Skessuhorn - 16.11.2022, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202214
Nöfnurnar og dýralæknarnir
Kristín Þórhallsdóttir og Kristín
Inga Karlsdóttir hafa ákveðið að
hefja formlegt samstarf með því að
stofna Dýralæknasetrið sf. Kristín
Þórhallsdóttir er frá Laugalandi í
Stafholtstungum í Borgarfirði og
hefur rekið dýralæknastofu þar
undanfarin sex ár. Hún útskrif-
aðist frá Kaupmannahafnarháskóla
í byrjun árs 2013 og hefur því öðl-
ast tíu ára starfsreynslu. Kristín
Þórhalls segist spennt yfir kom-
andi breytingum en hún sér fyrir
sér samstarfið sem tækifæri til að
stuðla að betri uppbyggingu dýra-
læknaþjónustu á svæðinu. „Þetta
snýst helst um það að dýralæknar
sameini krafta sína, sem hefur verið
draumur minn lengi. Ég sé það
fyrir mér þannig að hér verði meiri
uppbygging og tækifæri til að bæta
þjónustu með meiri tækjabúnaði
og þess háttar. Svo hefur ekki verið
dýralæknaþjónusta í þéttbýlinu á
Akranesi undanfarin ár. Við von-
umst svo til að geta bætt við meiri
þjónustu, þ.e. að önnur okkar verði
alltaf við og auðveldara verði þá að
ná í okkur. Þá munum við starfa
við betri aðstæður og meiri upp-
byggingu. Síðan er það líka eflandi
fyrir okkur báðar að starfa saman í
okkar fagi,“ segir Kristín Þórhalls-
dóttir í samtali við Skessuhorn.
Með ársgamla tvíbura
Kristín Inga Karlsdóttir er nýflutt
heim frá Danmörku þar sem hún
kláraði fimm og hálfs ára nám sitt
í dýralækningum, einnig við Kaup-
mannahafnarháskóla, í nóvem-
ber 2021. Kristín Inga er alin upp
á Akranesi en býr nú í Kalastaða-
koti í Hvalfjarðarsveit, þar sem hún
stefnir á húsbyggingu ásamt manni
sínum og þremur sonum. Blaða-
maður Skessuhorns kíkti í kaffi til
Kristínar Ingu á þrítugsafmælis-
degi hennar síðastliðinn fimmtu-
dag þar sem hún er á lokametrum
fæðingarorlofs með ársgamla tví-
burasyni sína.
Fjölbreytt nám
„Ég er fædd og uppalin á Akra-
nesi, fjölskylda mín bjó þar þangað
til árið 2018. Þá keyptu foreldrar
mínir Kalastaðakot af systkinum
pabba, en afi og amma bjuggu hér
þegar ég var lítil. Þannig að ég ólst
upp á Akranesi og var einnig mikið
í sveit hér,“ segir Kristín Inga og
horfir á heimahagana út um eld-
húsgluggann. Hún segist hafa
áhuga á að þjónusta stór sem smá
dýr en hún býr yfir góðri reynslu
úr námi sínu. „Ég gat tekið vaktir
á spítalanum í skólanum til að
klára einingarnar á síðustu önn-
inni. Þannig að ég tók fjórar vikur á
smádýraspítalanum og fjórar vikur
á stórdýraspítalanum, þar sem við
vorum aðallega að sinna hestum.
Ég gerði svo verkefni sem tók átta
vikur á hestaklíník rétt fyrir utan
Kaupmannahöfn. Sú klíník sinnir
t.d. mörgum af bestu dressúr- og
hindrunarstökks hestum Dan-
merkur, þannig að ég fékk að sjá
hluti sem mér þætti snilld að geta
framkvæmt en námið býður upp á
ýmsa sérhæfingu. Maður sá hvað
möguleikarnir eru ótrúlega margir
þegar kemur að því að meðhöndla
hross. Ég fann þegar ég var að vinna
með smádýrunum síðasta sumar að
það á líka vel við mig. Það sama á
við um gæludýrin eins og með hest-
ana en meðhöndlunin býður upp á
gríðarlega marga möguleika. Dýra-
læknastarfið er ótrúlega fjölbreytt,
bæði út frá hlutverki dýranna og
ólíkum kröfum eigenda þeirra.
Núna í dag eru gæludýrin partur
af fjölskyldunni og fólk vill að
sjálfsögðu fá almennilega læknis-
þjónustu fyrir dýrin sín. Tækin og
prófin sem hægt er að framkvæma
til að greina og meðhöndla gæludýr
er orðin ótrúlega góð. En ég sem
sagt kláraði síðustu átta vikurnar af
náminu á þessari stóru hestaklíník
og fór svo beint í fæðingarorlof,“
segir Kristín Inga. Hún segir að
upphaflega hafi þau fjölskyldan
ekki ætlað að flytja strax heim, en
planið var að vera í fæðingarorlofi
úti í Danmörku. Þegar í ljós kom
að þau hjónin áttu von á tvíburum
breyttust húsnæðisáformin og þau
í framhaldinu tóku þá ákvörðun að
flytja fljótlega til Íslands til að vera
nær stuðningsneti sínu. „Það er
ekkert alveg tekið með annarri að
vera með tvö börn svo við tókum
ákvörðun um að flytja heim þar
sem það er gott að fá hjálp og hafa
stuðningsnet.“
Kristín fór í verknám
til Kristínar
Kristínarnar kynnast vegna slas-
aðrar hryssu í Kalastaðakoti. „Ég
kynntist Kristínu Þórhalls árið
2019 þegar hún kom að sinna slas-
aðari hryssu hjá okkur. Hún kom
vikulega til okkar í einhverja tvo
eða þrjá mánuði. Ég nefni þarna
við hana, þegar hún kemur í fyrstu
heimsóknina, að ég væri dýra-
læknanemi og í kjölfarið býður hún
mér að koma með sér í vitjanir. Ég
fór svo í verknám á vegum skólans
til hennar, sumarið 2020. Þegar ég
klára verknámið nefndi ég við hana
að ég væri alveg til í að fara í ein-
hvers konar samstarf. Það að þessi
hryssa hafi slasast varð sem sagt til
þess að við kynntumst og fórum að
vinna saman,“ segir Kristín Inga.
