Læknablaðið - 01.10.2022, Side 30
458 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
F R É T T I R
„Við búum okkur undir átakavetur,“ segir
Steinunn Þórðardóttir, formaður Lækna-
félagsins, en stjórnin fundaði um miðjan
mánuðinn á Hreðavatni. „Tilgangurinn
var að fara yfir stefnuna og setja aðgerðar-
áætlun. Það var mikill samhljómur í hópn-
um,“ segir hún en aðgerðirnar framundan
verða kynntar á aðalfundi félagsins þann
14. október.
Kurr er í læknum. „Kjarasamningarnir
eru lausir í lok mars. Við sjáum, eins og
flestir, fram á gríðarleg átök á vinnu-
markaðnum. Okkur finnst mikilvægt að
læknar sitji ekki eftir varðandi kjör. Þeir
hafa verið að dragast aftur úr undanfarin
ár,“ segir hún. Margt sé undir í þessum
samningum.
„Ekki aðeins kjörin heldur einnig
framtíðarmönnun heilbrigðiskerfisins. Við
verðum að ná samningum svo fólk geti
hugsað sér að vinna hér á landi. Við upp-
lifum að það sé undir. Þessir samningar
snúast því um framtíðarheilbrigðisstefnu
landsins og hvort okkur tekst að standa
undir fyrsta flokks þjónustu.“
Steinunn segir ástandið ískyggilegt.
„Það er því afar mikilvægt að við læknar
stöndum sameinuð sem stétt. Það er núm-
er 1, 2, og 3,“ segir hún. „Á þessum fundi
stöppuðum við stálinu hvert í annað.“
Stjórn Læknafélags Íslands fyrir framan nýjan
bústað Orlofssjóðs vð Hreðavatn þar sem
vinnufundurinn var haldinn. Frá vinstri: Oddur
Steinarsson (FÍH), Ragnar Freyr Ingvarsson
(LR), Steinunn Þórðardóttir formaður, Sólveig
Bjarnadóttir (FAL), Magdalena Ásgeirsdóttir
(SFL) , Þórdís Þorkelsdóttir (FAL), Margrét
Ólafía Tómasdóttir (FÍH) og Theódór Skúli
Sigurðsson (SFL). Mynd/Dögg Pálsdóttir
Skerptu á
verkferlum
Læknablaðsins á
vinnufundi
Ritstjórn og tveir starfsmenn samankomin
á ritstjórnarskrifstofu Læknablaðsins.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir blaðamað-
ur, Lilja Sigrún Jónsdóttir heimilis læknir
fyrir framan, Ingibjörg Jóna Guðmunds-
dóttir hjartalæknir, Gunnar Thorarensen
svæfinga- og gjörgæslulæknir, Helga Ágústa
Sigurjónsdóttir ritstjóri og innkirtlalæknir,
Magnús Haraldsson geðlæknir, Berglind
Jónsdóttir barnalæknir, Hulda María
Einarsdóttir skurðlæknir og Védís Skarp-
héðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi.
Á myndina vantar Ólaf Árna Sveinsson
taugalækni. Mynd/Ingvar Freyr Ingvarsson
Formaður LÍ segir átakavetur framundan
Rífandi gangur er í innsendingum á
fræðigreinum til Læknablaðsins. Alls hafa
45 greinar verið sendar inn það sem af er
ári. Þær voru 51 allt árið í fyrra
„Þetta hefur verið skemmtilegt og
gaman að sjá hvað læknar hafa verið dug-
legir að senda blaðinu fræðiefni. Ég tel að
hópur lækna hafi fengið smá svigrúm til
að huga að rannsóknum sínum í COVID.
Staðan nú gæti því verið uppsöfnuð. Við
sjáum á næstu misserum hvernig þróun-
inni vindur fram,“ segir Helga Ágústa
Sigurjónsdóttir ritstjóri Læknablaðsins um
það að þegar hafa 45 fræðigreinar borist
blaðinu á árinu.
„Við sem stundum vísindi finnum þó
að COVID-álagið hefur víða komið niður
á vísindastarfinu, sérstaklega hjá ungum