Skessuhorn - 16.11.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202212
Í haust rann út samningur Veiði-
félags Andakílsár og Stangaveiði-
félags Reykjavíkur (SVFR) um sölu
veiðileyfa, en það samstarf hefur
staðið í tvo áratugi. Veiðifélagið
hefur í framhaldinu samþykkt að
taka sjálft yfir sölu veiðileyfanna
og hefur í tengslum við það samið
við Kristján Guðmundsson um að
sinna þeim þætti fyrir eigendur
næstu tvö til þrjú árin. Samningur
þessa efnis var samþykktur sam-
hljóða á fundi veiðifélagsins 6. nóv-
ember sl.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir,
formaður veiðifélagsins, segir að
nokkrir hafi á síðustu tveimur árum
sýnt því áhuga að koma að rekstri
árinnar en á endanum hafi verið
ákveðið að reyna fyrirkomulag sam-
bærilegt því sem er í Norðurá og
hefur gefist vel. Samhliða breyttu
sölufyrirkomulagi verður unnið að
uppbyggingu vatnasvæðisins sem
og að bættum húsakosti og aðstöðu
veiðimanna. Á þeim 20 árum sem
SVFR hefur séð um sölu veiðileyfa
hefur heilmikið verið byggt upp á
svæðinu og vill Ragnhildur, fyrir
hönd veiðifélagsins, koma á fram-
færi þakklæti fyrir það starf sem
þar var unnið og eins samstarf við
tengiliði liðinna ára.
Kristján sölustjóri kveðst stoltur
að vera treyst fyrir verkefninu og að
spennandi tímar væru fram undan
við söluna og þau verkefni er lúta
að uppbyggingu svæðisins. Mik-
ill metnaður væri til staðar og vilji
til að gera vel í þeim úrbótum sem
stefnt er á. Sala veiðileyfa vegna
veiðisumarsins 2023, hófst í gær.
Áhugasömum er bent á að setja sig
í samband við Kristján í gegnum
netfangið sala@andakilsa.is. Að
sögn Ragnhildar í Ausu er nú þegar
mikil eftirspurn og áhugi hjá veiði-
mönnum. Á síðasta sumri komu
349 laxar á land úr Andakílsá.
mm
Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á
fundi sínum síðastliðinn fimmtu-
dag til afgreiðslu drög að fjár-
hagsáætlun fyrir 2023 og fimm ára
áætlun. Samþykkt var að útsvar
verður óbreytt, þ.e. 14,52%. Í
rekstraráætlun er gert ráð fyrir
tapi öll árin sem áætlunin nær yfir,
en minnstu tapi á næsta ári, 16,6
mill jónum króna. Í bókun byggð-
arráðs, sem meirihluti sveitar-
stjórnar samþykkti, sagði að drög
að fjárfestingar áætlun sýndi fjár-
festingaráform upp á 1,1 milljarð
króna á árinu 2023 og um 5,6 millj-
arða króna á næstu fjórum árum.
Að stærstum hluta er um að ræða
fjárfestingu í íþróttamannvirkjum,
skólum og í gatnagerð. Stærstu
einstöku framkvæmdir sem falla til
á næsta ári eru stækkun leikskólans
Uglukletts (350 m.), GBF á Klepp-
járnsreykjum (192 m.), ráðhús í
Borgarnesi (125 m.), gatnagerð og
fyrstu framkvæmdir við fjölnota
íþróttahús í Borgarnesi (100 m.).
Í bókun byggðarráðs sagði:
„Fyrir sjáanlegt er að fjárfestingar
í átt að slíkri fjárhæð eru háðar
sterku sjóðstreymi frá rekstri,
skýrri forgangsröðun í fjárbindingu
og að ytri aðstæður séu hagfelldar.
Núverandi aðstæður á fjármagns-
markaði eru t.d. þess eðlis að stór
lántaka er líklega ekki hagfelld.
Byggðarráð vísar áframhaldandi
vinnu við drög að fjárfestingar-
áætlun til fyrri umræðu í sveitar-
stjórn en mikilvægt er að næstu
skref vinnunnar feli í sér áfram-
haldandi mat á skuldsetningu og
skulda- og rekstrarhlutföllum, svo
sem í samhengi við markmiða-
setningu í „Brúnni til framtíðar“,“
sagði í bókuninni sem fulltrúar
meirihlutans í sveitarstjórn sam-
þykktu, en Lilja Björg Ágústsdóttir
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í byggðar-
ráði sat hjá við afgreiðsluna. Sam-
þykkt var á fundi sveitarstjórnar sl.
fimmtudag að vísa áætluninni til
síðari umræðu í sveitarstjórn.
Lán fyrir fjárfestingum
Á fundi sveitarstjórnar lagði Lilja
Björg fram ítarlega bókun þar
sem hún átelur meirihluta Fram-
sóknarmanna fyrir að leggja fram
fjárfestingaáætlun sem muni að
óbreyttu sökkva sveitarfélaginu í
óviðráðanlegar skuldir. Þar sagði
hún m.a: „Sú fjárhagsáætlun sem
lögð er fram til fyrri umræðu hér í
dag fyrir árið 2023 og fjárheimildir
áranna 2024 - 2026, bera því miður
með sér dapra framtíðarsýn fyrir
okkar ágæta sveitarfélag. Gert er
ráð fyrir fjárfestingum upp á rúm-
lega 5 milljarða á fjórum árum sem
er vel, en algjörlega án þess að máta
þau loforð við fjárhag sveitarfélags-
ins eins og ber að gera samkvæmt
lögum. Áætlað er að taka nán-
ast allar fjárfestingar að láni, þrátt
fyrir að einstaklega óhagkvæmt sé
að taka lán nú, þar sem verðbólga
er tæplega 10% og erfitt að meta
áhrif lausra kjarasamninga á fjárhag
sveitarfélagsins næstu ár.“
Þá vísar Lilja Björg til sveitar-
stjórnarlaga þar sem kveðið er á um
viðmiðanir um afkomu og fjárhags-
stöðu sveitarfélaga komi fram skylda
sveitarstjórnar til að sjá til þess að
rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun
eigna og sjóða sé þannig hagað
á hverjum tíma að sveitarfélagið
muni til framtíðar geta sinnt skyldu-
bundnum verkefnum sínum. „Sam-
kvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun
fyrir Borgarbyggð skilar samstæða
A og B hluta Borgarbyggðar nei-
kvæðri rekstrarniðurstöðu á árunum
2022, 2023, 2024, 2025 og 2026 þ.e.
