Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 44
472 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 Áhrifaríkar kennsluaðferðir Jóns fóstra Andrés Magnússon fíknigeðlæknir magnusson.andres@yahoo.com Það voru forréttindi fyrir 6. árs lækna- nema að fá að nema verklega lyflækn- isfræði á Landspítala. Þar var okkur vel tekið og sérfræðingarnir tóku okkar fá- vísulegu spurningum af stakri þolinmæði og jafnaðargeði. Óvíða var betra að vera en á gigtardeildinni, 14G. Þar var okkur kennd liðskoðun, liðástungur, úrlestur liðskanna, sýndir alls kyns sjúkdómar og fleira. Allir gigtarlæknarnir voru fæddir kennarar en að öðrum ólöstuðum var Jón heitinn Þorsteinsson yfir- læknir deildarinnar (gjarnan nefndur Jón fóstri) fremstur meðal jafningja. Þegar hann talaði við sjúkling með scler- oderma eða annan fágætan sjúkdóm gætti hann þess ávallt að hafa stúdenta með. Hann hvatti okkur, hafði trú á okkur og lét okkur kenna 4. árs nemum. Ég var á þessum árum stjórnar- maður í heilsuvörubúðinni Kornmarkaðnum og kom með bók þaðan um hvernig lækna mætti alls kyns gigtarkvilla með mataræði. Jón settist niður með mér og útskýrði hvernig ekkert af fullyrðingunum í bókinni stæð- ist vísindalega skoðun. Ég fór til félaga minna með þennan nýfundna fróðleik og var umsvifalaust rekinn úr stjórninni. Já, þetta voru góðir tímar. Það var þó eitt sem skyggði á gleðina. Þannig var mál með vexti að við höfðum afnot af stúd- entaherbergi á 4. hæðinni. Jón átti það til, ansi oft reyndar, að gægjast inn í þetta herbergi á eftirmiðdögunum, um það leyti sem flestir voru farnir að tygja sig til heimferðar. Ef hann sá glitta í einn eða tvo samviskusama læknanema sem sátu þarna ennþá, hvarf hann á braut en kom aftur að vörmu spori með fjallháan hrauk af sjúkraskrám. Í eitt skiptið var þetta reyndar bara sjúkraskrá eins sjúklings en með óteljandi innlagnir á gigtardeildina. „Heyrðu Andrés minn; hún Guðfinna var að leggjast inn, sterarnir eru hættir að virka, mig langar að biðja þig að fara í gegnum sjúrnalinn hennar og athuga hvaða lyf hafa þegar verið reynd og hvern- ig þau virkuðu“. Jón gat komið hvaða eftirmiðdag sem var en föstudagseftir- miðdagar voru hans uppáhald. „Heyrðu elskan, ég hringi bara til þess að láta þig vita að ég verð að fresta bíóferðinni í kvöld.“ „Nei, nei, ekkert sérstakt, ég þarf bara að fara í gegn- um eina sjúkraskrá hérna á spítalanum.“ Þó manni væri hlýtt til Jóns, gat maður ekki varist þeirri hugsun hví í ósköpunum hann gæti ekki bara gert þetta sjálfur, eða sett aðstoðarlæknana sína í þetta? Næsta mánudagsmorgun: „Jæja, hvað segirðu þá Andrés minn, ertu orðinn einhverju nær?“ „Jú, ég sá að Guðfinna hafði fengið gullsprautur 1972 til ´74 en þær höfðu ekki haft mikil áhrif. Síðan hafði hún tekið plaquenil 200 mg frá 1974 til 1980 og...“ ….. „Já Andrés, bíddu við, segðu mér, var hætt 1980 vegna aukaverkana eða vegna lélegrar svörun- ar?“ „Tja, það var erfitt að finna svör við því í sjúkraskránni.“ „Já, hmm, en reyndar hafði hún líka reynt gullsprautur áður og þeim var haldið áfram til 1975 en ekki 1974, og plaquenil var líka reynt í 400 mg skömmtum.“ Hva! Jón virtist vera með þetta allt á hreinu sjálfur, til hvers í ósköp- unum var hann að láta okkur strita í gegn- um þessar hnausþykku sjúkraskrár? Það tók mig heila starfsævi að skilja að Jón var að kenna okkur alveg svakalega mikilvæga lexíu, eitt það mikilvægasta sem hægt er að kenna nokkrum lækni. Og með því að velja einmitt föstu- dagseftirmiðdagana og þykkustu sjúkra- skrárnar gætti hann þess að við myndum aldrei gleyma þessu. Um 99% af því sem stendur í sjúkra- skrám er hugsað fyrir næstu daga eða mánuði, hvernig hægðirnar voru í gær eða hvernig sjúklingurinn svaf um helgina. Iðulega er það sem mestu máli skiptir, og stundum það eina sem máli skiptir, hvaða íhlutanir hafa verið reyndar og hvernig þær reyndust. Mörg lyf verka á fleiri en einn sjúkdóm og greiningarskilmerki breytast oft með nýrri útgáfu af ICD og greiningar lækna eru oftast gerðar með fyrirvara. Það skiptir ekki öllu máli hvort sjúklingurinn greinist með kvíða eða þunglyndi, en hvernig hann svaraði SSRI- lyfinu skiptir öllu máli, sama gildir um gigtarsjúkdóma, háþrýsting og sennilega flesta langvinna sjúkdóma. En upplýs- ingarnar um svörunina við íhlutuninni, til dæmis lyfjagjöfinni, er týnd inni í mörg hundruð blaðsíðna sjúkraskrá og lækn- inum hrýs hugur við að reyna að finna í þessum bunka hvort líðan sjúklinga hafi verið vel lýst fyrir og eftir lyfjagjöf. Margir sjúklingar með óljósar greiningar hafa tekið alls kyns lyf áratugum saman, jafnvel þvingað, án þess að það hafi verið farið rækilega í saumana á því hvernig lyfin hafi virkað. Nú sting ég upp á því að í Sögunni (eða Heilsugátt), í minningu Jóns fóstra, komi nýr dálkur sem heiti „Íhlutun“ þar sem örstutt er lýst hvaða íhlutun eða lyf voru reynd, í hvaða skömmtum og hver útkoman var, ásamt aukaverkunum. Þannig er passað upp á þá hluti sem þurfa á augabragði að vera aðgengilegir árum og jafnvel áratugum seinna. Jón Þorsteinssson, gigtarlæknir Ö L D U N G A D E I L D I N

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.