Læknablaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 33
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 461
Ég ætlaði aldrei að flytja heim aftur eftir
framhaldsnámið í Lundi. Við fluttum út
rétt fyrir hrun og fylgdumst með sjónar-
spilinu úr öruggri fjarlægð frá fyrir-
myndarríkinu, Svíþjóð. Svo viss var ég
um framtíð mína í Svíaríki að við hjónin
höfðum sótt um ríkisborgararétt, farið í
viðbótarnám, keypt hús og bíl og alles.
Ljúfa lífið!
En svo breytist allt. Haustið 2015 eldaði
ég fyrir brúðkaup vinahjóna minna. Ég
hafði lofað þessu á einhverju kenderíi og
maður stendur við gefin loforð. Þetta var
dásamleg helgi þar sem ég hitti fullt af
gömlum vinum, skálaði við brúðhjónin,
hitti stórfjölskylduna, fór í sund í glamp-
andi sól og knúsaði fleiri vini, fór í heim-
sókn til afa og ömmu í Hlunnó og fékk
hrært skyr og brauð með kæfu. Daginn
eftir vaknaði ég með hnút í maganum,
eitthvað sem togaði óstjórnlega í mig – ég
var með svakalega heimþrá.
Það var morgunljóst að flutningur til
Íslands var ekki rökrétt ákvörðun, heldur
tilfinningaleg. Það var og er á brattann
að sækja á flestum stöðum – og fátt sem
dregur að unga lækna. Of fáir heimilis-
læknar, heimaþjónusta í mýflugumynd, of
fá hjúkrunarrými, endurhæfingarrými af
skornum skammti, engir samningar við
sérgreinalækna og þjóðarsjúkrahúsið bók-
staflega að springa af sjúklingum.
Ég fékk vinnu á Landspítalanum og
opnaði stofu, fyrst í Klíníkinni og seinna
með fleiri gigtarlæknum í Gigtarmiðstöð-
inni í Höfðanum.
Á spítalanum fékk ég fékk að taka þátt
í að opna nýja lyflækningadeild í Fossvogi
þar sem við reyndum að straumlínulaga
vinnubrögð, sinntum sjúklingum sem
ílengdust á bráðamóttökunni og opnuðum
sýklalyfjagjafaeiningu. Spennandi verk-
efni sem áttu að bæta þjónustu við sjúk-
linga. Svo kom COVID með öllum sínum
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
gigtarlæknir
Ragnar Freyr Ingvarsson
þunga – ég var gerður að yfirlækni nýrrar
göngudeildar sem sinna átti sívaxandi
hópi smitaðra. Göngudeildin spratt upp á
leifturhraða, mótuð af starfsmönnunum
sjálfum sem vildu gera hvað þau gátu til
að stöðva bylgjuna.
Og það virkaði. Auðvitað höfðu sam-
félagslegar aðgerðir einnig áhrif. En
það að bjóða upp á þjónustu, veita fólki
bæði öryggi og aðgengi – virtist draga úr
veikindum. Ég hafði auðvitað vitað, líkt
og flestir, að þetta skipti máli. Og væri
mikilvægt – en ég hafði aldrei áttað mig á
hversu mikilvægt. Hvert er vægi aðgeng-
is? Mér fannst það breyta gangi sjúkdóms-
ins – færri lögðust inn, færri þurftu á
gjörgæslu, færri létust. Þarna fékk hugvit
heilbrigðisstarfsmanna, af öllum stéttum,
að njóta sín við að leysa flókin vandamál.
Mér fannst vægið vera orðið mælanlegt.
Þetta hafði líka mikil áhrif á það
hvernig ég rek stofuna mína. Mig langar
til að stórefla hana – byggða á eigin
hugmyndum – sjá fleiri sjúklinga, kenna
sérnámslæknum, ráða hjúkrunarfræðing,
iðjuþjálfa, bæta samskiptaleiðir og fjár-
festa í nýjum tækjabúnaði. Ég er sann-
færður um að slíkt myndi bæta heilsu
skjólstæðinga minna.
Og þó að það sé spennandi að sinna
sjúklingunum á stofu þá verður að játast
að rekstrarumgjörðin er brotin. Ekki hefur
verið samið við okkur sérgreinalækna síð-
an 2013. Engar nýjungar hafa verið teknar
inn í gjaldskrár Sjúkratrygginga í meira
en áratug, engar leiðréttingar á verði frá
hinu opinbera í næstum þrjú ár. Engar
eiginlegar viðræður.
Það er ótrúlegt að hið opinbera sjái
ekki hið augljósa – hversu gríðarlega
stórt hlutverk sjálfstætt starfandi læknar
spila í heilbrigðiskerfinu – 500 þúsund
heimsóknir – sem er langtum meira en
göngudeildarþjónusta Landspítala og
fleiri læknisheimsóknir en á heilsugæslur
höfuðborgarsvæðisins á hverju ári. Né
virðast þau sjá hversu hagkvæm hún er –
en heimsókn á stofu kostar 25-50% minna
en koma á göngudeild Landspítala. Og
kannanir hafa sýnt að sjúklingarnir okkar
eru ánægðir með þjónustuna.
Auðvitað gengur þetta ekki svona til
lengdar. Ekki nema að markmið hins op-
inbera sé að minnka aðgengi sjúklinga að
heilbrigðisþjónustu og auka greiðslubyrði
þeirra. Það getur varla verið markmið
stjórnvalda að festa tvöfalda kerfið í sessi
til framtíðar?
Við viljum auka aðgengi að heilbrigðis-
þjónustu og bæta heilbrigði landsmanna
– þá þarf hið opinbera að koma að máli
við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna
með raunveruleg áform um að bæta þjón-
ustuna.
Það væri öllum Íslendingum til mikilla
heilla.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Hugleiðingar um að breyta um
stefnu, bæta aðgengi sjúklinga og
stöðu sérgreinalækna á stofu