Skessuhorn - 16.11.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 20222
Enginn slasaðist
þegar byggingar
krani féll
AKRANES: Rosalegar
drunur og skruðningar kváðu
við í Akraneshöllinni um nón-
bil í gær þegar byggingarkrani
féll ofan á þak hallarinnar.
Kraninn fór í gegn í lofti
hallarinnar og myndaðist þar
stórt gat. Mikil mildi var að
enginn slasaðist þegar atvikið
átti sér stað því brot hrundu
úr loftinu. Krakkar sem voru
á fótboltaæfingu urðu skelk-
aðir og hlupu í var í hinum
enda hallarinnar. Fulltrúar frá
Akraneskaupstað og lögregla
mættu á svæðið og var tekin
sú ákvörðun að loka höllinni.
-gbþ/ Ljósm. vaks
Tekinn ölvaður
við akstur
STYKKISH: Síðasta fimmtu-
dagskvöld var ökumaður bif-
reiðar tekinn grunaður um
ölvun við akstur. Var hann
stöðvaður við akstur, látinn
blása og færður á lögreglu-
stöðina. Læknir var kallaður
til og tók hann blóðprufu úr
ökumanninum. Ökumaður
var síðan frjáls ferða sinna
eftir það en bíllinn kyrrsettur.
Málið er í hefðbundnu ferli
og ökumaður á von á sekt
og ökuleyfissviptingu fyrir
athæfið. -vaks
Árekstur við
Borgarfjarðar
brú
BORGARB: Að morgni síð-
asta laugardags var hringt í
Neyðarlínuna og tilkynnt um
umferðaróhapp við Borgar-
fjarðarbrú. Tildrögin voru þau
að ökumaður var á suðurleið
yfir brúna og þegar hann
var kominn yfir hana ætl-
aði hann að snúa við, ók til
hægri út af veginum og síðan
til vinstri inn á veginn aftur.
Þá kom bíll sem var á eftir
honum sem hafði ekki tekið
eftir háttalagi ökumannsins og
ók inn í hliðina á bifreiðinni.
Bæði ökutækin voru óökufær
og voru flutt með kranabíl í
Borgarnes. Ekki urðu alvar-
leg slys á fólki en einn far-
þegi kenndi sér eymsla eftir
áreksturinn. -vaks
Til minnis
Dagur íslenskrar tungu er í dag,
16. nóvember. Haustið 1995
lagði menntamálaráðherra til
að einn dagur ár hvert yrði til-
einkaður íslensku og átak gert
í varðveislu hennar. Fæðingar-
dagur Jónasar Hallgrímssonar
var valinn til minningar um fram-
lag hans til íslensks máls. Fyrsti
dagur íslenskrar tungu var 16.
nóvember 1996 og hefur verið
haldinn árlega síðan.
Veðurhorfur
Á fimmtudag verður suðaustan-
og austan 8-15 m/sek. Rign-
ing suðaustanlands, talsverð á
köflum en dálítil væta annars
staðar. Hiti víða 5 til 10 stig. Á
föstudag má búast við austan
8-15 m/sek og vætu af og til en
samfelld rigning verður á Suð-
austurlandi og á sunnanverðum
Austfjörðum. Hiti 3 til 8 stig. Á
laugardag, sunnudag og mánu-
dag verður ákveðin suðaustan-
og austanátt. Rigning suðaustan
til, en lengst af úrkomulítið á
Norður- og Vesturlandi. Hiti
breytist lítið.
Vestlendingur
vikunnar
Valgerður Helga Ísleifsdóttir raf-
virki í Grundarfirði tók sig til
ásamt vinkonu sinni Ragnheiði
Dröfn Benidiktsdóttur árið 2019
og skoraðu þær á alla framhalds-
skóla í landinu að bjóða upp
á helgarnám í rafvirkjun. Fjöl-
brautaskóli Norðurlands vestra
á Sauðárkróki svaraði kallinu
og hefur síðan þá boðið upp á
það nám og hafa margir Vest-
lendingar sótt þar síðan. Þær
vinkonur eru Vestlendingar vik-
unnar að þessu sinni.
Stefán Skarphéðinsson, fyrrver-
andi sýslumaður, lést á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands á Akranesi 8.
nóvember síðastliðinn. Stefán var
fæddur í Reykjavík 1. apríl 1945 og
varð því 77 ára.
Að loknu námi hóf Stefán
starfsferil sinn á skrifstofu Sölu
varnarliðseigna hvar hann starf-
aði árin 1975-1977. Þá flutti hann
ásamt fjölskyldu sinni til Patreks-
fjarðar og tók við starfi fulltrúa
hjá sýslumanni Barðastrandarsýslu
og sinnti því til ársins 1980. Hann
rak eigin lögmannsstofu á Patreks-
firði í fyrstu en var skipaður sýslu-
maður Barðastrandarsýslu. Því
starfi gegndi hann til 1994 er hann
var skipaður sýslumaður Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu og gegndi emb-
ættinu til ársloka 2014, þegar sýslu-
mannsembættum í landinu hafði
með lagabreytingu verið fækkað,
en þá var hann jafnframt kominn
á starfslokaaldur. Í Borgarnesi bjó
Stefán hins vegar áfram ásamt konu
sinni Ingibjörgu Ingimarsdóttur.
Þau eiga fjögur uppkomin börn og
einn son átti Stefán að auki frá fyrra
hjónabandi.
