Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 459
F R É T T I R
Eyrún Baldursdóttir og Þórunn Helga
Felixdóttir eru fyrstar til að útskrifast úr
sérnámi í öldrunarlækningum hér á landi
eftir marklýsingu sem byggði á viðamik-
illi reglubreytingu frá árinu 2015.
Með henni feta þær í fótspor Eyjólfs
Haraldssonar, sem varð fyrstur til að fá
viðurkenninguna snemma á þessari öld,
og Grímu Huldar Blængsdóttur, en út-
skrift hennar byggði á reglugerðinni þá
ósamþykktri.
Báðar eru þær Eyrún og Þórunn al-
mennir lyflæknar í grunninn en öldr-
unarlækningar eru einnig kenndar sem
viðbótarsérgrein við heimilislækningar
hér á landi og var sú breyting staðfest með
reglugerðinni. Útskrift þeirra Þórunnar
og Eyrúnar festir umgjörðina í kringum
sérnámið í sessi.
„Stórtíðindi,“ segir Konstantín Shcher-
bak kennslustjóri sérnámsins. Þær Þór-
unn Helga og Eyrún fagna útskriftinni.
„Merkileg tímamót að klára,“ segir Þór-
unn. Námið hafi verið krefjandi vegna
COVID.
„En þetta er svo skemmtilegur hópur
sérfræðilækna sem við vinnum með. Það
hefur gert þetta að góðum tíma og við
fengið tækifæri til að læra margt og þrosk-
ast í starfi. Margir lögðu mikið á sig til að
þetta gengi upp.“ Undir það tekur Eyrún.
Haldið var upp á tímamótin. „Öldr-
unarlæknar buðu okkur út að borða,“ seg-
ir Þórunn. „Við áttum skemmtilegt kvöld
þegar við fögnuðum áfanga okkar og að
prógrammið hefði í fyrsta sinn útskrifað
lækna.“
Þórunn byrjar nú að vinna sem öldr-
unarlæknir á Landspítala en Eyrún á öldr-
unarendurhæfingardeild hjúkrunarheim-
ilisins Eirar. „Ég vinn með ótrúlega góðu
þverfaglegu teymi að endurhæfingu sem
ég hef alltaf haft mikinn áhuga á og hefur
verið draumur minn.“
Báðar mæla þær heilshugar með nám-
inu en þó enn frekar með kollegunum.
„Dásamlegasta fólk veraldar hefur valið
öldrun og mig langaði að vera kollegi
þeirra,“ segir Eyrún sem hefur náð því
markmiði sínu.
Tjaldmorgunn á Suðurlandi
Þú stígur upp úr svefninum
rennir sundur tjaldinu
milli dags og nætur
Teygir nekt þína
móti Skálholtsbirtunni
Hleypir nóttinni út
yfir morgunblaut engin
Veist að hún skildi
litla stjörnu eftir
á festingu slímhúðar
Leg er hjarta um
hjarta, sláttur þeirra
lofsöngur til lífsins núna
og næsta
Við fyrsta grát að vori
hlaupa hvítar ár
úr mjólkurþungum brjóstum
Ari Jóhannesson
Ljóð úr Dagsláttu, nýrrri bók
Ara Jóhannessonar lyflæknis
Eyrún og Þórunn útskrifast fyrstar úr
íslensku sérnámi öldrunarlækninga
læknum. Það er því mikilvægt að læknar
haldi nú vel á spöðunum og slái ekki
slöku við.“
Ritstjórn Læknablaðsins hittist á
vinnufundi nú í septembermánuði. Farið
var yfir verklag og vinnslu blaðsins. „Við
erum ánægð að sjá hvað læknar eru til-
búnir að tjá sig við blaðið. Það er frábært.
Ég tel mikilvægt að við fylgjum fréttum
af því sem er að gerast í kringum lækna
þá og þá stund. Það er gaman að sjá það
verða að veruleika í blaðinu,“ segir Helga.
Átta læknar sitja nú í ritstjórn.
„Hópurinn er fjölbreyttur, nær vel
saman og reynslan innan hans af
ritstjórnarstörfum fyrir Læknablaðið
mislöng. Það blása því ferskir vindar
í bland við trausta þekkingu á kjarna-
starfsemi blaðsins. Þetta er samstillt
ritstjórn.“
Helga Ágústa segir að breytingar hafi
verið ákveðnar á fundinum. „Þær munu
birtast lesendum og ég hlakka til að heyra
og sjá viðbrögð lækna við þeim.“
Þórunn Helga Felixdóttir og Eyrún Baldurs-
dóttir eru nýútskrifaðir öldrunarlæknar.
Þórunn verður á Landspítala en Eyrún á Eir.
Mynd/Steinunn Þórðardóttir