Læknablaðið - 01.10.2022, Síða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 441
R A N N S Ó K N
Tafla I. Lýsandi tölfræði sem sýnir samanburð á sjúklingatengdum þáttum
milli yngri og eldri einstaklinga með brátt hjartadrep á Íslandi 2014-2020.
Fjöldi (%).
Yngri
(n=344)
Eldri
(n=2508)
p-gildi
Kyn
Kona 82 (24) 612 (24) 0,9
Aldur (ár)
Meðaltal (sf) 45,5 (5,5) 68,9 (10,0) <0,001
Sjúkdómsgreining
STEMI 180 (52) 884 (35) <0,001
NSTEMI 164 (48) 1624 (65)
Áhættuþættir og aðrir þættir†
Reykir 167 (50) 618 (26) <0,001
Áður reykt 84 (25) 1147 (47) <0,001
Blóðfitulækkandi lyf 62 (18) 1158 (47) <0,001
Sykursýki 59 (17) 501 (20) 0,2
Meðhöndlaður háþrýstingur 117 (35) 1579 (64) <0,001
Ofþyngd 122 (36) 1103 (44) <0,05
Offita 160 (47) 904 (36) <0,05
Líkamsþyngdarstuðull (kg/m2)‡
Meðaltal (sf) 29,8 (6,0) 28,6 (5,0) <0,001
Fyrri áföll og aðgerðir*
Saga um hjartavöðvadrep 36 (12) 446 (20) 0,001
Saga um kransæðavíkkun 27 (8) 429 (17) <0,001
Saga um kransæðahjáveituaðgerð 2 (0,6) 223 (9) <0,001
†Gildi vantar fyrir reykingar í 102 tilvikum (4%), blóðfitulækkandi lyf í 67 tilvikum (2%),
sykursýki í 36 tilvikum (1%), meðhöndlaðan háþrýsting í 53 tilvikum (2%) og fyrir flokkun
líkamsþyngdarstuðuls í 23 tilvikum (0,8%).
‡Gildi fyrir líkamsþyngdarstuðul vantar í 23 tilvikum (0,8%).
*Gildi vantar fyrir sögu um hjartavöðvadrep í 275 tilvikum (10%) og sögu um
kransæðahjáveituaðgerð í tveimur tilvikum (0,1%).
Sf = staðalfrávik, STEMI = þverlægt hjartavöðvadrep, NSTEMI = óþverlægt hjartavöðvadrep.
Yngri: Konur ≤55 ára og karlar ≤50 ára.
Eldri: Konur ≥55 ára og karlar ≥50 ára.
Mynd 1. Nýgengi bráðs hjartadreps meðal yngri og eldri einstaklinga (p=0,001). Ekki
var að sjá tölfræðilega marktækan mun á breytingu nýgengis á tímabilinu, hvorki hjá
yngri né eldri hópnum (p=0,1 og p=0,5). Punktalínan er aðhvarfslína og gráa svæðið
sýnir öryggisbil.
Mynd 2. Kynjaskipt nýgengi bráðs hjartadeps í yngri aldurshópi (p=0,001). Ekki sást
tölfræðilega marktækur munur á breytingu nýgengis yfir tímabilið, hvorki meðal karla
né kvenna (p=0,7 og p=0,5). Punktalínan er aðhvarfslína og gráa svæðið sýnir öryggis-
bil.
yngri aldurshópnum. Á meðal kvenna var sykursýki (33% á móti
12%, p<0,001) og meðhöndlaður háþrýstingur (46% á móti 31%,
p<0,05) algengari. Þá voru karlar hlutfallslega fleiri með offitu
(48% á móti 44%, p=0,01) og í ofþyngd (38% á móti 28%, p=0,01).
Horfur sjúklinga voru kannaðar einu ári eftir brátt hjartadrep
á tímabilinu 2014-2019. Niðurstöður sýndu að hærra hlutfall eldri
sjúklinga lést ári eftir brátt hjartadrep, bæði af öllum orsökum (all-
cause mortality) (7% á móti 3%, p<0,05) og vegna hjarta- og æða-
sjúkdóma (cardiovascular mortality) (7% á móti 3%, p<0,05) (tafla III).
Ekki var sýnt fram á mun á hlutfalli yngri og eldri einstaklinga
sem fengu endurtekið brátt hjartadrep ári eftir fyrra áfallið en um
fá tilfelli var að ræða (2% á móti 3%, p=0,3) (tafla III, mynd 4).
Umræða
Á rannsóknartímabilinu var ekki hægt að sýna fram á breytingu á
nýgengi bráðs hjartadreps meðal yngri einstaklinga og ætla má að