öll árin sem áætlunin tekur til. Það
gerir samtals tæplega 800 milljónir
yfir allt tímabilið. Þar með er ljóst
að ef undanþáguheimildin frá jafn-
vægisreglu væri ekki í gildi þá má
færa fyrir því rök að brotið væri á
jafnvægisreglunni, að minnsta kosti
fara mörg rauð flögg á loft,“ segir
Lilja Björg.
„Ef aðeins er horft til þess
tímabils sem tekur til áranna 2024,
2025 og 2026, sem eru þau ár þar
sem áætlað er að jafnvægisreglan
taki aftur gildi, þá er rekstrarhall-
inn á A og B hluta tæplega 600
milljónir. Þá verður skuldahlutfall
sveitarfélagsins komið upp í 155%
við lok tímabilsins en eðli máls
samkvæmt má gera ráð fyrir að
reksturinn sé orðinn frekar þungur
þegar staðan er með þeim hætti.“
Loks segir Lilja í bókun sinni:
„Ákvarðanafælni Framsóknar-
manna er slík að þau eru frekar til-
búin að virða að vettugi ábendingar
frá eftirlitsnefnd og viðmiðunar-
reglur laga, en að setjast niður og
fara í þá vinnu sem þarf, þ.e. for-
gangsraða verkefnum og gera
raunhæfa fjárhagsáætlun. Það er
erfitt að horfast í augu við þá stað-
reynd að þau loforð sem gefin voru
í aðdraganda kosninga hafa hrein-
lega verið allt of mörg, alltof of
umfangsmikil og langt frá því að
vera raunhæf.“
Góð þjónusta og
skilvirkur rekstur
Í greinargerð meirihluta sveitar-
stjórnar með fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins segir: „Áætl-
anir endurspegla mikil og vaxandi
umsvif í sveitarfélaginu og veru-
lega fjárfestingarþörf til að mæta
fjölgun íbúa og efla þjónustustig.
Rekstrarumhverfi sveitarfélaga er
hins vegar krefjandi, verðbólga fór
úr rúmum 4% í tæp 10% á einu
ári, laun starfsmanna sveitarfélaga
hafa hækkað ríflega m.v. aðra laun-
þegahópa síðustu þrjú ár og kom-
andi kjaraviðræður gætu reynst
krefjandi. Þá hafa einstaka mála-
flokkar sem færst hafa frá ríkinu til
sveitarfélaga síðustu ár verið van-
fjármagnaðir. Fyrir sveitarfélag þar
sem þorri skulda er verðtryggður
og kostnaður að megninu til laun
þá eru verðbólguskot og launaskrið
vondur kokteill.“
Þá segir í greinargerðinni að
Borgarbyggð þurfi að leggja
megináherslu á góða þjónustu og
skilvirkan rekstur, með megin-
áherslu á kjarnastarfsemi sveitarfé-
lagsins. Skoða þarf hvar og hvernig
efnahagsreikningur og fjárbinding
sveitarfélagsins styður við kjarna-
reksturinn og hvar ekki. Þá segir:
„Ef sjóðstreymi styrkist ekki er
ljóst að fjárfesting verður að lang-
mestu leyti fjármögnuð með lán-
töku. Sú aukning skulda getur gert
sveitarfélaginu erfitt um vik með
að viðhalda jákvæðri rekstrarniður-
stöðu.“ Meirihluti sveitarstjórnar
tekur þannig undir með Lilju
Björgu fulltrúa minnihlutans sem
gagnrýnir harðlega að fjárfesting
verði að mestu eða öllu leyti fjár-
mögnuð með lántöku.
Loks bendir meirihlutinn á í
greinargerð sinni að vinna þurfi
að bættum rekstri sveitarfélags-
ins; „skoða þarf hvar tilefni er til
að selja eignir og tímasetning lán-
töku þarf að taka mið af kjörum.
Þá skiptir máli að sveitar félagið
reyni að haga fjárfestingum
þannig að tíma setning stuðli að
því að treysta jafnvægi á vinnu-
markaði í sveitar félaginu en ýti
ekki undir þenslu í samkeppni
við fyrirtækin. Hins vegar verði
sveitarfélagið tilbúið að fjárfesta
þegar atvinnuástand versnar.
Verk efnið framundan að tryggja
að rekstur sé skilvirkur og að fjár-
binding sveitarfélagsins bein-
ist fyrst og fremst að þeim verk-
efnum sem sveitarfélaginu er
ætlað að sinna.“
mm
Landeigendur taka yfir sölu veiðileyfa í Andakílsá
Sveitarsjóður gerður upp með tapi næstu fimm árin
Fulltrúi minnihlutans telur fjárfestingaáætlun úr takti við getu sveitarsjóðs
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.
Kristján Guðmundsson og Ragnhildur Helga Jónsdóttir handsala nýja samninginn. Ljósm. Veiðifélag Andakílsár.