Læknablaðið - 01.10.2022, Síða 36
464 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
Blaðið sem franski skurðlæknirinn Dubernard skildi
Guðmund eftir með eftir samtal þeirra á Hótel Holti.
Gögnin fékk hann hjá læknum sínum og fékk aðstoð
Vigdísar Finnbogadóttur fyrrum forseta við að þýða. Á
endanum fékk hann draum sinn um ágrædda handleggi
uppfylltan. Mynd/gag
„Ég hef hitt aragrúa af læknum á
lífsleiðinni en þegar ég sá Dubernard
kviknaði von um að ég fengi handleggi að
nýju,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson
í samtali við Læknablaðið 19 mánuðum eft-
ir handaágræðsluna.
Lionel Badet minntist kollega síns
og mentors, Jean-Michel Dubernard, í
fyrirlestri sínum, en hann lést í fyrra.
Dubernard hafi gert fyrstu handaágræðsl-
una sem heppnaðist 1998, sama ár og
Guðmundur Felix missti sínar. Einnig
andlitságræðslu. Dubernard leiddi þá
Badet og Guðmund saman eftir að Guð-
mundur leitaði franska skurðlækninn
uppi þegar hann var gestur á ráðstefnu
hér á landi árið 2007.
„Ég hringdi út um allan bæ og fann
hann á Hótel Holti. Spurði hann hvort
hann gæti grætt á mig hendur. Hann
svaraði: Ég veit það ekki.“ Læknirinn
hafi ritað niður hvaða gögn hann þyrfti
á lítinn blaðsnepil hótelsins. „Ég var með
Það hljóti að vera skrýtin tilfinning að
taka hendi hér og legg þar og græða á
annan einstakling.
Fætur í framtíðinni
„Nei, nei, nei. Fætur eru ekki inni í mynd-
inni,“ svarar Badet strax. Enn séu gervi-
fætur betri kostur en ágræddur fótur. „En
með framþróuninni gæti það breyst á
10-20 árum. Það er erfitt að segja,“ svarar
hann hratt. Gervifætur gefi þó líklega
aldrei sömu tilfinningu og að hafa fót.
„Og sú tilfinning, að skynja og finna, hef-
ur verið lykillinn í tilviki Felixar.“
Ljóst er að Badet hefur mikla þekkingu
sem þó fleygir hratt fram. Rannsóknar-
verkefnið sem teymið hrindir nú í fram-
kvæmd mun skipta miklu til framtíðar. En
nýtist trúin honum í vegferðinni?
„Mér finnst þessi menntun vega hvor
aðra upp fyrir mig,“ segir hann og hugsar
sig um. „Kannski er djáknamenntun mín
ekki nauðsynleg teyminu og það var ekki
háttur Jean-Michel Dubernard, mentors
míns, að hugsa um trúna. En án hans
hefðum við ekki náð svona langt,“ segir
hann og brosir.
Slys árið 1998 og yfir 50 aðgerðir á
aðeins fyrsta árinu. Guðmundur Felix er
þakklátur. „Ég hef treyst því sem læknar
gera hingað til og það hefur virkað. Ég
hef fengið ótrúlega góða meðferð á spít-
alanum heima og hér. Slysið var öðruvísi
og ég held að menn hafi gaman af því að
kljást við ný viðfangsefni,“ segir hann
kominn á heimili sitt í Frakklandi, með
COVID, eftir Íslandsheimsóknina.
„Ég læt líf mitt í hendur lækna trekk í
trekk. Þetta fer eins og það fer. Ég óttast
ekki dauðann enda búinn að vera dauður
í milljarða ára og það sakaði mig ekki að
vera dauður — en ég er ekki að flýta mér
þangað.“
miða frá Dubernard og lifði á því í mörg
ár. Fjögur ár liðu frá því að ég fékk mið-
ann þar til ég var samþykktur af franska
teyminu.“
Bið og rannsóknir tóku við þar til
hendurnar voru græddar á í janúar 2021.
„Ég hitti hóp af skurðlæknum á Landspít-
ala þegar ég kom heim í desember. Þeir
horfðu á mig og sögðu: Enginn hér inni í
þessu herbergi hafði nokkra trú á að þetta
yrði nokkru sinni gert,“ segir Guðmundur
Felix og að í Dubernard hafi hann fundið
mann sem var tilbúinn að leggja orðspor
sitt undir.
„Hann var ekki lengur með þetta
franska teymi á þessum tíma. Badet var
tekinn við en Dubernard var lærimeistari
Badets og hafði því enn sín áhrif.“ Hann
lýsir afrekum Dubernards.
„Fyrsta handágræðslan, fyrsta andlits-
ágræðslan. Framsýnn kall. Skemmtilegur
karakter. Rosalega franskur,“ segir Guð-
mundur Felix og hlær. „Í rauninni er það
loforð hans ritað á lítinn miða sem kemur
mér inn fyrir dyrnar og verður til þess að
teymið skoðar málið.“
Guðmundir segir vöflur hafa verið á
mönnum. Þeir hafi ekki verið spenntir til
að byrja með og leitað ráða hjá evrópsku
heimspekingaráði. „Það sagði: Ef þetta fer
illa er mannorðið undir. Svo er einhver
sem segir við þá: En hugsið ykkur hverju
þetta getur breytt fyrir sjúklinginn ef
þetta fer vel! Þeir hættu því að hugsa hvað
þetta gæti gert þeim og fóru að horfa út
frá sjúklingnum.“
Dubernard
læknir hafi trúað