Læknablaðið - 01.10.2022, Page 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 467
Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum þar
sem pabbi hennar, Sigurður Einarsson,
stundaði sérnám í meltingarlækningum.
„Ég flutti út 6 ára og bjó þar í 9 ár. For-
eldrar mínir ákváðu að sækja um ríkis-
borgararétt fyrir okkur,“ segir hún og að
hún hafi ekki mikið nýtt rétt sinn hingað
til. „En ég hef þó kosið,“ segir hún og vill
hreint ekki viðurkenna að pabbi hennar sé
fyrirmyndin að því að hún stökk í lækn-
isfræði.
„Ég ætlaði lengi vel ekki að verða
læknir út af pabba. Ég er svolítið þrjósk,“
segir hún og hlær. Heimspeki hafi heill-
að en áhugasviðspróf leiddi hana á rétta
braut. „Prófið snerist fyrst og fremst um
það hvort maður vildi vinna með fólki,
hlutum, gögn eða hugmyndir. Mig minnir
að ég hafi áttað mig á því að mig langaði
að vinna með fólki en líka með hugmynd-
ir og þar hafi læknisfræðin svolítið staðið
upp úr,“ og hún viðurkennir að niður-
staðan eigi bæði við læknisfræðina og
pólitíkina.
„Mörgum finnst þetta alls ekki passa
saman, mér finnst ég hafa lært margt af
hvoru tveggja sem getur styrkt mig í hinu.
Svo hefur læknisfræðin sínar takmarkan-
ir,“ segir hún. „Ég hef haft mikinn áhuga
á geðheilbrigðismálum og stofnaði geð-
fræðslufélagið Hugrúnu með nokkrum úr
stúdentapólitíkinni,“ segir hún.
„Ég vann á endurhæfingargeðdeild
sumarið eftir fjórða ár. Þá áttaði ég mig
á því að það er svo margt sem pólitíkin
ákveður sem hefur mikil áhrif á líf fólks,“
segir hún. Það að fólk búi í húsnæði og
hafi eitthvað milli handanna skipti máli
fyrir geðheilsu fólks. Ekki megi aðskilja
þetta alveg.
„Mér finnst skipta máli að læknar
séu ekki skoðanalausir þegar kemur að
pólitík. Þeir eiga að beita sér í þágu skjól-
stæðinga sína, því læknisfræðin getur
ekki lagað allt.“
Eins og heyra má hefur Ragna sveifl-
ast milli pólitíkur og læknisfræðinnar.
„Það hentar sumum að vera allt í öllu,
en ég fann að það að vera svona virk í
stúdentapólitík hafði áhrif á námið mitt.
Ég tók því þá ákvörðun og þegar ég varð
forseti Stúdentaráðs, sem er launuð staða,
að taka árs frí frá námi,“ segir hún.
„Ég tók hlé frá nám þegar ég varð
borgarfulltrúi til að sinna því starfi en
tók síðan hlé frá borgarfulltrúastarfinu
til að klára námið. Nú er ég aftur komin
í smá hlé frá pólitík til að sinna læknis-
fræðinni,“ segir hún og hlakkar til ársins
framundan.
„Ég verð á flakki kandídatsárið mitt.
Var tvo mánuði á háls-, nef- og eyrna-
deildinni sem var valið mitt. Þar kláraði
ég í byrjun ágúst,“ segir hún. Nú fer
hún á lyflækningasvið í einn mánuð,
eftir mánaðarfrí, fyrst og fremst á hjarta-
deildinni.
„Svo fer ég til Húsavíkur á heilsugæsl-
una í tvo mánuði og á Heilsugæsluna í
Garðabæ í aðra tvo. Loks er það Akranes
í fjóra mánuði: bæði á skurð- og lyflækn-
ingadeild. Svo klára ég kandídatsárið með
mánaðardvöl á lyflækningasviði Landspít-
ala,“ segir hún.
„Ég hef alltaf unnið öll sumur á
Landspítala og langaði að kynnast ein-
hverju öðru,“ segir hún og hlakkar til
mánaðanna. „Ég hef gaman af því að fara
á mismunandi staði og kynnast fólki. Mér
finnst fjölbreytnin mjög skemmtileg.“
Framtíðin skýrist
En hvað svo? Verður Ragna næsti Dagur
B? Borgarstjóri og læknir: „Ég hef nú feng-
ið þessa spurningu áður. Ég veit það ekki.
Ragna Sigurðardóttir fyrrum borgarfulltrúi hefur nú
sett pólitíkina á hliðarlínuna og hafið kandídatsárið sem
hún mun stunda víða um land. Mynd/gag
Ég þekki Dag vel og við höfum unnið vel
saman. Hann hefur náð árangri í pólitík
og er góð fyrirmynd en ég hef alltaf farið
mínar eigin leiðir,“ segir hún og brosir.
„Mig langar núna að helga mig
kandídatsári og sérnámi. Svo kemur fram-
tíðin í ljós. Kannski leiðist ég aftur út í
pólitík. Ég veit það ekki. Það gæti gerst,“
segir Ragna og lokar engum dyrum eins
og sannur pólitíkus.
„Það er liðin tíð að fólk ákveði starfs-
vettvang fyrir alla starfsævina,“ segir
hún og minnir því á mikilvægi þess að
læknastarfið komi til til móts við þarfir
fólks. Við þurfum að mæta þörfum þeirra
sem hafa lagt þetta nám á sig og fengið
jafnvel sérhæfingu. Það er svo mikilvægt
að það þurfi ekki að hörfa frá, séu vinnu-
aðstæðurnar ósamræmanlegar lífi þeirra,“
segir hún.
„Nú helga ég mig læknisfræðinni en
veit ekkert hvað gerist eftir 5, 10 eða 20
ár.“
• 2016-2018 Fulltrúi stúdenta í
háskólaráði Háskóla Íslands
• 2017-2018 Formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands
• 2018-2020 Varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Reykjavík
• 2020-2022 Borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar í Reykjavík
• 2020-2022 Forseti Ungs jafnaðarfólks
Pólitískur ferill
Rögnu Sigurðardóttur