Læknablaðið - 01.10.2022, Page 40
468 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
„Við finnum að fólk óttast að erfitt verði að
fá nýja kjarasamninga í gegn,“ segir Mika-
el Smári Mikaelsson, nýr formaður samn-
inganefndar Læknafélagsins og yfirlæknir
á bráðamóttöku Landspítala. Kjarasamn-
ingarnir renna út í lok mars. Upplýsingum
og gögnum sé nú safnað til að kortleggja
ólíka stöðu og þarfir lækna.
„Öll félögin kynna það sem þau telja
mikilvægast í samningunum á fundum
í október.“ Eftir það verði stefnan sett.
Mikael sagði já þegar honum var boðin
forystan. Hann var formaður Félags bráða-
lækna á Íslandi frá 2017 til 2021. Hann seg-
ir nú tækifæri fyrir lækna að meta hvort
þeim finnst núverandi kjarasamningur í
takti við nútímann.
„Ég tel að samningurinn mætti vera
skýrari. Þannig að Landspítali hafi til
að mynda tól til að laða fólk að og sé
samkeppnishæfur við útlönd og aðra,“
segir hann og vísar meðal annars til
bráðamóttökunnar.
„Nú hef ég verið í stöðu yfirlæknis
í rúmt ár. Stór hluti af verkefninu er að
halda í mannauðinn og styrkja starfsem-
ina. Ég hef endurtekið lent á veggjum, þar
sem ég hef viljað gera eitthvað en verið
sagt að samningarnir leyfi það ekki,“ segir
Mikael en hrina uppsagna hjúkrunar-
fræðinga hefur dunið á bráðamóttökunni
svo nú vantar í þriðjung stöðugildanna.
Læknar hafi hins vegar margir horfið frá á
árunum 2020 og 2021.
„Það er margra ára ferli að ráða í nýjar
stöður lækna og hjúkrunarfræðinga,“ seg-
Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítala, segir að hann hafi
aðeins séð tvo kosti þegar hann tók við starfinu. Reyna að breyta ástandinu eða flytja með
fjölskylduna hinum megin á hnöttinn. Mikael ber ekki aðeins bráðamóttökuna á herðunum
heldur hefur hann tekið að sér að leiða kjarasamninganefnd lækna. „Ég trúi að hægt sé að
bjarga bráðamóttökunni og fer síðastur frá borði“
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Ég fer síðastur frá borði“
ir Mikael og að rík og mikilvæg þekking
glatist við uppsagnirnar. „Stærsta ástæðan
fyrir að við missum nú mannskap er að
fólki finnst vinnuálagið og áhættan í að
vinnan hérna of mikil.“ Pressan á þau
sem sitji eftir aukist því enn. „Við óttumst
þennan vítahring því þegar fyrstu hætta
eykst álag á hin sem eftir eru og þau
brotna uns ekkert er eftir,“ segir hann.
„Ég er samt hæfilega jákvæður og ætla
mér að vera það. En auðvitað þegar maður
horfir kalt á tölurnar er ástandið langt yfir
hættumörkum.“ Er fólk þá í lífshættu?
„Auðvitað.“ Bráðamóttakan þarf starfsfólk.
„Hún er lífríki og þegar hluti þess hverfur
er öll skepnan í hættu,“ segir hann.
Úr 300 í 860 legudaga
Læknablaðið sest niður með Mikael degi
eftir að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar var kynnt. Hafði mætt nokkrum dög-
um fyrr en manneklan var þá slík vegna
veikinda að finna þurfti nýjan tíma. 40%
læknanna vantaði þann daginn. Mikael
var á hlaupum. Hann segir frumvarpið
vonbrigði.
„Mér sýnist að ekki hafi verið tekið
stórt skref, ef nokkurt.“ Íslenska heilbrigð-
iskerfið sé rekið ódýrar en í nágranna-
löndunum. „En samt er órökrétt að lítið
kerfi sé ódýrara en stórt.“
Rúmt ár er frá því að Mikael tók við
á bráðamóttökunni, þann 1. apríl í fyrra.
Hefði honum verið sagt að staðan myndi
enn versna hefði hann örugglega haldið
það aprílgabb. Staðan hefur margversnað.
„Legudögum milli júlímánaða í ár og í
fyrra fjölgaði úr 300 í 860,“ segir hann og
horfir til þeirra sem dvöldu 24 klukku-
stundir eða lengur á bráðamóttökunni.
„Þessi staða leggst þyngst á hjúkr-
unarfræðingana og því skiljanlegt að þeir
hætti þegar vandinn hefur aukist þetta
mikið,“ segir hann.
„Fólk ræður sig til vinnu út af áhuga,
kjörum og vinnuaðstæðum. Auðvitað
skipta kjörin málin, en aðrir þættir skipta
líka máli,“ segir hann og nefnir umbun
fyrir vinnuna og jafnvægi milli einkalífs
og vinnu. „Það fer öfugt í fólk þegar því
finnst því ekki umbunað á réttan hátt.
Hér hefur verið deilt um hvernig greiða á
aukalega þegar vantar fólk. Ákvæði í fyrri
samningum eru umdeild. Það væri því
ágætt að skýra þau.“
Mikael viðurkennir að starfið hafi
ekki þróast eins og hann bjóst við á þessu
eina ári. „Það hreyfist allt mjög hægt.
Margir koma að og erfitt að knýja fram
breytingar. Það er alltaf einhver ósam-
mála. Margt hefur verið reynt og annað
batnað en það hefur bara ekki dugað til.“
Hann hafi breytt þriggja mánaða áætl-
unum í fimm ára áætlanir. „Við vinnum
hægar á vandanum en náum því á end-
anum.“
Sagt hefur verið frá því að fram-
kvæmdastjórnin hafi ákveðið að aðeins
mættu 15 vera tepptir á bráðamóttökunni
í einu. „Það gilti aðeins um eina helgi og
gildir ekki alla daga,“ segir Mikael. Miða
Hlustið á viðtalið
á hlaðvarpi
Læknablaðsins