Skessuhorn - 16.11.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir gb@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Siggi Sigbjörnsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Fleiri tásumyndir,
takk!
Óhætt er að segja að það sem af er þessum mánuði séu áhugaverðustu
fréttirnar þær sem hafa skírskotun í utanlandsferðir landans. Seðla-
bankastjóri reið á vaðið síðast þegar hann boðaði hækkun stýrivaxta og
gat þess þar að tásumyndir frá Tene væru helsta ástæða þess að nú þyrfti
að hækka vexti til að sporna gegn ofþenslu og gengissigi krónunnar.
Eftir að þau orð voru látin falla hafa fjölmargar tásumyndir frá Tene
birst á samfélagsmiðlum. Eigendum þeirra var hreinlega misboðið. Að
vísu er misjafnt hversu aðlaðandi þessar myndir eru, enda verður að
segjast eins og er að fjölmargt annað gleður augað meira en krumpaðar
tær og ristar fólks með sandalaför.
En tásumyndir eru fyrst og fremst svona birtingarmynd þess sem er
að gerast. Skoðum það aðeins nánar. Í nýliðnum októbermánuði lætur
nærri að fimmti hver Íslendingur hafi farið til útlanda. Það er nú ekkert
svo lítið þegar maður hefur það í huga að þetta er árstími vel utan hins
hefðbundna orlofstíma. Vafalítið hafa því margir átt hluta af sumar-
fríinu sínu eftir og ákveðið nú að ná sér í C og D vítamín í kroppinn og
tekið kostaboðum ferðaskrifstofa um sólarlandaferðir. En þessar sjötíu
þúsund ferðir Íslendinga virðast ætla að hafa afleiðingar. Samhliða því
að þetta ferðamet var slegið hefur krónan gefið eftir, en um veikingu
hennar segja hagfræðingar helstu bankastofnana einmitt að sé flakki
landans að kenna. Auk þess nefna þeir að óhófleg innkaup frá erlendum
vefverslunum eigi þátt í því að krónan dalar. Það þýðir að innfluttar
vörur hækka í verði sem leiðir til verðbólgu, sem hækkar skuldir heim-
ilanna og snjóboltinn er enn einu sinni farinn af stað. Í stuttu máli er
verðlagning á útflutnings- og innflutningsvörum innbyrðis að þróast
með óhagstæðum hætti.
Allar aðgerðir Íslendinga í efnahagsmálum eiga að stuðla að því að
verja gjaldmiðilinn og kjör almennings til lengri tíma. Oft kallað kaup-
máttur. Hins vegar leyfi ég mér að segja að hvort sem það eru hag-
fræðingar bankanna, Seðlabankastjóri, stjórnmálamenn, verkalýðs-
forystan eða aðrir, enginn vill ræða raunverulega rót þess vanda sem
við er að glíma. Hann er sá að við erum sífellt að reyna að reka efna-
hagskerfi sem byggt er í kringum veikasta gjaldmiðil í heimi. Flöktandi
örkrónu sem sífellt er að reynast almennum landsmönnum örlagarík. Á
sama tíma gera öll helstu fyrirtæki landsins upp reikninga sína í evrum,
því það hentar þeim! En hví skildum við þetta venjulega fólk ekki fá
að gera okkar heimilishald upp í evrum? Jú, ástæðan er sú að eigendur
fjármagns eru að hagnast á því að hér sé áfram það sem í almennu tali
er kallaður frjáls og sjálfstæður gjaldmiðill. Hann er það bara ekki,
króna er ekki nothæf í viðskiptum hvar sem maður kemur utan Íslands.
Í besta falli væri hlegið að okkur ef við byðum slíkan gjaldmiðil fram í
útlöndum.
Framundan eru kjarasamningar á hinum almenna markaði. Nú þegar
er byrjað að skjóta samningum til úrlausnar ríkissáttasemjara þar sem
fulltrúar atvinnurekenda og launþega virðast ekki ætla að ná saman án
utankomandi aðstoðar. Nær öruggt má telja að framundan sé þungur
vetur við samningaborðið. Vonandi ekki verkföll, en fátt í sjónmáli sem
gæti komið í veg fyrir þau.
Þangað til allt fer til andskotans í samningum á almennum vinnu-
markaði hvet ég hins vegar fólk til að ná sér í eins mikið C og D vítamín
á sólarströnd og aðstæður þess og efnahagur leyfir. Fólk ætti heldur ekki
að hræðast það að birta tásumyndir frá Tene á samfélagsmiðlum, því
trúið mér; þær eru ekki ástæðan fyrir því að krónan fellur og stýrivextir
hækka. Það er einfaldlega verið að reyna að slá ryki í augu okkar. Raun-
verulega ástæða er ónýtur gjaldmiðill og efnahagsstjórn sem ræður ekki
við stýringu hans. Góða skemmtun á Tene!
Magnús Magnússon.
Austan hvassviðri gekk yfir vestan-
vert landið á sunnudaginn. Veður-
stofan hafði fyrir fram gefið út
gula viðvörun vegna þessa þar sem
meðal annars var varað við akstri
fyrir Hafnarfjall þar sem vindur
stóð beint af fjallinu. Ekki er vitað
um teljandi tjón utan þess að í
Hálsasveit í Borgarfirði gekk síð-
degis á með mjög öflugum hviðum.
