Skessuhorn - 16.11.2022, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 17
hræddur við hestana en hann hefur
náð að sigrast á hræðslunni. Núna
ríður hann út og ég gaf honum
meira að segja hest í afmælisgjöf
þannig að hann er kominn á fullt
í þetta með mér.“
Þrífst á lærdómi
Það er mikil binding að vera með
hesta á húsum og fara þau Guðni
og strákarnir í hesthúsin á hverjum
degi til að gefa og moka út. „Þetta
er bara partur af rútínunni. Guðni
gefur á morgnana og ég og strák-
arnir förum svo upp í hesthús eftir
vinnu hjá mér. Svo þegar Guðni er
búinn að vinna kemur hann yfir-
leitt líka upp í hesthús og þá getur
annað okkar farið á bak. Hesta-
mennskan á stóran part í lífi okkar
og yfirleitt þegar við erum búin í
þeim verkum þá förum við heim í
kvöldmat og strákarnir fara svo að
sofa,“ segir Valgerður en hún elskar
að hafa nóg að gera. Aðspurð seg-
ist hún ekki kunna að horfa á sjón-
varp. „Fyrst þegar við fluttum
í Grundarfjörð var Guðni oft í
burtu, að keyra, og þá þreif ég öll
kvöld,“ segir Valgerður og hlær.
„Af því ég var ekki í neinu námi þá
hafði ég ekkert að gera þannig ég
bara þreif. En núna þrífst ég á lær-
dómi, eins skrítið og það hljómar.
Mér finnst voða kósí að sitja við
tölvuna á kvöldin að læra. Annars á
ég það bara til að hanga í símanum
og mér líður ekki vel með að eyða
tímanum í það.“
Pabbi er mesta
fyrirmyndin
„Kannski get ég verið þessi kven-
fyrirmynd sem ég hafði ekki sjálf,“
segir Valgerður þegar líður á lok
viðtalsins. „Mér finnst ótrúlega
mikilvægt að stelpur og konur sjái
að það eru til konur sem eru raf-
virkjar og vinna í rafmagni. Þær
þurfa að vita að það er pláss fyrir
þær í rafvirkjun og svo mega
þær líka vita að þetta er ótrúlega
skemmtilegt starf og skemmtilegt
nám,“ segir Valgerður. -En heldur
þú að þú hafir fengið áhugann á
rafvirkjun í gegnum pabba þinn?
„Já alveg klárlega! og hann er mín
mesta fyrirmynd í þessu starfi.“
Valgerður segir samt að pabbi
sinn hafi alltaf verið varkár með raf-
magn og þegar Valgerður hafi verið
með honum í vinnunni vildi hann
ekki mikið hafa hana með sér í raf-
magnsvinnunni sjálfri. „Hann sýndi
mér samt alveg helling og ég lærði
ýmislegt af honum strax í æsku þótt
hann hafi haldið mér í ákveðinni
fjarðlægð við rafmagnið sjálft. En ég
var bara svo mikið með honum og
allar mínar minningar úr vinnunni
hans í Rafiðnaðarsambandinu eru
mér svo ótrúlega dýrmætar,“ segir
Valgerður sem er yngst í hópi sinna
systkina. Hún á þrjá eldri bræður
sem hún segir að hafi ekki búið að
því að eyða svona miklum tíma með
pabba þeirra í vinnunni og starfa
þeir á allt öðrum vettvangi.
Núna er ég
bara Valgerður!
Valgerður og Guðni hafa nú búið
í Grundarfirði í fimm ár og hafa
komið sér vel fyrir. Það leynir sér
ekki að Valgerður er ánægð með
ákvörðun þeirra að flytja þangað en
hún segir samfélagið í Grundarfirði
vera yndislegt, það sé mjög sam-
heldið og allir séu boðnir og búnir
að aðstoða náungann. „Ég kann
rosalega vel við mig hérna. Ég er
sjálf búin að koma mér vel inn í
samfélagið og kynnast fólki. Ég var
nú samt lengi bara kölluð konan
hans Guðna Leifs en ekki lengur.
Núna er ég loksins bara Valgerður.“
gbþ/ Ljósm. úr einkasafni.
Valgerður útskrifaðist sem rafvirki í vor. Valgerður vann sem sumarstarfsmaður hjá Rarik á meðan hún var enn í námi.
STARFSSVIÐ OG MEGINHLUT VERK
• Leiðir faglega þróun og stefnumótun í byggingarmálum og
verklegum framkvæmdum.
