Skessuhorn - 16.11.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 20226
Verslun stendur
í stað á milli ára
LANDIÐ: Heildar greiðslu-
kortavelta í októbermánuði
nam tæpum 104 milljörðum
króna og jókst um 10% á
milli ára miðað við breytilegt
verðlag. Þetta kemur fram í
saman tekt Rannsókna seturs
verslunarinnar. Greiðslu-
kortavelta innlendra korta í
verslun innan lands í október
stóð nánast í stað á milli ára
miðað við breytilegt verð-
lag. Velta jókst þó á milli ára
í stórmörkuðum og dagvöru-
verslunum, verslunum með
heimilisbúnað, bóka,- blaða-
og hljómplötuverslunum og
tollfrjáls verslun jókst um rúm
58%. Aðrir flokkar verslunar
drógust saman á milli ára.
Greiðslukortavelta erlendra
ferðamanna hérlendis í
október jókst um 38,4% frá
fyrra ári miðað við breytilegt
verðlag. Veltan í október er að
raunvirði svipuð því sem hún
var í október 2016. -mm
Þorrablót Skaga
manna 2023
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs Akraneskaupstaðar 10.
nóvember síðastliðinn var
tekið fyrir erindi frá árgangi
1979 vegna Þorrabóts Skaga-
manna á næsta ári. Bæjar-
ráð samþykkti að styðja hið
árlega Þorrablót Skagamanna
með sambærilegum hætti og
undanfarin ár með endur-
gjaldslausum afnotum af
íþróttahúsinu á Vesturgötu en
viðburðurinn verður 21. jan-
úar 2023. Bæjarráð áréttaði að
skipuleggjendur myndu gæta
sem fyrr að því að fylgja gild-
andi áfengislöggjöf hvort sem
það liti að þátttöku ungmenna
í viðburðinum sjálfum eða við
afgreiðslu veitinga til gesta.
-vaks
Íbúakosning í
samráðsgátt
LANDIÐ: Drög að reglugerð
um íbúakosningar sveitar félaga
hafa verið birt í samráðsgátt
stjórnvalda til umsagnar. Allir
hafa tækifæri til að senda inn
umsögn eða ábendingar en
frestur til að skila umsögn er
til og með 28. nóvember nk.
Í reglugerðinni eru sett fram
lágmarksatriði sem fram þurfa
að koma í reglum sveitar félaga
um íbúakosningar. Helsti
munurinn á íbúakosningum
sveitar félaga og kosningum
sem fram fara á grundvelli
kosningalaga eru þær að íbúa-
kosningar fara fram á ákveðnu
tímabili og ekki er hefðbund-
inn kjördagur. Tímabilið getur
verið minnst 2 vikur og að
hámarki 4 vikur. Gert er ráð
fyrir að ekki fari fram utan-
kjörfundaratkvæðagreiðsla við
íbúakosningar sveitarfélaga.
Þess í stað er gert ráð fyrir að
sveitarfélög hafi póstkosningu
sem mælt er fyrir um í reglu-
gerðinni. Mismunandi kröfur
eru gerðar til íbúakosningar
sem er bindandi og ráðgefandi
íbúakosningar. -mm
Ók á bíl og
stakk af
AKRANES: Rétt fyrir
hádegi síðasta föstudag kom
ökumaður bifreiðar og til-
kynnti að keyrt hefði verið
á bílinn hans við Krón-
una á Dalbraut. Var bílnum
lagt næst fjölskyldustæðinu
eins og hann orðaði það og
hafði einhver ekið á bílinn
hans og síðan farið í burtu.
