Læknablaðið - 01.10.2022, Síða 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 439
R A N N S Ó K N
Inngangur
Blóðþurrðarsjúkdómar í hjarta eru ein helsta dánarorsök í heim-
inum í dag.1,2 Horfur sjúklinga hafa batnað með framförum í lyfja-
meðferð og hjartainngripum en dánartíðnin er ennþá há. Þrátt fyr-
ir að skammtíma dánartíðni sé hærri hjá sjúklingum með þverlægt
hjartavöðvadrep (ST-elevation myocardial infarction, STEMI) eru
langtímahorfur svipaðar meðal sjúklinga með STEMI og óþverlægt
hjartavöðvadrep (non-ST-elevation myocardial infarcion, NSTEMI).
Dánartíðni af völdum hjartasjúkdóma er há meðal sjúklinga með
NSTEMI. Það gæti skýrst af því að sjúklingar með NSTEMI eru
yfirleitt eldri, með fleiri áhættuþætti og dreifðari kransæðasjúk-
dóm en þeir sjúklingar sem fá STEMI, sem eru yfirleitt yngri og
hafa færri æðakölkunarskellur. Skyndidauði vegna hjartadreps er
aftur á móti mun algengari eftir STEMI.1,3 Aldur og karlkyn eru
meðal áhættuþátta kransæðasjúkdóma. Karlar virðast vera í meiri
áhættu á að fá hjartadrep framan af ævi, en með hækkandi aldri
minnkar bilið á milli kynjanna hvað þetta varðar.4
Nýgengi bráðs hjartadreps hefur farið lækkandi í almennu þýði
á undanförnum árum. Þrátt fyrir það fer algengi kransæðasjúk-
dóms hækkandi, annars vegar vegna öldrunar þjóðarinnar og
hins vegar vegna betri horfa eftir áfall.5-7 Fjöldi erlendra rannsókna
Kolfinna Gautadóttir1 læknanemi
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir1,2 læknir
Martin Ingi Sigurðsson1,3 læknir
Karl Andersen1,2
læknir
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2hjartadeild Landspítala, 3svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Karl Andersen, andersen@landspitali.is
Á G R I P
INNGANGUR
Nýgengi bráðs hjartadreps hefur lækkað í almennu þýði á undanförnum
áratugum en margt bendir til þess að þetta eigi ekki við um yngstu
aldurshópana. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna nýgengi,
áhættuþætti og horfur eftir brátt hjartadrep meðal ungra einstaklinga hér á
landi.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Rannsóknin var afturskyggn gagnarannsókn. Gögn fengust úr gagnagrunni
SCAAR-SWEDEHEART, sjúkraskrám Landspítala og Dánarmeinaskrá
landlæknis. Í rannsóknarþýðinu var faraldsfræði milli kvenna ≤55 ára og
karla ≤50 ára sem greindust með brátt hjartadrep (STEMI/NSTEMI) á Íslandi á
árunum 2014-2020 borin saman við eldri sjúklinga.
NIÐURSTÖÐUR
Af öllum STEMI- og NSTEMI-tilfellum á Íslandi á tímabilinu (2852) voru
344 sjúklingar (12%) ungir. Ekki var sýnt fram á breytingu á nýgengi bráðs
hjartadreps meðal yngri aldurshópsins á tímabilinu. Hlutfall STEMI var
hærra meðal yngri sjúklinga samanborið við eldri (52% á móti 35%, p<0,001).
Reykingar (50% á móti 26%, p<0,001) og offita (líkamsþyngdarstuðull >30
kg/m2) (47% á móti 36%, p<0,01) voru algengari í yngri aldurshópnum
samanborið við þann eldri. Eldri sjúklingar voru líklegri til að deyja ári eftir
áfall, bæði af öllum orsökum (7% á móti 3%, p<0,05) og af völdum hjarta- og
æðasjúkdóma (7% á móti 3%, p<0,05). Ekki var sýnt fram á mun á hlutfalli
yngri og eldri einstaklinga með endurtekið brátt hjartadrep ári eftir áfall (2%
á móti 3%, p=0,3).
ÁLYKTANIR
Á rannsóknartímabilinu var ekki sýnt fram á breytingu á nýgengi bráðs
hjartadreps meðal yngri einstaklinga. Yngri einstaklingar með brátt
hjartadrep hafa aðra áhættuþætti en þeir eldri, þeir hafa lægra dánarhlutfall
en sömu líkur á endurteknu hjartadrepi ári eftir áfallið.
Brátt hjartadrep meðal yngri
einstaklinga: rannsókn á nýgengi,
áhættuþáttum og horfum