• Sinnir lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa skv.
viðeigandi löggjöf, ber þ.á.m. ábyrgð á afgreiðslufundum
byggingarfulltrúa og undirbúningi byggingarmála í
fagnefndum sveitarfélaganna.
• Ber ábyrgð á daglegri starfsemi í byggingarmálum og
verklegum framkvæmdum í samstarfi við verkstjóra
áhaldahúsa og umsjónarmenn fasteigna.
• Er yfirmaður starfsmanna í áhaldahúsum og eignaumsýslu og
hefur yfirumsjón með nýframkvæmdum og viðhaldi.
• Ber ábyrgð á gerð verk- og kostnaðaráætlana, gerð
útboðsgagna og samningsgerð við verktaka og hönnuði
og eftirliti með byggingarframkvæmdum.Ber ábyrgð á
frágangi og úthlutun lóða, skráningu fasteigna, leigu- og
lóðaleigusamningum.
• Hefur umsjón með gjaldtöku, skráningu, varðveislu og
miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
• Tekur við og sinnir ýmsum fyrirspurnum um byggingarmál
og verklegar framkvæmdir í samvinnu við sviðsstjóra og/eða
bæjarstjóra/oddvita.
• Sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum að beiðni
yfirmanns um byggingartengd málefni.
Eyja- og Miklaholtshreppur - Grundarfjarðarbær - Helgafellssveit & Stykkishólmsbær
BYGGINGARFULLTRÚI Á SNÆFELLSNESI
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2022
MENNTUNAR- OG HÆFNIKRÖFUR
Skilyrði:
• Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 8. gr.
mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulagslaga
nr.123/2010.
• Réttindi til til að starfa sem byggingarfulltrúi.
• Góð tölvukunnátta.
Mikilvægt:
• Góð færni í íslensku og a.m.k. grunnfærni í ensku
• Stjórnunarhæfileikar og leiðtogafærni.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og
lausnamiðuðum hugsun.
• Frumkvæði, fagmennska og samviskusemi og einlægur áhugi
á málefnasviðinu.
Æskilegt:
• Þekking á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og
skipulagslögum.
• Þekking á góðum stjórnsýsluháttum og reynsla sem nýtist í
starfi.
• Reynsla af stefnumótun á málefnasviðinu.
• Reynsla af stjórnun starfsmanna og verkefnastjórnun.
Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær og
sameinað sveitarfélag Stykkishólms og Helgafellssveitar
eru þrjú af fjórum sveitarfélögum á Snæfellsnesi og
hafa hlotið EarthCheck umhverfisvottun í rúman áratug.
Íbúar eru um 2300 talsins og býr meirihluti þeirra í
þéttbýliskjörnunum Stykkishólmi og Grundarfirði. Á
Snæfellsnesi er fjölskrúðug og falleg náttúra og gott
mannlíf. Atvinnuvegir eru fjölbreyttir og samfélagið
fjölskylduvænt. Alla helstu grunnþjónustu er að finna á
svæðinu, m.a. leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og
framhaldsskóla, öflugt íþróttastarf, heilsugæslu, bókasöfn,
matvöruverslanir og margt fleira. Blómleg ferðaþjónusta
býður ótal skemmtilega afþreyingarmöguleika
fyrir heimafólk sem gesti. Aðstaða er fyrir störf án
staðsetningar, t.d. fyrir maka og svo er aðeins um
1,5-2 klst. akstur til höfuðborgarinnar!
Byggingarfulltrúi starfar náið með skipulagsfulltrúa, sem
jafnframt er sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og næsti
yfirmaður byggingarfulltrúa.
Starfsaðstaða er í Ráðhúsunum í Stykkishólmi og Grundarfirði
en auk þess kallar starfið á ferðir og fundi í Eyja- og
Miklaholtshreppi, en um hálftíma akstur er milli þessara staða.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í
ráðningakerfi ALFRED.IS
Sameiginlegt umhverfis- og skipulagssvið Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar,
Grundarfjarðarbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps leitar að kraftmiklum byggingarfulltrúa
til að halda utan um byggingarmál og verklegar framkvæmdir í sveitarfélögunum þremur. Á
sviðinu er lögð áhersla á vandað faglegt starf og þróun, öflugt samstarf og góða þjónustu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í
netfangið kristin.thor@stykkisholmur.is og/eða síma 433 8100.