að skorpna, neytið svo hvannarótar með. Kyrrlátt vatnið, bjarmi jökulrand- anna, dalalæðan á fitjunum og eld- bjarminn á andlitum félaganna vekja hjá þér kyrrláta hamingjudrauma. Við fiskivötn eystri — Skálavatn. 45

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.