Læknablaðið - 01.10.2022, Síða 46
474 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Alla læknadeildina er okkur kennt að
hafa sjúklinga upplýsta og virka þátttak-
endur í eigin meðferð. Hvað ef læknir
kemst að þeirri niðurstöðu að fara á svig
við hið viðtekna til að gera það sem hann
telur réttast fyrir sjúkling sinn?
Í 5 ár bar ég gæfu til að þjóna sem
læknir á dvalarheimili í Svíþjóð. Þar
kynntist ég gamalli ekkju sem hafði reykt
í sig fjórða stigs teppusjúkdóm og var háð
uppbótarsúrefni í vöku og svefni. Hún
heyrði skelfilega en var annars við fulla
vitræna getu. Hún hafði frá mörgu að
segja og í sín 90 ár hafði hún sannarlega
lifað tímana tvenna. Henni fannst því
varla taka því að kvarta þegar vinstri
handleggurinn fór að safna á sig bjúg. Að
mér setti illan grun en spurningin sem ég
glímdi við var önnur en ég hafði búist við.
Ég vissi að henni leið vel á heimilinu,
heimili sínu, og þótti mikið fyrirtæki að
fara að heiman. Hún vildi helst ekki á
sjúkrahús nema til læknandi meðferð-
ar. Hennar almenna ástand takmarkaði
alla meðferðarmöguleika. Hún hafði
ekki verki, ekki meiri andnauð eða
virkniskerðingu en venjulega – svo vel má
spyrja: hvað átti að meðhöndla?
Sú spurning ásótti mig, svo mjög að
kom mér á óvart. Þetta hlaut að vera
krabbi með eitlametastösum, en gat ég
verið öruggur? Átti ekki sjúklingurinn
L I P R I R P E N N A R
Síðasti dansinn
Eyjólfur Þorkelsson
heilsugæslulæknir
eyjolfur.thorkelsson@gmail.com
rétt á að vita greininguna? Þá skildi ég
hvaða óvissa hafði í raun elt mig. Ég vissi
ekki hvort hún yfir höfuð vildi vita. Að
sjálfsögðu átti hún allan rétt á að vita. En
að vilja vita – það er allt önnur spurning.
Sem leiddi til næstu spurningar:
Hvernig veit ég hvað hún vill? Auðvitað
gat ég spurt hana beint út en sannast
sagna vissi ég ekki hvort hún myndi svara
samkvæmt því sem hún sjálf helst vildi
eða því sem hún héldi að herra læknir
vildi heyra. Mín óvissa og óöryggi myndu
vissulega minnka, en ykist ekki hennar
óvissa og óöryggi sem því næmi?
Mér leið eins og Pandóru. Tæki ég
frumkvæðið með að spyrja hvað gamla
konan vildi gera, væri ég að ýta öskjunni
upp að andlitinu á henni. Ég ákvað því að
ég myndi ekki impra á frekari rannsókn-
um nema hún sjálf spyrði og til að gefa
henni raunverulega tækifæri til að spyrja,
vitjaði ég hennar í hverri viku. Ég spurði
hvernig henni liði og hvernig handleggur-
inn væri. Svör hennar voru einatt „Ég hef
ekkert til að kvarta undan. Handleggurinn
er óbreyttur.“ Hún gaf aldrei upp boltann
fyrir mig að grípa; boltann sem ég beið
eftir.
Vikur urðu að mánuðum og vitjanir
mínar að rútínu. Ég hélt áfram að stíga
varlega og opna á næsta spor en hún
brosti kankvís, tók hliðarskref og leið
áfram. Fyrir hugskotsjónum var mynd af
okkur dansa vals umhverfis óþolinmóðan
næsta dansherra sem mændi á okkur og
hvatti ljáinn. Ég varð æ vissari í mínum
grunsemdum um greininguna en hið
skrítna var að ég fann svo sterkt á mér
að hún vissi líka hvað væri á ferðinni, og
vissi að ég vissi. Valsinn virtist síður en
svo valda henni ama. Þvert á móti raunar.
Engu að síður fjöruðu tónarnir út og
þróttur hennar með. Hún dormaði æ meir
og borðaði æ minna. Þegar ég kvaddi
hana hinsta sinni lá hún í rúminu, sagðist
vera með smávægileg ónot en lyfin virk-
uðu vel. Aðallega kvaðst hún þreytt. Ég
settist á rúmstokkinn, tók í hönd hennar
og sagði eitthvað í líkingu við: „Brátt mun
þér líða betur“. Hún svaraði engu, horfði
bara á mig. Tilfinningin sem ég túlkaði
úr augum hennar var þakklæti. En fyrir
hvað? Að fylla í gamaldags staðalímynd
læknis? Eða að gefa henni tækifæri til að
mæta örlögunum, ekki sem sjúklingur,
heldur á eigin forsendum?
Ég mun aldrei fá að vita hvort ég gerði
rétt; sem lækni sæmir. En ég held ég sé
nær því að skilja hvað Ralph Waldo Emer-
son meinti þegar hann sagði: „Menntun er
það sem býr með þér þegar allt er gleymt
sem þér var kennt.“
Læknirinn í þvottahúsinu?
Eiginkona Eyjólfs og heimilislækna-
kollega, Lilja Rut Arnardóttir, smellti
þessari mynd af sínum um daginn.