Læknablaðið - 01.10.2022, Side 44
472 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Áhrifaríkar kennsluaðferðir
Jóns fóstra
Andrés Magnússon
fíknigeðlæknir
magnusson.andres@yahoo.com
Það voru forréttindi fyrir 6. árs lækna-
nema að fá að nema verklega lyflækn-
isfræði á Landspítala. Þar var okkur vel
tekið og sérfræðingarnir tóku okkar fá-
vísulegu spurningum af stakri þolinmæði
og jafnaðargeði. Óvíða var betra að vera
en á gigtardeildinni, 14G. Þar var okkur
kennd liðskoðun, liðástungur, úrlestur
liðskanna, sýndir alls kyns sjúkdómar og
fleira. Allir gigtarlæknarnir voru fæddir
kennarar en að öðrum ólöstuðum var Jón
heitinn Þorsteinsson yfir-
læknir deildarinnar (gjarnan
nefndur Jón fóstri) fremstur
meðal jafningja. Þegar hann
talaði við sjúkling með scler-
oderma eða annan fágætan
sjúkdóm gætti hann þess
ávallt að hafa stúdenta með.
Hann hvatti okkur, hafði
trú á okkur og lét okkur
kenna 4. árs nemum. Ég var
á þessum árum stjórnar-
maður í heilsuvörubúðinni
Kornmarkaðnum og kom
með bók þaðan um hvernig lækna mætti
alls kyns gigtarkvilla með mataræði. Jón
settist niður með mér og útskýrði hvernig
ekkert af fullyrðingunum í bókinni stæð-
ist vísindalega skoðun. Ég fór til félaga
minna með þennan nýfundna fróðleik og
var umsvifalaust rekinn úr stjórninni.
Já, þetta voru góðir tímar. Það var þó
eitt sem skyggði á gleðina. Þannig var mál
með vexti að við höfðum afnot af stúd-
entaherbergi á 4. hæðinni. Jón átti það til,
ansi oft reyndar, að gægjast inn í þetta
herbergi á eftirmiðdögunum, um það
leyti sem flestir voru farnir að tygja sig
til heimferðar. Ef hann sá glitta í einn eða
tvo samviskusama læknanema sem sátu
þarna ennþá, hvarf hann á braut en kom
aftur að vörmu spori með fjallháan hrauk
af sjúkraskrám. Í eitt skiptið var þetta
reyndar bara sjúkraskrá eins sjúklings en
með óteljandi innlagnir á gigtardeildina.
„Heyrðu Andrés minn; hún Guðfinna
var að leggjast inn, sterarnir eru hættir
að virka, mig langar að biðja þig að fara
í gegnum sjúrnalinn hennar og athuga
hvaða lyf hafa þegar verið reynd og hvern-
ig þau virkuðu“. Jón gat komið hvaða
eftirmiðdag sem var en föstudagseftir-
miðdagar voru hans uppáhald. „Heyrðu
elskan, ég hringi bara til þess
að láta þig vita að ég verð að
fresta bíóferðinni í kvöld.“
„Nei, nei, ekkert sérstakt,
ég þarf bara að fara í gegn-
um eina sjúkraskrá hérna á
spítalanum.“ Þó manni væri
hlýtt til Jóns, gat maður ekki
varist þeirri hugsun hví í
ósköpunum hann gæti ekki
bara gert þetta sjálfur, eða sett
aðstoðarlæknana sína í þetta?
Næsta mánudagsmorgun:
„Jæja, hvað segirðu þá Andrés
minn, ertu orðinn einhverju nær?“ „Jú, ég
sá að Guðfinna hafði fengið gullsprautur
1972 til ´74 en þær höfðu ekki haft mikil
áhrif. Síðan hafði hún tekið plaquenil 200
mg frá 1974 til 1980 og...“ ….. „Já Andrés,
bíddu við, segðu mér, var hætt 1980 vegna
aukaverkana eða vegna lélegrar svörun-
ar?“ „Tja, það var erfitt að finna svör við
því í sjúkraskránni.“ „Já, hmm, en reyndar
hafði hún líka reynt gullsprautur áður
og þeim var haldið áfram til 1975 en ekki
1974, og plaquenil var líka reynt í 400 mg
skömmtum.“ Hva! Jón virtist vera með
þetta allt á hreinu sjálfur, til hvers í ósköp-
unum var hann að láta okkur strita í gegn-
um þessar hnausþykku sjúkraskrár?
Það tók mig heila starfsævi að skilja að
Jón var að kenna okkur alveg svakalega
mikilvæga lexíu, eitt það mikilvægasta
sem hægt er að kenna nokkrum lækni.
Og með því að velja einmitt föstu-
dagseftirmiðdagana og þykkustu sjúkra-
skrárnar gætti hann þess að við myndum
aldrei gleyma þessu.
Um 99% af því sem stendur í sjúkra-
skrám er hugsað fyrir næstu daga eða
mánuði, hvernig hægðirnar voru í gær eða
hvernig sjúklingurinn svaf um helgina.
Iðulega er það sem mestu máli skiptir, og
stundum það eina sem máli skiptir, hvaða
íhlutanir hafa verið reyndar og hvernig
þær reyndust. Mörg lyf verka á fleiri en
einn sjúkdóm og greiningarskilmerki
breytast oft með nýrri útgáfu af ICD og
greiningar lækna eru oftast gerðar með
fyrirvara. Það skiptir ekki öllu máli hvort
sjúklingurinn greinist með kvíða eða
þunglyndi, en hvernig hann svaraði SSRI-
lyfinu skiptir öllu máli, sama gildir um
gigtarsjúkdóma, háþrýsting og sennilega
flesta langvinna sjúkdóma. En upplýs-
ingarnar um svörunina við íhlutuninni,
til dæmis lyfjagjöfinni, er týnd inni í mörg
hundruð blaðsíðna sjúkraskrá og lækn-
inum hrýs hugur við að reyna að finna
í þessum bunka hvort líðan sjúklinga
hafi verið vel lýst fyrir og eftir lyfjagjöf.
Margir sjúklingar með óljósar greiningar
hafa tekið alls kyns lyf áratugum saman,
jafnvel þvingað, án þess að það hafi verið
farið rækilega í saumana á því hvernig
lyfin hafi virkað.
Nú sting ég upp á því að í Sögunni
(eða Heilsugátt), í minningu Jóns fóstra,
komi nýr dálkur sem heiti „Íhlutun“ þar
sem örstutt er lýst hvaða íhlutun eða lyf
voru reynd, í hvaða skömmtum og hver
útkoman var, ásamt aukaverkunum.
Þannig er passað upp á þá hluti sem þurfa
á augabragði að vera aðgengilegir árum
og jafnvel áratugum seinna.
Jón Þorsteinssson, gigtarlæknir
Ö L D U N G A D E I L D I N