Læknablaðið - 01.10.2022, Side 27
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 455
Tilfellið
Hraust 69 ára kona var flutt með sjúkrabíl á Landspítalann vegna
skyndilegs höfuðverkjar. Ekki var lýst brottfallseinkennum nema
óskýru tali/þvoglumælgi. Við komu á bráðamóttöku 50 mínút-
um frá upphafi einkenna var meðvitund skert en konan svaraði
ákalli og sársaukaáreiti og hreyfði alla útlimi samkvæmt fyrir-
mælum (GCS 9). Taugaskoðun sýndi misvíð sjáöldur sem svöruðu
ljósáreiti, Babinski-teikn var neikvætt og lífsmörk stabíl.
Bráð tölvusneiðmynd af heila var eðlileg. Tölvusneiðmynd af
heilaæðum sést á mynd 1. Á tölvusneiðmyndarbekknum vaknaði
sjúklingurinn, var fulláttaður og skýr (GCS15). Ítarlegri tauga-
skoðun sýndi truflun á augnhreyfingum (intranuclear opthalmop-
legia, INO), annars var skoðun eðlileg. Vegna útlits á æðamynd var
sjúklingurinn lagður inn á hágæslustæði taugalækningadeildar.
Um 15 mínútum síðar (tveimur klukkustundum eftir upphaf ein-
kenna) versnuðu einkenni skyndilega með auknu rugli og hratt
minnkandi meðvitund. Örstuttu síðar hætti hún að bregðast við
áreiti (GCS 3).
Konan var heilsuhraust, tók Valsartan/HCT við háþrýstingi.
Hún var að koma úr löngu flugi nóttina áður en einkenni byrjuðu.
Hver er líkleg greining og næstu skref í meðferð?
Brynhildur Thors1 læknir
Helgi Már Jónsson2
læknir
1Taugadeild Karolinska Sjúkrahússins í Stokkhólmi, 2röntgendeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Brynhildur Thors, brynhildur.thors@regionstockholm.se
Skyndilegt meðvitundarleysi
hjá hraustri konu
Tilfelli mánaðarins
Mynd 1. Tölvusneiðmynd af höfði án skuggaefnis sýnir aukna þéttni (dens vessel) í
toppi botnslagæðar (ör).
Sudden loss of consciousness in a previously healthy patient
1Neurological department Karolinska University Hospital, Stockholm, 2Radiology department,
Landspitali – the National University Hospital of Iceland.
Correspondence: Brynhildur Thors, brynhildur.thors@regionstockholm.se
Key words: stroke, loss of conciousness, basilar artery, thrombolysis, thrombectomy.
Greinin barst til blaðsins 29. apríl 2022,
samþykkt til birtingar 31. ágúst 2022.
doi 10.17992/lbl.2022.10.711