Læknablaðið - 01.10.2022, Qupperneq 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 449
R A N N S Ó K N
marktækur munur milli karla og kvenna (p=0,81). Menntunarstig
kvenna var hærra en karla (p<0,001) og algengara var að karlar
væru giftir eða í sambúð en konur (86% á móti 74%; p<0,001). Al-
gengara var að konur væru með barn undir 18 ára á heimilinu
(20% á móti 13%; p<0,001). Ekki sást tölfræðilega marktækur mun-
ur milli karla og kvenna á því hvort þau voru með annan sjúkdóm
þegar þau greindust með krabbamein (p=0,81) en það átti við um
60% þátttakenda.
Hvar og hvernig var upplýst um krabbameinsgreiningu
Algengast var að þátttakendur fengju upplýsingar um að þeir
væru með krabbamein á sjúkrahúsi (47%) en einnig voru nefndar
læknastofur utan sjúkrahúss (22%) og heilsugæslan (14%). Hægt
var að merkja við valmöguleikann „Annars staðar“, sem 17% þátt-
takenda gerðu (tafla II). Í þeim tilvikum var Leitarstöðin títt nefnd
sem og tilteknar læknastofur. Algengara var að konur fengju upp-
lýsingarnar á sjúkrahúsi, 53% á móti 38% karla (p<0,001). Enn frem-
ur var algengara að karlar fengju upplýsingarnar utan sjúkrahúss,
31% á móti 15% kvenna (p<0,001).
Þegar spurt var með hvaða hætti þátttakendur hefðu fengið
upplýsingar um að þeir væru með krabbamein sögðust 67% hafa
fengið þær í viðtali, 25% með símtali og 9% á annan hátt, til dæm-
is með tölvupósti eða í læknisskoðun (tafla II). Algengara var að
konur en karlar fengju símtal (27% á móti 22%; p<0,001). Einnig
voru þátttakendur sem búa á strjálbýlu svæði eða í þéttbýli með
færri en 5000 íbúum líklegri til að fá greiningarsamtal í síma en
þátttakendur sem búa á höfuðborgarsvæðinu eða í þéttbýli með
fleiri en 5000 íbúum (28-35% á móti 22-24%; p<0,01) (tafla III). Þegar
upplýsingar um krabbameinsgreiningu voru veittar í viðtali var
algengara að konum en körlum væri ráðlagt að hafa einhvern ná-
kominn með sér (62% á móti 40%; p<0,001).
Hvernig var staðið að upplýsingagjöfinni?
Þegar spurt var hversu vel eða illa hefði verið staðið að því að upp-
lýsa um krabbameinsgreininguna sögðu 77% að það hefði verið
gert mjög vel eða fremur vel (tafla II). Hlutfallslega fleiri körlum en
konum fannst staðið mjög vel eða fremur vel að því að upplýsa um
krabbameinsgreiningu, 83% á móti 73% (p<0,001). Nánari greining
leiddi í ljós að af þeim sem fengu símtal voru 62% sem sögðu að
mjög vel eða fremur vel hefði verið staðið að málum á móti 85%
þeirra sem fengu upplýsingarnar í viðtali hjá lækni (p<0,001).
Meirihluti kvenna (58%) og þriðjungur karla (33%) sögðust
hefðu þurft stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki vegna þess hvernig
þeim leið andlega í greiningarferlinu (p<0,001) en í þessum hópi
var svipað hlutfall karla og kvenna (um það bil 30%) sem leitaði þó
ekki eftir þeim stuðningi (tafla II).
Aðdragandi greiningar – einkenni og tímalengd
Þegar spurt var um hvað hefði helst vakið grun um krabbamein
var algengasta svarið að þátttakendur hefðu fundið fyrir óþægind-
um/einkennum og leitað til læknis (42%). Aðrar algengar ástæður
voru læknisheimsókn af annarri ástæðu (20%) og þátttaka í skim-
Tafla I. Bakgrunnsþættir þátttakenda í Áttavitanum sem greindust með krabbamein á árunum 2019-2015. Fjöldi (%).
Alls
(N=1672)
Karlar
(N=704)
Konur
(N=956)
p-gildi
Aldur Meðaltal (SF)1 Meðaltal (SF) Meðaltal (SF)
Meðalaldur við svörun spurningalistans 62,6 (11,7) 66,0 (10,7) 60,0 (11,8) <0,001
Meðalaldur við greiningu 59,2 (12,1) 62,6 (11,2) 56,7 (2,1) <0,001
Búseta
Höfuðborgarsvæðið 992 (64) 428 (65) 560 (63) 0,81
Þéttbýli (≥5000 íbúar) 237 (15) 103 (16) 134 (15)
Þéttbýli (200-<5000 íbúar) 247 (16) 103 (16) 143 (16)
Strjálbýli (<200 íbúar) 74 (5) 28 (4) 46 (5)
Menntun
Grunnskólapróf eða sambærilegt 273 (18) 78 (12) 194 (22) <0,001
Framhaldsskólapróf 291 (19) 96 (15) 194 (22)
Próf í iðngrein 312 (20) 226 (35) 86 (10)
Háskólapróf 555 (36) 204 (31) 348 (40)
Annað 100 (7) 49 (8) 51 (6)
Hjúskaparstaða
Gift(ur) eða í sambandi 1222 (79,4) 556 (86) 651 (74) <0,001
Ekki í sambandi 317 (20,6) 93 (14) 224 (26)
Börn undir 18 ára á heimilinu
Já 258 (17) 83 (13) 174 (20) <0,001
Nei 1292 (83) 580 (88) 708 (80)
Með annan sjúkdóm við greiningu
Já 925 (58) 399 (60) 525 (58) 0,73
Nei 663 (42) 278 (41) 381 (42)
1SF= Staðalfrávik
Þátttakendur svöruðu ekki öllum spurningunum og því gefur samlagning fyrir hverja spurningu ekki endilega sama fjölda þátttakenda og gefinn er fyrir
heildarþátttöku í rannsókninni. Ekki voru til upplýsingar um kyn 12 þátttakenda.