Auglýsingaskilti fuku um koll en
stærsta einstaka tjónið varð á Refs-
stöðum þar sem hálft þakið fauk af
fjárhúsum og stórar dyr á fjósi, sem
snéru í austur, löskuðust nokkuð.
Að sögn Kolbeins Magnússonar
bónda í Stóra-Ási segist hann
sjaldan hafa upplifað svona öfluga
vindhviður á þessum slóðum, en á
milli þeirra, segir Kolbeinn, hafa
dúrað niður og nánast verið logn.
mm
Undir lok síðustu viku hafði hópur
fólks, í gegnum viðburðasíðu á
Facebook, undirbúið hópferð
síðast liðinn laugardag í Bæjarsveit
í Borgarfirði til meintrar björg-
unar á dýrum sem þar lá grunur um
að væru vanfóðruð. Lögreglan á
Vestur landi og Matvælastofnun sáu
ástæðu til að stöðva þá samkomu
og sendu sameiginlega tilkynningu
frá sér undir kvöld á föstudag. Þar
sagði: „Lögreglunni hefur borist
tilkynning um að hópur fólks stefni
á björgunaraðgerðir á Nýjabæ í
Borgarfirði á morgun laugardag,
12. nóvember. Eins og fram kom í
tilkynningu Matvælastofnunar frá
því fyrr í dag er málið í vinnslu.
Fyrir liggur að Matvælastofnun og
Lögreglan á Vesturlandi verða á
staðnum á morgun að vinna að vel-
ferð dýranna á bænum. Við biðlum
til allra hluteigandi að veita Mat-
vælastofnun og lögreglu rými og
vinnufrið því sameiginlegt mark-
mið okkar allra er að tryggja vel-
ferð dýranna.“
Fyrr um daginn hafði Mat-
vælastofnun sent aðra tilkynn-
ingu frá sér vegna umræðu í fjöl-
miðlum og á samfélagsmiðlum
um velferð búfjár á bænum. Vildi
Matvælastofnun árétta að stofn-
unin væri með málið til meðferðar.
Meðan á vinnslu þess stendur mun
stofnunin sjá til þess að allir gripir
búsins hafi aðgang að nægu heyi
og vatni. Orðrétt sagði í tilkynn-
ingu MAST: „Vegna stjórnsýslu-
og persónverndarlaga getur stofn-
unin ekki tjáð sig um aðgerðir
sem unnið er að. Af þeim sökum
er fréttaflutningur og umfjöllun á
samfélagsmiðlum einhliða. Í ein-
hverjum tilfellum hafa rangar
ályktanir komið fram sem gerir það
að verkum að almenningur fær ekki
rétta mynd af stöðu mála og þeim
afskiptum sem stofnunin hefur haft
af búrekstrinum.
Matvælastofnun ítrekar að
ábyrgð á dýravelferð liggur ávallt
hjá eiganda sem ber að tryggja
aðbúnað, heilsu og velferð sinna
dýra. Hlutverk Matvælastofn-
unar er hins vegar að sjá til þess að
dýraeigandi sinni skyldum sínum
og grípi til aðgerða ef svo er ekki.
Við þær aðstæður er í forgangi
að dýrum sé komið til hjálpar, en
áframhaldandi úrvinnsla máls-
ins fer eftir þeim lagaramma sem
stofnunin starfar eftir.“
Því má við þetta bæta að farið
var að bænum um síðustu helgi og
skepnum þar gefið. mm
Matvælastofnun greindi í síðustu
viku frá því að nýverið hafi í fyrsta
skipti hér á landi greinst veiran
BPIV3 (Bovine Parainfluenza Virus
3) en það er veira sem veldur vægri
öndunarfærasýkingu í nautgripum.
MAST telur ekki ástæðu til að grípa
til sérstakra aðgerða vegna þessarar
greiningar en telur rétt að minna
á mikilvægi sóttvarna í umgengni
við nautgripi. Þá er stefnt að því að
kanna útbreiðslu veirunnar á næst-
unni en hún greindist á kúabúi á
Norðausturlandi.
„BPIV3 er landlæg í naut-
gripum víðast hvar í heiminum.
Veikindi eru algengust í kálfum
sem ekki hafa fengið næg mótefni
í gegnum brodd. Sýkingin er yfir-
leitt væg. Helstu einkenni eru hiti,
nefrennsli og þurr hósti. Í kjölfar
BPIV3 sýkingar geta komið önnur
smitefni, sem valda mun alvarlegri
einkennum. Sjúkdómseinkennin í
gripunum á þeim bæ sem sýkingin
greindist á hér, voru aðallega þurr
hósti, mæði við áreynslu og blóð-
nasir. Einkennin voru vægari í kálf-
unum en kúnum. Veikindin gengu
yfir á nokkrum vikum,“ segir í til-
kynningu MAST.
Þá er bent á að veiran veldur ekki
sýkingum í fólki og hefur ekki áhrif
á heilnæmi mjólkur og kjöts.
gbþ
Austan hvellur í Hálsasveit
Fjárhúsþak á Refsstöðum fauk af með sperrum og járni og dreifðist á melinn vestan við bygginguna. Ljósm. bhs
Veiran BPIV3 greinist í
fyrsta sinn hér á landi
Ljósm. úr safni Skessuhorns og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Biðluðu til almennings