Læknablaðið - 01.10.2022, Side 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 465
Hjá einstaklingum, sem eiga aðgang að
lækni gegnum ættar- eða vinatengsl, er
sterk tilhneiging til að nota þau tengsl til
að fá læknisþjónustu. Sömuleiðis liggur
fyrir að læknir þarf stundum á lyfjum að
halda sem eru lyfseðilsskyld. Þá liggur
kannski beinast við fyrir lækninn, og er
örugglega fljótlegast og þægilegast, að
skrifa sjálfur lyfseðilinn fyrir lyfinu frem-
ur en að leita til annars læknis.
Í samskiptum milli Embættis land-
læknis (EL) og Læknafélags Íslands (LÍ)
hefur EL lýst þeirri afstöðu að almennt
eigi læknar ekki að skrifa lyfseðla fyrir
lyfjum sem þeir sjálfir þurfa að nota. LÍ
hefur lýst þeirri afstöðu að slík takmörkun
gagnvart útgáfu lækna á lyfseðlum þurfi
að styðjast við skýr lagaákvæði. Á sama
tíma er LÍ afdráttarlaust í þeirri afstöðu
að öll útgáfa lækna á lyfseðlum, á þá sjálfa
og sjúklinga, sé háð ströngu eftirliti EL.
Einnig er það afstaða LÍ að almennt eigi að
forðast að skrifa lyf á sjálfan sig nema það
sé endurnýjun lyfja sem meðhöndlandi
læknir viðkomandi læknis hefur áður
ákveðið að hann skuli taka.
Varðandi meðferð lækna á ættingjum
er mikilvægt að íhuga hvað sé heppilegt
og við hæfi. Af margvíslegum ástæðum
getur verið óæskilegt að læknir taki að sér
meðferð ættingja. Lækni getur mögulega
skort nægilega þekkingu til að meðhöndla
ættmennið, viðkvæmni vegna fyrri sjúkra-
sögu eða viðeigandi læknisskoðunar getur
leitt til rangrar greiningar og meðferðar,
skortur á skráningu í sjúkraskrá getur
valdið ættingjanum vanda síðar, neikvæð
niðurstaða meðferðar getur spillt tengslum
milli læknis og ættingja, nauðsynleg með-
ferð gæti verið andsnúin vilja ættingjans,
svo nokkur atriði séu nefnd.
Í nýsamþykktum siðareglum LÍ (9.
útgáfu) er nánar fjallað um þetta í 14. gr.
Sambærileg ákvæði, en ekki eins ítarleg,
voru í 10. gr. eldri siðareglna LÍ. Í nýju
siðareglunum segir um mörk einkalífs
1. málsgrein:
Læknir skal hafa það hugfast að fjöl-
skyldu- og vinatengsl við sjúkling geta
haft áhrif á dómgreind hans og faglegt
sjálfstæði. Læknir ætti því almennt að
forðast að bera ábyrgð á læknismeðferð
náinna vina eða vandamanna sinna,
ekki síst þegar um langvinna eða alvar-
lega sjúkdóma er að ræða.
Þetta er mikilvæg leiðbeining til félags-
manna LÍ.
Alþjóðasamtök lækna (World Med-
ical Association – WMA) eru einnig með
þetta mál á dagskrá. Á ársfundi WMA,
sem haldinn verður fljótlega verður rædd
tillaga að yfirlýsingu WMA um meðferð
lækna á ættingjum (Physicians treating
relatives). Í tillögunni eru meðal annars
settar fram eftirfarandi ráðleggingar til
lækna:
l. Læknir eigi að forðast að vera
aðalveitandi heilbrigðisþjónustu ætt-
ingja. Læknir geti þó sinnt ættingjum
í neyðartilvikum, vegna minni háttar
heilsufarsvandamála eða þegar ekki næst
í annan lækni.
2. Ef ættingi spyr lækni um annað álit
vegna læknismeðferðar sem ættinginn
er að fá hjá öðrum lækni, þá þurfi
læknirinn, kjósi hann að veita annað álit,
að gæta varkárni í allri álitsgjöf.
3. Kjósi læknir að veita ættingum meðferð
verði að hafa eftirfarandi hugfast:
a. Virða siðareglur, sjálfræði sjúklings-
ins og rétt hans til samþykkis, ekki
síst þegar um er að ræða einstaklinga
undir lögaldri.
b. Virða trúnaðar- og þagnarskyldu
gagnvart sjúklingnum og gæta þess
að deila aldrei upplýsingum um
heilsufar sjúklingsins án samþykkis
hans. Á það einnig við gagnvart upp-
lýsingum til annarra fjölskyldumeð-
lima.
c. Lýsi ættinginn áformum um að leita
álits hjá öðrum lækni verður lækn-
irinn að virða þá ákvörðun.
d. Samþykki fyrir meðferð þarf sjúk-
lingur alltaf að gefa, einnig þegar
ólögráða sjúklingur á í hlut. Gæta þarf
að allri upplýsingagjöf gagnvart sjúk-
lingi, svo samþykki hans geti talist
upplýst samþykki.
e. Reynist skráning sjúkrasögu og
skoðun erfið eða jafnvel óþægileg
fyrir sjúkling, lækni eða báða aðila, á
læknir að íhuga alvarlega að vísa ætt-
ingjanum til annars læknis.
f. Vandlega þarf að gæta þess að öll
samskipti læknis og sjúklings í tilvik-
um sem þessum séu vel og ítarlega
skráð í sjúkraskrá.
4. Ef læknir getur ekki fylgt þessum leið-
beiningum á hann vísa ættingjanum í
meðferð hjá öðrum lækni.
5. Undir öllum kringumstæðum þurfa
læknar að gæta þess að virða allar siða-
reglur, sbr. Genfar-yfirlýsingu WMA,
siðareglur WMA og Lissabon-yfirlýsingu
WMA um réttindi sjúklinga.
Undirstrikað er í drögunum að þó
læknar séu eindregið hvattir til þess
að annast ekki ættingja sína nema í
undantekningartilvikum, sé það viður-
kennd staðreynd að ættingjar leita gjarnan
til lækna varðandi læknishjálp og -með-
ferð og að aðstoð þeirra er sjúklingnum
mikilvæg og vel metin.
Ef til vill verða þessar leiðbeinandi
reglur samþykktar af hálfu WMA á næsta
ársfundi samtakanna. Jafnvel þó svo verði
ekki felast í þeim mikilvægar ráðleggingar
til lækna um það hvernig rétt sé að bregð-
ast við og hvað þurfi að hafa í huga þegar
ættingjar leita til þeirra vegna meðferðar.
Þá eru þessar leiðbeiningar góð viðbót við
þær leiðbeiningar sem þegar liggja fyrir í
siðareglum LÍ.
Dögg Pálsdóttir
framkvæmdastjóri og lögfræðingur LÍ
doggp@lis.is
Eiga læknar að sinna sjálfum sér
eða ættingjum sínum?
L Ö G F R Æ Ð I 4 5 . P I S T I L L