En er ekki ruglandi að vinna saman
og heita sama nafni? „Jú, fólk talar
mikið um þetta þegar við komum
í vitjanir en það hefur t.d. alltaf
verið hægt að aðgreina dýralækn-
ana í Borgarfirði, þá Gunnar Örn
og Gunnar Gauta, á seinna nafn-
inu þeirra. Ætli við verðum ekki
að aðskilja okkur bara sem Kristín
Þórhalls og Kristín Inga,“ segja þær
í sameiningu.
Stefna á að opna stofu
í hesthúsahverfinu
Hvenær kviknar svo hugmyndin
að því að opna stofu á Akranesi?
„Þegar mamma og pabbi byggja
hesthús á Akranesi nefndu þau
hvort ég myndi svo ekki vilja hafa
stofuna mína þar. Ég tók það ekkert
mjög alvarlega og pældi ekki mikið
í því. Kristín Þórhalls fer svo að tala
um það síðastliðið vor hvort við
eigum ekki að fara að drífa í þessu
og stofna saman stofu en það hefur
ekki verið dýralæknir á Akranesi í
þónokkuð mörg ár. Um leið og við
fjölskyldan flytjum heim til Íslands
í júlí, tókum við upp þráðinn
með foreldrum mínum; hvort við
mættum ekki nýta annað hesthúsið
þeirra og opna stofu þar. Við erum
búin að fara á fund með bygginga-
fulltrúa og það er búið að taka mjög
vel í þessa hugmynd. Ég sendi fyrst
fyrirspurn á Akraneskaupstað og
þetta var tekið fyrir á fundi en hest-
húsasvæðið á Akranesi er skilgreint
sem búfjársvæði, ekki bara hesta-
svæði, svo það er í raun ekkert
sem mælir gegn því að við megum
opna stofu þarna. Akraneskaup-
staður hefur almennt tekið vel í
þetta og þessu er bara tekið fagn-
andi. Þetta er 8.000 manna bæj-
arfélag og enginn starfandi dýra-
læknir á svæðinu. Við erum búnar
að teikna upp breytingar á húsnæð-
inu og nú er byggingafræðingur að
fara yfir þær. Í framhaldinu verða
þær sendar inn til bæjarins til sam-
þykktar. Við komum til með að
gera smá breytingar á hesthúsinu
en ég vonast til að um leið og allt
verður orðið samþykkt geti þetta
gengið hratt og vel fyrir sig. Okkur
langar bara að opna sem fyrst,“
segir Kristín Inga.
Framtíðarfyrir
komulagið
Samstarfið hjá þeim stöllum mun
m.a. felast í samvinnu og upp-
byggingu á aðstöðu og tækjabún-
aði. „Við verðum í rauninni með
tvær stofur. Stofan á Akranesi
verður kannski svona aðalstofan
þar sem við munum bæta við okkur
tækjabúnaði. Ég mun halda gælu-
dýraskoðunarherberginu sem ég
hef útbúið mér til að sinna gælu-
dýrunum í Borgarfirðinum svo fólk
í nágrenni við mig þurfi ekki að
keyra á eftir mér til Akraness til að
láta meðhöndla þau,“ segir Kristín
Þórhalls. Kristín Inga bætir svo við:
„Samstarf okkar felst líka í því að
við getum leitað til hvor annarrar.
Hún býr náttúrulega að tíu ára
reynslu sem er dýrmætt fyrir mig
en hún hefur verið mér ómetanleg
hjálp þar sem ég er nýútskrifuð. Við
sjáum fram á að geta framkvæmt
stærri inngrip sem er ekki hægt að
framkvæma einn síns liðs. Planið er
að geta bætt við okkur tækjabún-
aði, blóðgreiningartæki og röntgen
meðal annars. Við erum að vonast
til þess að geta sinnt þeim dýrum
sem við annars höfum þurft að
senda áfram á stofurnar í Reykja-
vík því að við höfum einfaldlega
ekki haft tækjakost til að greina
eða meðhöndla dýrið. Við erum
bara rosalega spenntar að byrja og
hlökkum til að geta veitt góða þjón-
ustu á dreifðara svæði.“
sþ
Sameina krafta og stofna Dýralæknasetrið
Nöfnurnar Kristín Inga Karlsdóttir og Kristín Þórhallsdóttir.
Smiðjutorgi, Smiðjuvöllum 32 • www.dotari.is
OPNUNARTÍMI
VIRKA DAGA KL. 11-19
HELGAR KL. 11-15
Verslum líka í heimabyggð
Smiðjutorgi, Smiðjuvöllum 32 • www.dotari.is
VELDU Á 990 KR/STK
HREKKJAVAKAN ER
BYRJUÐ HJÁ OKKUR
Þú finnur alltaf
eitthvað sniðugt í Dótarí!