Arkitektúr og skipulag - 01.04.1988, Síða 46
að veita tvenn verðlaun og keypti auk þess inn
þrjár tillögur:
1. VERÐLAUN, KR. 500 ÞÚSUND
HÖFUNDAR: Jón Ólafur ÓLafsson arkitekt,
F.A.Í
Siguröur Einarsson arkitekt, F.A.f
Práinn Hauksson landslagsarkitekt, F.Í.L.A.
UMSÖGN DÓMNEFNDAR:
Tillagan er vönduð og heilsteypt og tengir
Skátagil við göngusvæði í miðbæ á glæsilegan
hátt. Trjákrans á torgi er nokkuð yfirþyrmandi
og gengur of nærri húsum. Á þeim stöðum,
þar sem bæði þarf að gera ráð fyrir ökutækjum
og gangandi fólki, verða þrengsli of mikil, jafn-
vel þótt gert yrði ráð fyrir einstefnu á Skipa-
götu eins og höfundur leggur til. Yfirborö
torgsins er meðhöndlað á vandaðan og
óvenjulegan hátt.
Mótun neðsta hluta Skátagils er mjög vel af
hendi leyst. Mannvirki eru að vísu umfangs-
mikil, en myndu gefa miðbænum aukið gildi og
skapa möguleika til ýmissa athafna. Gildi efsta
hluta gilsins, með tilliti til útsýnis og útivistar,
er undirstrikað með mannvirkjum, sem laga
sig vel að núverandi landslagi. Hugmyndir höf-
undar um gróðursetningu eru athyglisverðar.
2. VERÐLAUN, KR. 400 ÞÚSUND
HÖFUNDUR: Rorsteinn Helgason arkitekta-
nemi
UMSÖGN DÓMNEFNDAR:
Tillagan hefur sterkan heildarsvip og er ágæt-
lega rökstudd. Helsti styrkur hennar felst í
snjallri mótun Ráðhústorgs. Einfaldleiki torgs-
ins krefst þess að umgjörð þess verði fullgerð,
og eru áþendingar höfundar um útlit húsa um-
hverfis torgið því gagnlegar. Steinveggur, sem
umlykur Skátagil, og aðkomuleiðir gegnum
hann eru aðlaðandi. Útfærsla gilsins er látlaus
en lauslega unnin. Áningarstaðir í gilinu eru
áhugaverðir. Lausn á neðsta hluta Skátagils er
ekki sannfærandi. Baksvæði húss norðan Am-
aro verður óaðlaðandi, og ekki er séð fyrir al-
menningslyftu eins og skiplag gerir ráð fyrir.
1.-2. INNKAUP, KR. 80 PÚSUND
HÖFUNDUR: Ragnhildur Skarphéðinsdóttir
landslagsarkitekt
1.-2. INNKAUP, KR. 80 ÞÚSUND
HÖFUNDUR: Björn Johannessen landslags-
arkitekt M.N.L.A.
AÐSTOÐ: Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt
F.A.I
Grétar Markússon arkitekt F.A.Í.
Stefán örn Stefánsson arkitekt F.A.I
UMSÖGN DÓMNEFNDAR:
Tillagan er jarðbundin og þaulhugsuð. Torg-
lausn er snotur og einföld en innra rými of-
hlaðið mannvirkjum. Höfundur skapar hlýlegt
og skjólgott umhverfi í Skátagili. Gönguleiðir
milli Hafnarstrætis og Oddagötu eru athyglis-
verðar, en útfærsla þeirra er nokkuð þvinguð.
3. INNKAUP, KR. 40 ÞÚSUND
HÖFUNDUR: Ævar Harðarson arkitekt F.A.Í. /
M.N.A.L.
RÁÐGJÖF: Sigurbjörn Kjartansson jarðeðlis-
íræðingur og arkitektanemi
LJÓSM.: Hans Olav Anderson arkitektanemi
VÉLRITUN: Sjöfn Eiríksdóttir arkitektanemi og
Jóna
UMSÖGN DÓMNEFNDAR.:
Torgið er mótað með fáum og einföldum drátt-
um og útfærsla tjarnar er nýstárleg. Veðurviti
er yfirþyrmandi. Uppfylling og umsköpun
Skátagils er langsótt og lítt sannfærandi hug-
mynd, en gönguleið undirfoss er skemmtileg.
Dómnefndin lauk dómsorði sínu með
svohljóðandi bókun: „Það er álit dómnefndar
að munur sé ekki mikill á verðlaunatillögunum.
Báðar hafa þær mikla kosti, en nokkra galla.
Sameiginlega bæta þær hvor aðra uþp. Dóm-
nefnd leggur því til við útbjóðanda að í úr-
vinnslu verði leitast við að sameina kosti
beggja tillagna."
UMSÖGN DÓMNEFNDAR:
Höfundur vinnur ágætlega úr hugmynd sinni
um niðurfellt torg og skapar þar hlýlegt og fjöl-
breytilegt umhverfi. Hellulögn er vel unnin.
Garðpallar í mynni Skátagils eru áhugaverðir
en formfesta þeirra stingur í stúf við frjálst
form göngustíga þar fyrir ofan. Göngustígur
upp að Oddagötu er ógreiðfær. Höfundur gerir
tillögu um leiktæki í tengslum við gönguleiðir í
gilinu. Staðsetning útileikhúss efst í Skátagili
er óheppileg og útfærsla ótrúverðug.
SAMSTARF: Palle Lindgaard arkitektanemi
AÐSTOÐ: Finnur Kristinsson nemi á landb.
-hásk.
Ragnar Kristjánsson nemi á landb. hásk.
Lene Rahbech arkitekt
99 Finnur Birgisson er
fæddur á ísafirði 1946.
Hann lauk stúdents-
prófi frá M.A. og nam
arkitektúr í Hannover,
Pýskalandi, 1968-1974.
Finnur starfaði á teikni-
stofum í Reykjavík
1974-1979 (T.G. 17 og
Höfða). Hann hefur
verið skipulagsstjóri
Akureyrar frá árslokum
1979. Ít
46