Læknablaðið - 01.10.2022, Page 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 437
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Heilsuvera, website for
communications with
patients
Oddur Steinarsson
MD, GP, MBA and CEO
Kirkjusandur Primary Care
Center
Heilsuvera – aðgangur opinn
allan sólarhringinn!
Framþróun í tölvutækni hefur bæði sínar góðu og
slæmu hliðar. Heilsuveran er orðin stór hluti af dag-
legri vinnu okkar heimilislækna, en tekur núorðið
einnig yfir hluta einkalífs margra. Heilsuveran var
þróuð til að einfalda samskipti og bæta þjónustu.
Þar er nú meðal annars hægt að endurnýja lyfseðla,
bóka tíma og senda skilaboð. Endurnýjun lyfseðla
er fljótlegri og starfsmenn heilsugæslustöðva þurfa
ekki lengur að handfylla inn í seðla þegar skjól-
stæðingur hefur samband, heldur er sjálfvirknin
tekin yfir og síðasta greining tengd seðlinum. Þetta
einfaldar vissulega vinnuna, en fljótfærnisvillur
aukast. Færri eiga sífellt að gera meira og framleiðn-
in á að alltaf að aukast. Þegar sjálfvirknin sér um
málin getur sú verið raunin, en þegar okkur er ætlað
að svara erindunum beint, eykst vinnuálagið. Sum
okkar fá tugi skilaboða á dag ofan á fulla móttöku
og símatíma. Í stöðugri undirmönnun og aukinni
eftirspurn er vinnuálagið orðið slíkt að mörg okk-
ar hugsa reglulega um að hætta samkvæmt nýlegri
könnun Félags íslenskra heimilislækna. Ónefndur
aðili tengdur þróun Heilsuveru lét hafa það eftir
sér nýverið að kerfið væri algjör snilld, því læknar
hefðu svo mikla ábyrgðartilfinningu að þeir sætu
oft á kvöldin og um helgar að svara þessu. Skjól-
stæðingar geta sent skilaboð allan sólarhringinn,
alla daga ársins.
Dæmi um skilaboð geta verið: - ég vil fara í maga-
og ristilspeglun, - á ég að fá mér hund, - sæl vinan,
hvaða sjampói mælir þú með, - ég er svo þreyttur að
ég vil fara í blóðprufu fyrir öllu, - ég er með brjóst-
verk og finnst þungt að anda, - þú ert svo lélegur
að svara skilaboðum að ég ætla að finna mér annan
lækni, - getur þú komið mér í liðskipti til Svíþjóðar.
Fyrirspurnum um niðurstöður úr rannsóknum á
Landspítala rignir einnig yfir okkur og nýlegt dæmi
er um mál hjá Embætti landlæknis þar sem kvartað
var yfir heimilislækni fyrir að fylgja ekki eftir rann-
sóknum frá Landspítala. Það eina sem sá læknir gerði
var að svara í Heilsuveru hvað hefði komið út úr sýni
á spítalanum sem hann hélt að væri í farvegi. Ekki
hans sjúklingur, hafði ekki séð viðkomandi, ekki
pantað prufur og ekki fengið nein skilaboð um að
fylgja málinu eftir. Ekki stafur sendur á viðkomandi
heilsugæslu um eftirfylgd eða yfirhöfuð um málið.
Hvaða afleiðingar hefur óheft þróun þessa? Ég
svara stundum skilaboðum á kvöldin og um helg-
ar, meðal annars til þess að ég komist heim fyrir
kvöldmat daginn eftir. Sama á við um fjölmarga
kollega mína. Að auki fæ ég eina eða fleiri fyrir-
spurnir í hverri viku, í tölvupóstum, á messenger
og á förnum vegi, hvort ég geti orðið heimilislæknir
viðkomandi. Þetta hefur aukist mjög undanfarið, en
ég tel þetta ekki vott um eigið ágæti, heldur vaxandi
skort á heimilislæknum og aðgengi að heilbrigðis-
þjónustunni í heild sinni. Hugsunin um að hætta
þegar vinnan flæðir yfir eðlileg mörk leitar á lækna.
Margir velta fyrir sér að vera ekki í fastri vinnu
heldur vinna viku og viku á Hólmavík, Hornafirði, í
Noregi eða Svíþjóð. Flýja og vera frjáls vikurnar sem
við erum ekki í vinnunni, vera meira til
staðar fyrir okkar nánustu.
Stóra uppsögnin er alþjóðleg ógn við
stöðugleika á vinnumarkaði, þar sem
fleiri og fleiri kjósa frelsið sem því fylgir
að vera ekki í fastri vinnu. Sú ógn hefur
raungerst í heilsugæslunni á undanförn-
um árum þar sem stór hluti heilsugæslu
í landinu er ekki með fasta mönnun leng-
ur og víða þjónustuð af leigulæknum. Að
læknar flýi samlög sín í auknum mæli
mun raungerast ef álagið eykst áfram. Í dag erum
við með hlutfallslega lægstu mönnun heimilislækna
á Norðurlöndunum og sjáum ekki í land með bætta
mönnun á næstunni þar sem stór hópur fer á eftir-
laun á næstu 10 árum.
Heilsuveruna verður að endurskoða og afmarka.
Styðja þarf betur við þá lækna sem eru til staðar í
dag og spyrja hvort takmörkuðum tíma okkar sé vel
varið í þessi samskipti? Hvað með aldraða og aðra
sem geta ekki notfært sér tæknina? Sá hópur þarf
ekki síður á þjónustu okkar að halda að mínu mati.
Að skipuleggja þjónustuna betur hefur aldrei verið
meira aðkallandi og að þjónustan verði með það að
markmiði að nýtast þeim sem helst þurfa á henni að
halda.
doi 10.17992/lbl.2022.10.708
Heilsuveruna verður að endurskoða
og afmarka. Styðja þarf betur við
þá lækna sem eru til staðar í dag
og spyrja hvort takmörkuðum tíma
okkar sé vel varið í þessi samskipti?
Hvað með aldraða og aðra sem geta
ekki notfært sér tæknina?
Oddur Steinarsson
sérfræðingur í heimilis-
lækningum,
varaformaður LÍ og FÍH
Heilsugæslunni
Kirkjusandi,
Hallgerðargötu 13
105 Reykjavík
Oddur@hgkirkjusandi.is