Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 20228
Unga fólkið
fundaði
AKRANES: Síðdegis í gær
var fundur í bæjarstjórn unga
fólksins haldinn á Dalbraut 4
á Akranesi. Fulltrúar úr Ung-
mennaráði Akraness tóku þar
sæti í bæjarstjórn í tuttugasta
og fyrsta sinn. Ungmennaráð
er skipað níu fulltrúum nem-
endafélaga grunnskólanna,
nemendafélags FVA, Tónlist-
arskóla Akraness, fulltrúa ÍA
og fulltrúum félagsmiðstöðv-
anna tveggja, þ.e. Arnardals og
Hvíta hússins. Bæjarfulltrúar
Akraneskaupstaðar sátu fund-
inn og svöruðu erindum ung-
mennanna. -vaks
Atvinnuleitendur
fá desember
uppbót
LANDIÐ: Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, félags- og
vinnumarkaðsráðherra, hefur
undirritað reglugerð um
greiðslu desemberuppbótar
til atvinnuleitenda. Óskert
desemberuppbót er 94.119
krónur. Atvinnuleitendur
með börn á framfæri fá jafn-
framt sérstaka desemberupp-
bót fyrir hvert barn yngra en
18 ára. Rétt á fullri desember-
uppbót eiga þau sem stað-
festa atvinnuleit á tímabilinu
20. nóvember til 3. desem-
ber 2022 og hafa verið að fullu
tryggð innan atvinnuleysis-
tryggingakerfisins í samtals
tíu mánuði eða lengur á árinu
2022. Greiðsla desember-
uppbótar til þeirra sem eiga
ekki fullan bótarétt innan
atvinnuleysistryggingakerfis-
ins reiknast í hlutfalli við rétt
þeirra til atvinnuleysisbóta á
árinu 2022 og fjölda mánaða
sem viðkomandi hefur fengið
greiddar atvinnuleysisbætur.
Uppbótin verður þó aldrei
lægri en sem nemur 23.530
krónum. Uppbót vegna
barns eða barna tekur engum
skerðingum heldur nemur í
öllum tilvikum sex prósentum
af óskertri desemberuppbót
eða 5.647 krónum með hverju
barni. Vinnumálastofnun mun
greiða desemberuppbót til
atvinnuleitenda eigi síðar en
15. desember næstkomandi.
-mm
Ein bjartasta von
netöryggismála
LANDIÐ: Guðrún Valdís
Jónsdóttir frá Akranesi vann
til verðlauna á ráðstefnunni
Nordic women in tech sem
fram fór í Gautaborg í Svíþjóð
í síðustu viku. Guðrún starfar
hjá íslenska fyrirtækinu Syndis
sem yfirmaður upplýsinga-
öryggis og ráðgjafi á því sviði.
Guðrún lærði tölvunarfræði
í Princeton í Bandaríkjunum
og starfaði við netöryggismál
í New York áður en hún hóf
störf sín hjá Syndis. Guðrún
hefur getið sér gott orðspor í
upplýsingaöryggisstjórnun og
hlaut verðlaunin Rising star
of the year, eða rísandi stjarna
ársins. Verðlaunin eru veitt
upprennandi tæknisérfræðingi
sem sýnt hefur fram á ein-
staka sköpunargáfu og getu á
sínu sviði. Einnig er handhafi
verðlaunanna talinn eiga mikla
möguleika á að verða fram-
tíðarleiðtogi í fagi sínu. -sþ
Aflatölur fyrir
Vesturland
5. nóvember –
11. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 17.683 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 10.373
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi: 5 bátar.
Heildarlöndun: 78.371 kg.
Mestur afli: Stakkhamar
SH: 24.858 kg í þremur
löndunum.
Grundarfjörður: 5 bátar.
Heildarlöndun: 309.716 kg.
Mestur afli: Valdimar GK:
87.346 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 8 bátar.
Heildarlöndun: 158.774 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvars
SH: 72.693 kg í fjórum
róðrum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 405.126 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
101.054 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 14.018 kg.
Mestur afli: Bára SH: 7.410
kg í þremur löndunum.
1. Tjaldur SH – RIF:
101.054 kg. 7. nóvember.
2. Örvar SH – RIF:
100.061 kg. 8. nóvember.
3. Valdimar GK – GRU:
87.346 kg. 7. nóvember.
4. Rifsnes SH – RIF:
80.941 kg. 6. nóvember.
5. Runólfur SH – GRU:
61.377 kg. 7. nóvember.
