Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 5
Sveitarfélagið Borgarbyggð var í
Landsrétti síðastliðinn föstudag
dæmt til þess að greiða Gunnlaugi
A. Júlíussyni fyrrverandi sveitar-
stjóra tæpar 3,7 milljónir króna í
bætur fyrir uppsögn í starfi. Fall-
ist var á varakröfu hans í málinu, en
upphaflega fór Gunnlaugur fram á
60 milljónir króna í bætur. Lands-
réttur dæmdi sveitarfélagið jafn-
framt til að greiða honum þrjár
milljónir króna í málskostnað fyrir
héraði og í Landsrétti.
Gunnlaugur stefndi sveitarfé-
laginu upphaflega í apríl 2020 en
hann var sveitarstjóri árin 2016
til 2019, en var sagt upp í nóvem-
ber það ár. Hann vildi meina að
starfsheiður sinn með uppsögninni
hafi verið rýrður, uppsögnin verið
mikið andlegt tjón og valdið honum
vanlíðan. Einnig gerði Gunn-
laugur athugasemd við að honum
hafi ekki verið sagt upp með form-
legum hætti líkt og kveðið er um í
lögum. Í staðinn fyrir að uppsögnin
hafi verið borin upp á fundi sveitar-
stjórnar hafi forseti sveitarstjórnar
afhent honum uppsagnarbréf. Í
héraði var Borgar byggð sýknað
í máli sem kveðið var upp í júní
2021. Í dómi héraðsdóms sagði að
uppsagnarákvæði hafi verið í gildi
í ráðningarsamningnum. Þá hafi
uppsögnin m.a. verið samþykkt
á næsta sveitarstjórnarfundi eftir
uppsögnina.
Dómur Landsdóms er langur og
ítarlegur, svo ítarlegur að í niður-
stöðuorðum segir m.a. að; „kröfu-
gerð áfrýjanda er óhóflega flókin að
uppbyggingu. Hún er aftur á móti
ítarlega skýrð í stefnu og öðrum
skriflegum málatilbúnaði áfrýj-
anda og þykja því ekki næg efni til
að vísa máli þessu frá dómi af sjálfs-
dáðum vegna vanreifunar.“ Þá segir
einnig í dómsorðum Landsréttar
að Gunnlaugur eigi ekki rétt til
bóta vegna fjártjóns á þeim grund-
velli að staðið hafi verið að upp-
sögn hans með ólögmætum hætti.
Orðið hafði trúnaðarbrestur milli
sveitarstjórnar og sveitarstjóra og
hafi sveitarstjórn ekki brotið gegn
rannsóknarreglu, meðalhófsreglu
og andmælarétti sínum við að segja
honum fyrirvaralaust upp. Lands-
réttur var ekki sammála niðurstöðu
héraðsdóms nema að hluta og féllst
á að koma til móts við fyrstu vara-
kröfu Gunnlaugs og var Borgar-
byggð því gert að greiða honum
samtals 3.692.241 krónur með
vöxtum, auk þriggja milljóna króna
í málskostnað.
Þegar dómur hafði verið upp
kveðinn á föstudag lét Gunnlaugur
þessi orð falla í viðtali við fréttavef-
inn Visir.is: „Þetta er ekki spurn-
ing um sigur heldur hver hefur rétt
fyrir sér. Í mínum huga var þetta
aldrei spurning. Mér finnst niður-
staðan skipta mestu máli. Að gjörn-
ingurinn var ólögmætur. Peninga-
málin voru ekki aðalatriðið heldur
að fá niðurstöðu í lagalegu hliðina.
Þetta hefur mikið fordæmisgildi.
Þarna er tekin ákvörðun um fjár-
hagslega skuldbindandi aðgerð
fyrir hönd sveitarfélagsins utan
formlegs fundar,“ sagði Gunn-
laugur í samtali við Vísi.
mm
Landsréttur dæmdi
Borgarbyggð til greiðslu bóta
hagvangur.is
Brákarhlíð er sjálfseignarstofnun sem á sér 50
ára sögu. Bakhjarlar heimilisins eru sveitarfélögin
Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur og
Skorradalur, auk þess sem Samband borgfirskra
kvenna hefur verið bakhjarl heimilisins allt frá
stofnun og á einn fulltrúa í stjórn. Í Brákarhlíð er
unnið eftir Eden hugmyndafræðinni og starfa þar
um 85 manns. Sjá nánar á brakarhlid.is.
Umsóknarfrestur til 21. nóvember nk.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf
ásamt afriti af starfsleyfi.
Nánari upplýsingar veita Jóhannes Þorkelsson,
johannes@hagvangur.is
og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.
Starf forstöðumanns hjúkrunarsviðs Hjúkrunar- og dvalarheimilisins
Brákarhlíðar í Borgarnesi er laust til umsóknar. Leitað er að
lausnamiðuðum stjórnanda sem býr yfir miklum samskiptahæfileikum
og metnaði fyrir sínu starfi og þjónustu heimilisins í þágu heimilisfólks
og samfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð og leiðandi hlutverk í daglegri hjúkrunarþjónustu Brákarhlíðar
• Virk þátttaka í teymisvinnu með öðru starfsfólki heimilisins sem hefur
vellíðan heimilisfólks að leiðarljósi
• Umsjón með starfsmannahaldi hjúkrunarþjónustu, s.s. skipulagi
mönnunar, stefnumótun, aðkomu að ráðningu nýrra starfsmanna,
fræðsluáætlun og starfsþróun
• Fagleg ábyrgð á gæðum hjúkrunarþjónustu heimilisins, lyfjaeftirlit
og eftirlit með búnaði sem að þjónustunni snýr
• Samskipti við hagsmunaaðila innan heimilis og utan, aðrar fagstéttir,
stjórnendur og aðstandendur heimilisfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
• BSc. próf í hjúkrunarfræði og leyfisbréf frá embætti landlæknis
• Menntun eða starfsreynsla á sviði öldrunarhjúkrunar eða stjórnunar
er skilyrði
• Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun
• Hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til samstarfs í teymisvinnu
og sköpun liðsheildar
• Góð íslenskukunnátta
Forstöðumaður hjúkrunarsviðs
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Vegna ferðar
starfs manna
erlendis verður
Bílaverkstæði Hjalta
lokað dagana
17.–18. nóvember
Við leitum að duglegu
og samviskusömu fólki í
100% starf við framleiðslu
í áfengisverksmiðjunni í
Borgarnesi.
Reglusemi og reykleysi skilyrði.
Áhugasamir sendi umsóknir
og upplýsingar á netfangið
purespirits@purespirits.is
Pure Spirits ehf.