Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 38
466 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 „Allir sem stýra heilbrigðiskerfinu verða að átta sig á að læknar og aðrar heilbrigð- isstéttir eru mjög hreyfanlegur starfskraft- ur, fólk getur farið í önnur störf. Auðvitað er ákveðin hætta á því að ef álagið verður of mikið, eins og var til dæmis í COVID, að fólk hætti og farið annað,“ segir Ragna Sigurðardóttir, fyrrum formaður Stúd- entaráðs, leiðtogi Röskvu, formaður Ungs jafnaðarfólks og læknakandídat. „Ég vil klárlega starfa sem læknir,“ segir hún en það eigi eftir að skýrast hvar hún muni starfa. „Kannski í Bandaríkjunum, kannski Svíþjóð eða á Íslandi. Ég veit það ekki.“ Allt sé opið en margt eigi eftir að skýr- ast þegar líður á kandídatsárið. „Lífið er þannig að tækifæri koma og fara. Brautin sem maður fetar fer kannski að einhverju leyti eftir þeim tækifærum sem birtast á hverjum tíma,“ segir hún. „Tækifærin í læknisfræði eru svo mörg,“ segir hún þar sem hún hittir Læknablaðið yfir kaffibolla á Te og kaffi í miðborginni. Ragna leiddist úr læknis- fræðinni í pólitík og er nú aftur komin til baka. Lífsskoðunin er ljós. „Það er mér svo mikilvægt að fólk fái jöfn tækifæri í lífinu og að fólk sem fæðist ekki með þau tækifæri sem aðrir hafa geti samt komist áfram – geti menntað sig til þess sem það vill eða starfað við það sem það kýs,“ segir hún aðspurð um pólitíska sýn hennar sem mótaðist meðal annars í stúdentapólitík en líka á yngri árum í „Skurðlækningar heilla mest um þessar mundir en upphaflega voru það geðlækningarnar,“ segir Ragna Sigurðardóttir sem er komin á fleygiferð á kandídatsárið sitt. Ragna hefur afhent formannskefli Ungs jafnaðarfólks til arftakans, er stigin úr hlutverki borgarfulltrúa og komin að nýju á kaf í læknisfræðina ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Sveiflast á milli pólitíkur og læknisfræði V I Ð T A L Bandaríkjunum. Fólk verði að geta staðið óháð stuðningi eða efnahag foreldra. Þar eigi samfélagið að stíga inn. „Fólk nær til dæmis ekki að framfleyta sér almennilega á námslánum, sem er andstætt tilgangi þeirra. Það á að vera tilgangur stuðningskerfa fyrir námsmenn, hvort sem það eru styrkir eða lán, að gera fólki kleift að þurfa ekki að vinna með námi. Alla vega ekki þannig að það taki frá þeim námið,“ segir hún. Á tímamótum Nýr tugur. Ný verkefni. Ný tækifæri. Ragna hefur nú snúið frá pólitíkinni að læknisstarfinu. Stendur á þrítugu en hefur mikla reynslu á bakinu. Nú í ágúst afhenti hún formannskefli Ungs jafnaðarfólks til arftakans. Steig í vor úr borgarfulltrúa- hlutverkinu og hóf í sumar kandídatsárið sitt. „Ég finn að orðið hefur vendipunktur í lífi mínu,“ segir hún og lýsir því hvernig hún leiddist óvænt út í stúdentapólitík og þaðan í borgarstjórnarmálin. Var í Röskvu, fór í Stúdentaráð og varð forseti þess og síðar kosningastýra Samfylk- ingarinnar árið 2018 í borginni. Sat í 9. sæti framboðslistans. „Við bjuggumst ekki við að ég færi inn sem borgarfulltrúi en það gerðist,“ segir hún og lýsir hvernig hún setti læknis- fræðina á hliðarlínuna á meðan. Nú sé pólitíkin á hliðarlínunni þótt hún hafi ekki alveg getað sleppt hendinni af borg- armálunum. Er fimmti varaborgarfulltrúi. „Ég vildi ekki sleppa stjórnmálunum alveg en vissi að mig langaði að einbeita mér að læknisfræðinni, klára kandídatsár- ið og fara í sérnám.“ Hún hafi lagt mikla vinnu í pólitíkina. „Mjög skemmtilegt en samt skrýtin tilfinning að minnka svona mikið við mig.“ Hún hefur verið í nokkurra vikna fríi. „Ég vildi gefa mér tíma til að skila af mér þessu tímabili sem forseti ungs jafnaðarfólks,“ segir hún. En hvernig leiddist hún út í pólitíkina? „Ég ólst ekki upp í flokkspólitískri fjölskyldu eins og margir sem taka þátt í ungliðapólitík,“ segir Ragna. Áhuginn kviknaði þegar hún var í háskólanum að reyna við inntökuprófið í læknisfræði. „Ég tók það þrisvar. Eftir fyrsta skiptið fór ég að vinna, var nálægt því að komast inn í annað sinn og ákvað að gera eitthvað skemmtilegt um haustið og skráði mig í sálfræði. Þar gekk mér vel og ég eignaðist góða vini,“ lýsir hún, og hvernig þráseta á Þjóðarbókhlöðunni með vinkonum sínum hafi leitt hana í pólitík. „Svo fóru þær í framboð. Langt var í prófin og ég mætti í partí til þeirra og sog- aðist inn í starfið,“ segir Ragna og hlær. „Áður en ég vissi af var ég farin að stýra kosningabaráttu Röskvu.“ Bjó í Bandaríkjunum Ragna er elst fjögurra systkina og bjó í

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.