-sþ
Íbúar á Vesturlandi voru 17.462
talsins þriðjudaginn 1. nóvem-
ber síðastliðinn. Á ellefu mánaða
tímabili frá 1. desember 2021 og
til 1. nóvember sl. hefur fjölgað
í öllum sveitarfélögum á Vestur-
landi, utan Dalabyggðar þar sem
fækkaði um fjóra á tímabilinu, eða
um 0,6%. Athygli vekur að nú
vantar einungis 52 upp á að íbúa-
fjöldinn á Akranesi nái átta þúsund.
Íbúafjöldi var þannig 1. nóvem-
ber síðastliðinn, samkvæmt saman-
tekt Þjóðskrár:
Akraneskaupstaður, 7.948 íbúar
Skorradalshreppur, 60 íbúar
Hvalfjarðarsveit, 754 íbúar
Borgarbyggð, 4.064 íbúar
Grundarfjarðarbær, 867 íbúar
Eyja og Miklaholtshreppur, 111
íbúar
Snæfellsbær, 1.681 íbúar
Stykkishólmsbær, 1.318 íbúar
Dalabyggð, 659 íbúar
mm
Allt að sjöfaldur munur
á rekstrarkostnaði
grunnskóla deilt á barn
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur gefið út yfirlit yfir rekstrar-
kostnað á hvern grunnskólanem-
anda eftir stærð skóla árið 2021.
Um er að ræða beinan rekstrar-
kostnað á almenna grunnskóla
sveitarfélaga. Sérskólar eru þar ekki
meðtaldir og miðlægur kostnaður
t.d. vegna skólaskrifstofa er heldur
ekki talinn með. „Að gefnu tilefni
er bent á að margvíslegar ástæður
geta orsakað mun á lykiltölum eftir
skólum og/eða sveitarfélögum.
Hafa ber í huga að landfræðilegar
aðstæður, eða breytur eins og sam-
setning og aldur starfsfólks í skóla
getur haft áhrif á niðurstöður og
því gagnlegt fyrir sveitarfélög að
kanna nánar í hverju munurinn
felst,“ segir í tilkynningu SÍS.
Reiknaður er rekstrarkostnaður
með og án innri leigu og skóla-
aksturs. Innri leiga er þó verulega
stærri hluti af rekstrarkostnaði en
skólaakstur. Árið 2021 var rekstr-
arkostnaður á hvern nemanda að
meðaltali ríflega 2,2 milljónir króna
þegar innri leiga (og skólaakstur) er
tekið með. Án innri leigu er með-
alkostnaður á hvern nemanda 1,8
milljón. Mikill munur er á rekstr-
arkostnaði á hvern nemanda eftir
stærð skóla og eðli málsins sam-
kvæmt er hann lægstur þar sem t.d.
er enginn skólaakstur. Mun fleira
spilar þó inní, t.d. sérkennsla, fjöldi
nemenda í bekkjardeildum og fleira.
Munur milli skóla
og einnig innan
sveitarfélaga
Eftirfarandi upplýsingar sýna
brúttókostnað á hvern nemanda í
grunnskólum á Vesturlandi. Hann
er lægstur í fjölmennasta grunn-
skólanum á Vesturlandi, Grunda-
skóla á Akranes ríflega 1,6 milljón
króna á hvern nemanda. Að sama
skapi er brúttókostnaður lang-
hæstur í fámennasta skóla lands-
hlutans, Laugargerðisskóla í Eyja-
og Miklaholtshreppi, þar sem
útlagður kostnaður við hvert barn
er 10,65 milljónir króna. Í Borgar-
byggð er kostnaður á bak við hvern
nemanda í dreifbýlisskóla ríflega
milljón krónum hærri en í skól-
anum í þéttbýlinu.
Brekkubæjarskóli Akranesi,
1.943 þúsund krónur pr. barn
Grundaskóli Akranesi,
1.628 þúsund krónur pr. barn
Heiðarskóli Hvalfjarðarsveit,
3.816 þúsund krónur pr. barn
Grunnskóli Borgarfjarðar, 3.366
þúsund krónur pr. barn
Grunnskólinn í Borgarnesi,
2.344 þúsund krónur pr. barn
Grunnskóli Grundarfjarðar,
2.837 þúsund krónur pr. barn
Grunnskólinn í Stykkishólmi,
2.492 þúsund krónur pr. barn
Laugargerðisskóli
Eyja og Miklah.hr.,
10.656 þúsund krónur pr. barn
Grunnskóli Snæfellsbæjar, 3.179
þúsund krónur pr. barn
Auðarskóli í Dölum,
3.059 þúsund krónur pr. barn.
mm
Fjölgun í nær öllum
sveitarfélögum á Vesturlandi
Þann 1. nóvember slíðastliðinn vantaði einungis 52 íbúa upp á að fjöldinn færi í 8.000 á Akranesi.