Læknablaðið - 01.10.2022, Page 38
466 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
„Allir sem stýra heilbrigðiskerfinu verða
að átta sig á að læknar og aðrar heilbrigð-
isstéttir eru mjög hreyfanlegur starfskraft-
ur, fólk getur farið í önnur störf. Auðvitað
er ákveðin hætta á því að ef álagið verður
of mikið, eins og var til dæmis í COVID,
að fólk hætti og farið annað,“ segir Ragna
Sigurðardóttir, fyrrum formaður Stúd-
entaráðs, leiðtogi Röskvu, formaður Ungs
jafnaðarfólks og læknakandídat. „Ég vil
klárlega starfa sem læknir,“ segir hún en
það eigi eftir að skýrast hvar hún muni
starfa.
„Kannski í Bandaríkjunum, kannski
Svíþjóð eða á Íslandi. Ég veit það ekki.“
Allt sé opið en margt eigi eftir að skýr-
ast þegar líður á kandídatsárið. „Lífið er
þannig að tækifæri koma og fara. Brautin
sem maður fetar fer kannski að einhverju
leyti eftir þeim tækifærum sem birtast á
hverjum tíma,“ segir hún.
„Tækifærin í læknisfræði eru svo
mörg,“ segir hún þar sem hún hittir
Læknablaðið yfir kaffibolla á Te og kaffi í
miðborginni. Ragna leiddist úr læknis-
fræðinni í pólitík og er nú aftur komin til
baka. Lífsskoðunin er ljós.
„Það er mér svo mikilvægt að fólk fái
jöfn tækifæri í lífinu og að fólk sem fæðist
ekki með þau tækifæri sem aðrir hafa geti
samt komist áfram – geti menntað sig til
þess sem það vill eða starfað við það sem
það kýs,“ segir hún aðspurð um pólitíska
sýn hennar sem mótaðist meðal annars
í stúdentapólitík en líka á yngri árum í
„Skurðlækningar heilla mest um þessar mundir en upphaflega voru það geðlækningarnar,“
segir Ragna Sigurðardóttir sem er komin á fleygiferð á kandídatsárið sitt.
Ragna hefur afhent formannskefli Ungs jafnaðarfólks til arftakans,
er stigin úr hlutverki borgarfulltrúa og komin að nýju á kaf í læknisfræðina
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Sveiflast á milli pólitíkur
og læknisfræði
V I Ð T A L
Bandaríkjunum. Fólk verði að geta staðið
óháð stuðningi eða efnahag foreldra. Þar
eigi samfélagið að stíga inn.
„Fólk nær til dæmis ekki að framfleyta
sér almennilega á námslánum, sem er
andstætt tilgangi þeirra. Það á að vera
tilgangur stuðningskerfa fyrir námsmenn,
hvort sem það eru styrkir eða lán, að gera
fólki kleift að þurfa ekki að vinna með
námi. Alla vega ekki þannig að það taki
frá þeim námið,“ segir hún.
Á tímamótum
Nýr tugur. Ný verkefni. Ný tækifæri.
Ragna hefur nú snúið frá pólitíkinni að
læknisstarfinu. Stendur á þrítugu en hefur
mikla reynslu á bakinu. Nú í ágúst afhenti
hún formannskefli Ungs jafnaðarfólks til
arftakans. Steig í vor úr borgarfulltrúa-
hlutverkinu og hóf í sumar kandídatsárið
sitt.
„Ég finn að orðið hefur vendipunktur
í lífi mínu,“ segir hún og lýsir því hvernig
hún leiddist óvænt út í stúdentapólitík
og þaðan í borgarstjórnarmálin. Var í
Röskvu, fór í Stúdentaráð og varð forseti
þess og síðar kosningastýra Samfylk-
ingarinnar árið 2018 í borginni. Sat í 9.
sæti framboðslistans.
„Við bjuggumst ekki við að ég færi inn
sem borgarfulltrúi en það gerðist,“ segir
hún og lýsir hvernig hún setti læknis-
fræðina á hliðarlínuna á meðan. Nú sé
pólitíkin á hliðarlínunni þótt hún hafi
ekki alveg getað sleppt hendinni af borg-
armálunum. Er fimmti varaborgarfulltrúi.
„Ég vildi ekki sleppa stjórnmálunum
alveg en vissi að mig langaði að einbeita
mér að læknisfræðinni, klára kandídatsár-
ið og fara í sérnám.“ Hún hafi lagt mikla
vinnu í pólitíkina. „Mjög skemmtilegt
en samt skrýtin tilfinning að minnka
svona mikið við mig.“ Hún hefur verið
í nokkurra vikna fríi. „Ég vildi gefa mér
tíma til að skila af mér þessu tímabili sem
forseti ungs jafnaðarfólks,“ segir hún. En
hvernig leiddist hún út í pólitíkina?
„Ég ólst ekki upp í flokkspólitískri
fjölskyldu eins og margir sem taka þátt
í ungliðapólitík,“ segir Ragna. Áhuginn
kviknaði þegar hún var í háskólanum að
reyna við inntökuprófið í læknisfræði.
„Ég tók það þrisvar. Eftir fyrsta skiptið
fór ég að vinna, var nálægt því að komast
inn í annað sinn og ákvað að gera eitthvað
skemmtilegt um haustið og skráði mig í
sálfræði. Þar gekk mér vel og ég eignaðist
góða vini,“ lýsir hún, og hvernig þráseta á
Þjóðarbókhlöðunni með vinkonum sínum
hafi leitt hana í pólitík.
„Svo fóru þær í framboð. Langt var í
prófin og ég mætti í partí til þeirra og sog-
aðist inn í starfið,“ segir Ragna og hlær.
„Áður en ég vissi af var ég farin að stýra
kosningabaráttu Röskvu.“
Bjó í Bandaríkjunum
Ragna er elst fjögurra systkina og bjó í