Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 9
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ljóst er að Vegagerðin leggur mikla
áherslu á að lágmarka umhverfis-
áhrif vegarins um Teigsskóg. Fram-
kvæmdir á Vestfjarðavegi (60) um
Gufudalssveit ganga vel eins og
fram kemur í myndbandi um fram-
kvæmdina sem Vegagerðin hefur
látið vinna. Áfangarnir í þessu stóra
verkefni eru fimm; einum er lokið,
þrír eru í framkvæmd og enn á eftir
að bjóða út þann síðasta. „Það er
mikil þörf fyrir betri veg hér um
svæðið. Niðurstaðan var sú að fara
yfir Þorskafjörðinn og í gegnum
Teigsskóg, þar yfir Djúpafjörð og
síðan yfir Gufufjörð,“ segir Sigur-
þór Guðmundsson verkefnastjóri
Vegagerðarinnar í framkvæmdum
við verkið Vestfjarðavegur (60) um
Gufudalssveit.
Áfangarnir í verkinu eru fimm:
Gufufjörður — tenging við
Vestfjarðaveg (lokið)
Þverun Þorskafjarðar (í fram-
kvæmd)
Þórisstaðir – Hallsteinsnes, um
Teigsskóg (í framkvæmd)
Djúpifjörður — tenging við
Vestfjarðaveg (í framkvæmd)
Hallsteinsnes – Skálanes, þverun
Gufufjarðar og Djúpafjarðar (á
eftir að bjóða út).
Hafist var handa við fram-
kvæmdir um Teigsskóg í sumar
og er Borgarverk verktaki í fram-
kvæmdinni. Vegagerðin segir
mikla áherslu lagða á að minnka
umhverfisáhrif framkvæmdanna
eins og hægt er. „Við ætlum að
vanda okkur eins og hægt er að
fara hér um þann fræga Teigs-
skóg. Helst þannig að við getum
séð fyrir okkur að vegurinn hafi
nánast dottið af himnum ofan. Við
viljum halda gróðri sem bestum
og ná að endurheimta hann raun-
verulega,“ segir Sigurþór en það
er gert með því að fletta um 20
cm ofan af gróðurtorfum og
svarðalagi í vegstæðinu. Svarða-
lagið verður síðan endurnýtt með
því að leggja það aftur út í veg-
kanta samhliða því sem vegur-
inn er byggður upp. „Við erum
með Náttúrustofu Vestfjarða með
okkur í liði í þessu og erum með
vöktunaráætlun til næstu ára um
framkvæmdina og árangurinn af
endurheimtinni,“ lýsir Sigurþór
og leggur áherslu á að Vegagerðin
stefni eindregið að því að þetta
heppnist vel.
Framkvæmdir allra áfanga
ganga vel. „Við erum langt komin
með Þorskafjörðinn og erum
byrjuð að vinna í Teigskógi. Þá
erum við búin að leggja nýjan veg
í Gufufirði og erum að klára veg í
Djúpafirði líka.“ Þverun Þorska-
fjarðar ein og sér mun stytta
leið milli byggðalaga um 9 km
og þegar öllum framkvæmdum
verður lokið hefur leiðin milli
Reykjavíkur og Ísafjarðar verið
stytt um 50 km og eru þá Dýra-
fjarðargöng meðtalin.
Í myndbandi Vegagerðarinnar
um framkvæmdirnar er einnig rætt
við Jóhönnu Ösp Einarsdóttur
formann stjórnar Vestfjarðastofu.
Hún lýsir ánægju sinni með lang-
þráðar vegabætur og hlakkar til
að geta ekið láglendisveg í stað-
inn fyrir að fara daglega til vinnu
yfir heiðarnar Ódrjúgsháls og
Hjallaháls.
Þá er rætt við Einar Val Val-
garðsson verkstjóra hjá Suður-
verki sem er verktaki í fram-
kvæmdunum við þverun Þorska-
fjarðar. Hann segir framkvæmdir
ganga vel við þessa 260 metra
löngu brú. Aðstæður á verkstað
séu þó oft erfiðar yfir veturinn.
Hann segir þverunina koma til
með að breyta miklu í framtíðinni,
bæði með styttingu á vegalengd
og ekki síður með öruggari vega-
samgöngum milli byggðarlaga.
Myndband Vegagerðarinnar,
sem vísað er til í fréttinni, má
finna á vef Skessuhorns í frétt sl.
mánudag.
mm
Vandað til vegagerðar
í Teigsskógi
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér...
Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum
Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur
Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla
Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu
Mikil sala
og gott kaffi
Við erum með bílinn fyrir þig!
Dagskrá
1) Setning samkomunnar
2) Ávarp fulltrúa bæjarins.
Ávarp fulltrúa Skógræktar
félags Íslands
3) Hópsöngur
4) Skógræktarfélag Akraness í
80 ár Stutt samantekt
5) Veitingar í boði félagsins
6) Framtíð skógræktar á Akra
nesi. Að hverju skal stefna?
Stutt umfjöllun hvers fulltrúa
og síðan umræður. Fulltrúar
félagsins fulltrúar bæjarins
fulltrúar Skógræktarfélags
Íslands
7) Fyrirspurnir/umræður
8) Hópsöngur/fundarslit
Allir hjartanlega velkomnir
Skógræktarfélag Akraness
fagnar 80 ára afmæli sínu
Afmælisfundur í Jónsbúð
mánudaginn 21. nóvember kl. 18