Í viðtali sem birtist í Skessuhorni
árið 2015 við Stefán kvaðst hann
eiga ættir að rekja bæði norður og
vestur. Móðir hans hafi verið frá
Hvammi í Vatnsdal en faðir hans
fæðst á Arnarbæli á Fellsströnd í
Dölum. „Ég fæddist í Reykjavík
nánast á sveitabæ, þar sem nú er
Langholtsvegur 145. Þarna var býli
sem hét Vík og var meðal annars
svínabú sem ég held að starfsemi
Þorvaldar í Síld & fiski hafi sprottið
út af. Frá átta ára aldri og alveg
þangað til ég las undir embættis-
prófið í lögfræðinni var ég aldrei
heima á sumrin. Fyrst var ég í sveit
á Patreksfirði og svo á Brúsastöðum
í Vatnsdal. Svo var ég fjögur sumur
á síld á Raufarhöfn og nokkur
sumur í Hvalstöðinni í Hvalfirði.
Það var mikið líf og lífsreynsla bæði
í síldinni og hvalnum.“
Stefán var einnig í viðtalinu
spurður hvernig hann hafi kunnað
við sig í Borgarfirðinum. Hann
vitnaði í annan þekktan einstakling
og sagði: „Borgfirðingar hafa farið
vel með mig.“ „Það er alveg ljóst í
mínum huga að starf sýslumannsins
var mun auðveldara eftir að ég kom
hingað í Borgarnes. Þar munar
mestu um að samgöngurnar eru svo
miklu auðveldari hérna. Ég lét mig
ekki muna um að fara tvær ferðir
til Reykjavíkur sama daginn áður
en Hvalfjarðargöngin komu. Það
er af þessum ástæðum sem meira
stendur upp úr í minningunni hjá
mér á fyrra hluta embættistímans.“
Í viðtalinu sagði hann að minnis-
stæðast úr starfi sýslumanns í Borg-
arnesi hafi verið stórviðburðir eins
og Mýraeldar. „Hvað embættis-
færslur varðar þá hefur sú ánægju-
lega breyting orðið að ég hef fram-
kvæmt miklu fleiri giftingar hérna í
Borgarfirði en fyrir vestan, þar sem
borgaralegar vígslur voru sjald-
gæfar. Það hafa verið giftingar við
Langjökul, við Hraunfossa, á Hótel
Glymi og meira að segja í hellinum
Víðgelmi fimm metrum undir jarð-
skorpunni. Síðan hef ég gift marga
hérna heima í stofunni,“ sagði
Stefán og bætti við að þetta hefðu
verið lang skemmtilegustu embætt-
isverkin á langri tíð hans sem sýslu-
maður.
mm
Á fundi skóla- og frístundaráðs
Akraneskaupstaðar 2. nóvember síð-
astliðinn var lögð fram til kynningar
nýleg úttekt á húsnæði Tónlistar-
skóla Akraness og Bókasafns Akra-
ness hvað varðar loftgæði í þessum
byggingum, en um er að ræða eignir
í eigu bæjarins. Sævar Freyr Þrá-
insson bæjarstjóri segir varðandi
það hvenær úttektin verði kynnt
almenningi að fyrst þurfi að ræða
við starfsmenn húsanna og húsfé-
lagið um málið en fljótlega eftir að
hún fari í umfjöllun hjá skipulags-
og umhverfisráði verði hún birt.
„Þetta er hluti af þeirri ákvörðun
sem við tókum þegar við lentum í
loftgæðavandamálunum hjá okkur
að fara í úttekt á öllum byggingum
okkar því við reynum að passa upp
á það að allir séu vel upplýstir. Það
eru alltaf einhverjar ábendingar
frá þeim sem gera þessar úttektir,
stundum eru þær minni háttar eins
og að laga þurfi vaska og þess háttar
og það fer þá inn í viðhaldsgögnin
hjá okkur. Okkur finnst gott að fá
ytri aðila til að skoða og rýna þetta
þannig að það sé faglegt mat á öllu
hjá okkur.“
Sævar Freyr segir varðandi
þessar tvær byggingar að það séu
ábendingar um það að loftgæði í
byggingunum séu ekki nægilega
góð sem snertir loftræstingu og að
flæðið sé ekki rétt í rýminu í tónlist-
arskólanum. „Þetta eru allt atriði
sem mér skilst að séu ábendingar
frá fagaðilum hvernig eigi að laga,
það er verið að vinna með það.
Við erum að taka þessi mál föstum
tökum og erum að taka þetta mjög
alvarlega.“
vaks
Veðrið upp á síðkastið hefur ekki
verið hagstætt fyrir smærri báta
sem gera út frá höfnum Snæfells-
bæjar. Þegar hins vegar hefur lygnt
hafa aflabrögð verið mjög góð.
Línubáturinn Tryggvi Eðvarðs SH
frá Ólafsvík hefur hins vegar ekki
slegið slöku við að undanförnu og
þar er róið stíft, en á bátnum eru
tvær áhafnir sem róa til skiptis tvær
vikur í senn og svo tvær vikur í fríi.
Þessi mynd er tekin þegar Tryggvi
Eðvars var að landa 25 tonnum af
fiski í Ólafsvík eftir tvær lagnir og
er Áskell Magnússon skipverji á
myndinni.
af
Vel hefur fiskast
þegar gefur
Úttekt á húsnæði tónlistarskólans
og bókasafnsins til kynningar
Tónlistarskólinn á Akranesi, en bókasafnið er í hinum enda hússins. Ljósm. vaks
Andlát — Stefán
Skarphéðinsson sýslumaður