Svo kom í ljós að vitni var að
atburðinum og náði viðkom-
andi númeri bílsins. Haft var
samband við eiganda bílsins
og er málið upplýst, að sögn
lögreglu. -vaks
Leituðu að
mjálmandi ketti
AKRANES: Hringt var
í Neyðarlínuna síðasta
fimmtudagsmorgun og til-
kynnt um mjálmandi kött í
ruslagámi við Háholt. Lög-
regla fór á staðinn en fann
ekki kisu þrátt fyrir mikla leit
í ruslagámi og ruslatunnum í
grenndinni. -vaks
Spónaplata fauk
á bíl
SNÆFELLSN: Síðast-
liðinn fimmtudagsmorgun
var ökumaður á bifreið
sinni í vesturátt á Snæfells-
nesvegi þegar flutningabif-
reið tók fram úr honum og
fauk spónaplata af henni og
beint framan á bílinn. Platan
beyglaði topp bifreiðar-
innar og brotnaði framrúða
bílsins við atganginn. Öku-
maður slapp með skrekk-
inn og haft var samband við
ökumann flutningabifreiðar-
innar. -vaks
Nýverið hljóp á snærið hjá
Björgunar sveitinni Brák í Borg-
arnesi. Sveitinni var afhent til frjálsra
afnota fjölnota björgunartæki sem
gefur, að sögn Elínar Matthildar
Kristinsdóttur formanns sveitar-
innar, mikla möguleika til leitar og
björgunar við erfiðustu aðstæður.
Um er að ræða „All terrain“ snjóbíl
af gerðinni Hägglund, sem gerður
hefur verið upp frá A til Ö.
„Þessi bíll er í raun einstakur,“
segir Elín Matthildur. „Hann var
gerður upp í þeim tilgangi að vera
notaður í leiðangur Ragnars Axels-
sonar ljósmyndara til Síberíu, en sú
ferð átti að vera hluti af Norður-
slóðaverkefninu. Bíllinn er inn-
réttaður þannig að fjögur sæti eru
í fremri vagninum og tveir bekkir
í þeim aftari, sem einnig er hægt
að nota undir börur, jafnvel fjórar
ef við setjum kojurnar upp. Bíll af
þessari gerð þolir afar mikið frost
og í rauninni er hægt að fara út á
honum í öllum veðrum. Hægt er að
aka honum yfir jökla og mýrar og
raunar einnig sigla honum á vatni.
Eftir að Úkraínustríðið braust
út varð ekkert af ferð Ragnars til
Síberíu. Ólafur Ólafsson er eigandi
bílsins og vinur Raxa, en Ólafur
er eins og kunnugt er uppalinn í
Borgarnesi og var auk þess sjálfur
félagi í Björgunarsveitinni Brák á
sínum tíma. Ólafur ákvað að leggja
sveitinni til bílinn til frjálsra afnota
og erum við honum afar þakklát
fyrir,“ segir Elín Matthildur.
Nú mun hópur björgunarsveitar-
fólks í Brák taka bílinn að sér, læra á
allan búnað og hefja æfingar. Bíllinn
fær pláss í nýju björgunarmiðstöð-
inni við Fitja. „Þessi bíll er búinn
ótrúlegustu tækjum og búnaði og
er í raun lúxus útgáfa af Hägglund
sem almennt gengur undir nafn-
inu All terrain, því þeir nýtast við
fjölbreyttar aðstæður. Bíllinn er
búinn ótrúlegasta búnaði á borð
við gervihnattatæki, kaffikönnu
og bara nefndu það. Hann er með
gott leiðsögutæki og við munum
auk þess bæta við tetrastöð og loft-
neti. Yfirbyggingin er öll nýupp-
gerð að innan með bólstruðum
innréttingum, öflugum hiturum og
úrvals aðstöðu, þannig að hann er
talsvert ólíkur gamla Hrolli, snjó-
bílnum sem Brák átti fyrir nokkuð
löngu síðan. „Við sjáum fyrir okkur
að þetta björgunartæki muni nýtast
vel þegar sinna þarf leit og björgun
við erfiðustu veðuraðstæður. Við
getum farið með bílinn upp á jökla,
út í verstu veður þar sem jafnvel
ekki er hægt að koma við öðrum
bílum eða tækjum. Þá fylgir einnig
með vörubíll sem notaður verður
til flutnings nær vettvangi leitar eða
björgunar,“ segir Elín Matthildur.
mm
Brák afhent fjölnota
björgunartæki til frjálsra afnota
Björgunartækið á palli vörubílsins sem jafnframt fylgir með í lánssamningnum. Ljósm. emk.