Skessuhorn - 16.11.2022, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 13
Í nóvember býður Íþróttafélagið
Undri í Dalabyggð upp á gjald-
frjálsar ferðir í frístundabíl sem
ekið er á milli Búðardals og Lauga
í Sælingsdal þrisvar í viku en þar
eru íþróttahús og sundlaug sveitar-
félagsins staðsett. Um er að ræða
tilraunaverkefni en Undri fékk
einnar milljónar krónu styrk frá
Dalabyggð fyrir verkefninu og er
því hægt að bjóða upp á þjónustuna
gjaldfrjálsa fyrst um sinn. Þrisvar
í viku eru íþróttaæfingar inni á
Laugum og hafa æfingatímar tekið
mið af því að foreldrar keyri börnin
á æfingar. „Við erum með þessu
að líkja eftir því að það sé íþrótta-
hús inni í Búðardal, og styttum
þannig daginn hjá börnunum því
ef foreldrar þurfa að keyra börn á
æfingar þá geta æfingar ekki byrjað
fyrr en klukkan hálf fimm, að
loknum vinnudegi foreldra,“ segir
Rúna Blöndal, formaður Undra, í
samtali við Skessuhorn.
Slysavarnadeildin gaf
tólf sessur í bílinn
Þegar hugmyndin að frístunda-
bílnum kom fyrst inn á borð hjá
Undra var helsti þröskuldurinn sá
að ung börn myndu sitja stólalaus
í bílnum en samkvæmt Umferðar-
stofu mega börn vera stólalaus í
hópferðarbílum. „Ég er sjálf ekki
hrifin af því og fannst það mót-
sagnarkennt að börn notuðu bíl-
stól í skólabílnum en ekki í frí-
stundabílnum,“ segir Rúna, en það
mál var fljótleyst. Slysavarnadeild
Dalasýslu gaf Undra tólf sessur
með baki til að hafa í frístunda-
bílnum. „Við erum ótrúlega þakk-
lát fyrir þá rausnarlegu gjöf og tólf
sessur nægja til þess að öll börn í
fyrsta og öðrum bekk geti verið á
sessu í bílnum.“ Foreldrar barna í
3. og 4. bekk geta svo óskað sér-
staklega eftir því að þeirra barn sitji
á sessu en mælst er til þess að öll
börn undir 135 cm hæð noti bílstól
eða sessu.
Frístundabíllinn leggur af stað á
æfingar á þriðjudögum og fimmtu-
dögum strax að lokinni síðustu
kennslustund hjá börnum í yngstu
bekkjum skólans. Þá aðstoða skóla-
liðar á vegum Auðarskóla krakk-
ana við að fara upp í réttan bíl á
réttum tíma. „Ég sendi sem sagt
skráningarlistann í frístundabíl-
inn í skólann og skólinn tekur við
keflinu þar og hjálpar krökkunum
að fara í réttan bíl. Skólaliðar eru
þar með lista til að fara eftir og for-
eldrar þurfa að láta skólann vita ef
forföll verða eða ef börn þeirra eiga
ekki að fara á æfingu þann daginn,“
segir Rúna.
Meiri aðsókn á æfingar
Strax hefur aðsókn á æfingar aukist
til muna, að sögn Rúnu, og sækja
krakkarnir frekar allar æfingar, í
stað þess að velja á milli daga. „Við
erum komin úr því að vera með
tíu krakka á æfingu og upp í átján.
Foreldrarnir eru líka ánægðir með
þetta tilraunaverkefni og þeim sem
ég hef talað við finnst sjálfsagt að
taka þátt í kostnaði við bílinn ef
við verðum með hann áfram en við
munum alltaf reyna að halda þeim
kostnaði í lágmarki.“
Rúna segir að mikilvægt hafi
verið að koma þessu tilraunaverk-
efni af stað núna því íþrótta æfingar
fara í jólafrí í byrjun desember og
þá gefst forsvarsmönnum Undra
kostur á að vega og meta hvernig
gengið hafi með frístundabílinn
þessar fjórar vikur í nóvember.
„Við þurfum þá að sjá hvort bíll-
inn sé laus áfram eftir áramót og
hvort það sé laus mannskapur til að
keyra hann. Við reiknum svo með
að sækja aftur um styrk hjá Dala-
byggð fyrir framhaldinu og sjáum
hvað kemur út úr því.“
Undri fékk tvo
styrki úr DalaAuð
Fyrr í nóvember fékk Undri
tvo styrki úr Frumkvæðis-
sjóði DalaAuðs; 200.000 króna
hvatningar styrk til þarfagreiningar
við rafíþróttadeild félagsins og
1.000.000 króna styrk til kaupa á
fimleikabúnaði en í haust hófust þar
fimleikaæfingar. „Við erum búin að
festa kaup á loftdýnu, trampólíni
og annarri dýnu og svo keyptum
við stóran og góðan hátalara. Hluti
af þeim búnaði er kominn og þegar
kominn í notkun,“ segir Rúna.
Fjölbreytt úrval æfinga
Einungis eitt skráningargjald
er í Undra og sértu skráður í
félagið ertu gjaldgengur á allar
skipulagðar æfingar á vegum þess.
Með því gefst börnum kostur
á að prófa það sem í boði er án
þess að skuldbinda sig við eina
ákveðna íþrótt önnina á enda. Nú
á haustönn er boðið upp á fót-
bolta, blak, fimleika, rafíþróttir
og íþróttagrunn og íþróttaskóli
er fyrir börn á leikskólaaldri
annan hvern laugardag. „Íþrótta-
grunnurinn er mjög vinsæll, sér-
staklega meðal yngstu krakk-
anna, en þar erum við að kynna
allar íþróttir sem okkur dettur í
hug, körfubolta, blak, badmin-
ton, o.fl. og krökkunum finnst það
spennandi,“ segir Rúna. Þá eru um
tíu krakkar sem mæta á rafíþrótta-
æfingar en Undri er með aðstöðu
fyrir þær æfingar í Rauða Kross
húsinu í Búðardal. Krakkarnir
koma með sínar tölvur þangað og
spila flest Minecraft.
Einu sinni í viku er svo kennd
líkamsrækt fyrir 65 ára og eldri og
er góð mæting í það.
Reyna að elta
áhuga hjá fólki
Nú í nóvember hófst grunn-
námskeið í Crossfit á vegum Undra,
en það er sex vikna námskeið fyrir
ungmenni, 13-20 ára, og segir Rúna
að það hafi borist fyrirspurnir um
hvort slíkt námskeið verði ekki í
boði líka fyrir fólk eldra en tvítugt.
„Eftir að við auglýstum grunnnám-
skeiðið lýstu þó nokkrir yfir von-
brigðum með að þeir væru of gamlir
til að mæta á það. Við hjá Undra
höfum verið að elta áhuga hjá fólki
og reyna að mæta þeirra eftirspurn
og ef það er stemning fyrir áfram-
haldi í þessari íþrótt þá hef ég fulla
trú á því að við reynum að mæta
því.“ bþ/ Ljósm. aðsendar
Frístundabíll keyrir nú milli Búðardals og Lauga
Fimleikaæfingar eru kenndar einu sinni í viku. Hressir krakkar í Undra á fótboltamóti.
Slysavarnadeild Dalasýslu gaf Undra tólf sessur með baki til að hafa í frístunda-
bílnum. Ljósm. sd