Skessuhorn - 16.11.2022, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 7
Verkefnið Jól í skókassa á vegum
KFUM og KFUK á Íslandi hefur
undanfarin 19 ár falist í því að
gleðja börn í Úkraínu sem búa við
bágar aðstæður og gefa þeim nyt-
samar og góðar jólagjafir. Gjaf-
irnar eru settar í skókassa og til að
öll börnin fái svipaðar gjafir eru
ákveðnir hlutir sem mælt er með
að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru
síðan sendar til Úkraínu þar sem
stríð geisar nú ofan í aðra neyð
landsmanna.
Íslensku skókössunum er meðal
annars dreift á munaðarleysingja-
heimili, barnaspítala og til barna
einstæðra mæðra sem búa við sára
fátækt. Gjöfunum hefur fjölgað
ár frá ári og um síðustu helgi
var 5.575 pökkum komið fyrir í
gámum og þeir sendir utan. „Við-
tökur almennings hafa aldrei verið
betri,“ segir Axel Gústafsson sjálf-
boðaliði á Akranesi og félagsmaður
í KFUM og K, en hann hefur í
nokkuð mörg ár komið að söfnun-
inni hér á Vesturlandi ásamt fjölda
annarra. Í ár óskaði KFUM og K
sérstaklega eftir hlýjum fötum í
skókassana. Bar það árangur og þó
nokkurt magn prjónavara skilaði
sér í kassana.
Fjöldi fyrirtækja studdi verk-
efnið. Meðal þeirra eru Eimskip,
Góa, Samhentir kassagerð og
Lindex sem meðal annars gaf fjölda
kuldagalla að þessu sinni.
mm/ Ljósm. KFUM og K.
Mesta magn frá upphafi barst
í söfnunina Jól í skókassa
Skókössum pakkað og þeir gerðir klárir til flutnings.
Að endingu var kössunum komið fyrir
í fjörutíu feta gámi sem nú er á leiðinni
til Úkraínu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
GOTT KVÖLD FIMMTUDAGINN 17. NÓV.
OPIÐ TIL KL. 22
15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM, AUK SÉRTILBOÐA.
GJAFAPAKKNINGARNAR komnar.
30% af völdum dömufatnaði og snyrtivörum.
TVENNUTILBOÐ: Herrapeysa+stuttermabolur
aðeins kr. 9.990,-
KYNNINGAR: Á DYRBERG/KERN skartgripalínunni.
YSL snyrtivörum, og áletrun á varaliti.
LUKKUPOTTUR OG LÉTTAR VEITINGAR
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
AUGLÝSING
Skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi
Stykkishólms og tveggja nýrra deiliskipulagstillagna
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt að
auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi
Stykkishólms 2002-2022 og tillögur að nýjum
deiliskipulagsáætlunum fyrir grænan iðngarð við
Kallhamar og stækkun athafnasvæðis við Hamraenda.
Lýsingin er sett fram í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. og
1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með vísan í 1.
mgr. 36. gr. laganna.
Skipulagslýsingin er birt á vef Stykkishólmsbæjar og
liggur frammi á bæjarskrifstofu til og með 6. desember
2022, þannig að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geti kynnt
sér hana og sent inn ábendingar sem varða tillögugerðina.
Lýsingin er jafnframt send Skipulagsstofnun og öðrum
aðilum til umsagnar eins og skipulagslög gera ráð fyrir.
Skipulagslýsingin verður kynnt sérstaklega á opnu húsi,
sem haldið verður miðvikudaginn 30. nóvember kl. 17-18 í
Amtsbókasafninu í Stykkishólmi.
Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar
og berast skipulagsfulltrúa til og með 6. desember 2022
að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið:
skipulag@stykkisholmur.is.
Stykkishólmi, 14. nóvember 2022.
Kristín Þorleifsdóttir
Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar