Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 46. tbl. 25. árg. 16. nóvember 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Heyrnarþjónusta
s:534-9600
www.heyrn.is
Opið
alla
daga
ársins
Þinn árangur
Arion
Sólarlagið hefur oft á undanförnum dögum verið býsna fallegt. Þess njótum við íbúar við vesturströndina. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur St. Valdimarsson á
Breiðinni á Akranesi í liðinni viku.
Skipulagsstofnun samþykkti 27.
október síðastliðinn breytingu á
aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-
2022. Sveitarstjórn hafði fyrir sitt
leyti samþykkt breytinguna 12.
október sl. Í breytingunni felst að 30
hektara hluti frístundasvæðis, sem
nefnt er F128 í landi Litlu-Tungu
í Húsafelli, verður skilgreint sem
íbúðarbyggð (Í13). Frístunda-
svæðið minnkar sem því nemur
og verður 68 ha eftir breytingu.
Skipulagsstofnun hefur þegar aug-
lýst breytinguna í Stjórnartíðindum
og hefur hún því öðlast gildi.
Þótt auglýsing þessi láti ekki
mikið yfir sér má búast við að hún
hafi fordæmisgefandi gildi víða, ekki
einvörðungu í Borgarbyggð, heldur
á sveitarstjórnarstiginu víðsvegar
um landið þar sem menn hafa sóst
eftir að mega hafa skráða búsetu
í frístundahúsum. Breytingu sem
þessari fylgja þó ýmsar kvaðir. Við
hönnun og skipulagningu húsa þarf
vegghæð t.d. að vera meiri, skil-
greindar geymslur sem hluti hús-
næðis og sitthvað fleira umfram
kvaðir sem settar eru við byggingu
hefðbundinna frístundahúsa. Sam-
hliða slíkri breytingu þarf svo við-
komandi sveitarfélag að uppfylla
þjónustu á sama hátt og í öðrum
íbúðarbyggðum, svo sem um sorp-
hirðu, snjómokstur, skólasókn barna
sem þar munu í framtíðinni búa og
áfram mætti telja. „Með breytingar-
tillögunni er verið að skilgreina
íbúðarsvæði í Húsafelli með það
að markmiði að heilsárs búseta
verði möguleg á svæðinu,“ segir í
skipulagslýsingu þeirri sem nú hefur
verið samþykkt. Þá segir jafnframt
að samhliða vinnu við breytingu á
aðalskipulagi Litlu-Tungu í landi
Húsafells hafi verið gerð breyting
á deiliskipulagi sem felst í því að 40
lóðir fyrir frístundahús verða skil-
greindar sem lóðir fyrir 40 íbúðar-
hús. Stærðir lóða og húsa verða
óbreytt frá gildandi deiliskipulagi,
enda var við hönnun hverfisins í
upphafi gert ráð fyrir að það upp-
fyllti öll skilyrði íbúðarhúsa.
Hverfið sem um ræðir er byggt
á grónu hrauni ofan til í Húsafells-
skógi. Þaðan er víðsýnt m.a. upp til
jökla og niður með farvegi Hvítár.
Gríðarmiklar byggingafram-
kvæmdir hafa síðustu tvö ár verið í
gangi á svæðinu og m.a. var sett upp
húseiningaverksmiðja í Húsa felli og
þar hafa margir smiðir úr héraðinu
haft næg verkefni undanfarin miss-
eri. Að sögn Bergþórs Kristleifs-
sonar framkvæmdastjóra í Húsafelli
er nú búið að ráðstafa 36 af þeim 40
lóðum sem boðnar voru til sölu um
páskana 2020, hafin er bygging 23
húsa og grunnar fyrir fleiri hafa verið
teknir. Fyrstu húsin verða svo afhent
nýjum eigendum á næstu dögum.
Samhliða þessari breytingu á
aðalskipulagi Litlu-Tungu í landi
Húsafells má vænta þess að skráðum
íbúum í Borgarbyggð gæti fjölgað.
Í hópi kaupenda eru bæði fólk sem
mun nýta húsin sem frístundahús,
en einnig aðrir sem hyggja á flutn-
ing lögheimilis í Borgarfjörð.
mm
Samþykkt að breyta frístundasvæði í íbúðarbyggð
Nú eru 23 hús í byggingu á svæðinu og
verða þau fyrstu afhent fullbúin nýjum
eigendum á næstunni.
Ljósm. mm.