Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202218
„Hvað er að frétta,“ var yfirskrift
stefnumótunarfundar og ung-
mennaþings sem haldið var mið-
vikudaginn 9. nóvember síðast-
liðinn í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Viðburðurinn var vel sóttur, bæði
af fullorðnum og ungmennum.
Fram kemur á heimasíðu Borgar-
byggðar að ungmennin hafi verið
í meirihluta á fundinum sem væri
mjög ánægjulegt og mikilvægt fyrir
vinnuna sem framundan er.
Fundurinn fór þannig fram að
ungmennin unnu í hóp og full-
orðnir í sér hóp. Sköpuðust góðar
og gagnlegar umræður á borðunum
hjá öllum hópum og í lok fundar
kynntu tveir ungmennahópar sínar
niðurstöður ásamt tveimur hópum
frá fullorðnum.
Það er óhætt að segja að
forvarnarteymi sveitarfélagsins
hafi úr nægu efni að moða á næstu
misserum og komu fram góðir
punktar á fundinum. Báðir hópar
nefndu sérstaklega að það vantaði
meiri fræðslu og einnig var áber-
andi að íbúar vilja meira samtal og
að fundnar verði leiðir til að efla
foreldrasamstarf. Ungmennin vilja
fá meira starf inn í félagsmiðstöð-
ina Óðal og meiri fjölbreytni, betri
aðstöðu til að stunda íþróttir, laga
leiksvæði á opnum svæðum og við
grunnskólana svo fátt eitt sé nefnt.
Forvarnarteymi Borgarbyggðar
mun nú í framhaldinu rýna í þessar
niðurstöður og er áætlað að hefja
strax úrbætur og halda síðan annan
framhaldsfund vorið 2023, segir í
frétt á borgarbyggd.is.
vaks
Það er ávallt líf í kringum höfn-
ina í Grundarfirði jafnt virka daga
sem um helgar. Síðasti sunnudagur
var engin undantekning en þá kom
Runólfur SH í land og Guðmundur
í Nesi nýtti bræluna á miðunum til
að gera stutt stopp í Grundarfirði
til að skipta um mann í áhöfn.
tfk
Hafnarlífið gengur
sinn vana gang
Arnar Kristjánsson skipstjóri á Runólfi SH er einbeittur í brúnni er skipið leggur að.
Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri gengur hér í átt að ljósmyndara Skessuhorns á
meðan Guðmundur í Nesi RE-13 bakkar rólega frá bryggju nýbúinn að sleppa.
Guðmundur í Nesi siglir út Grundarfjörð.
Steinar Már Ragnarsson vélavörður stendur hér fyrir ofan Hermann Gíslason
vélstjóra er Runólfur leggst að.
Á meðfylgjandi mynd er Guð-
mundur Finnsson starfsmaður
Vegagerðarinnar að setja upp
merkingar á vegamótum Kalda-
dalsvegar, ofan við Húsafell. Mikil
umferð er mestallt árið á þessum
stað og brýnt að bæta merkingar.
bhs
Um síðustu helgi fór fram fyrsta
Ungmennaþing Vestfjarða. Þingið
var haldið á Laugarhóli í Bjarnar-
firði og mættu 33 ungmenni á
aldrinum 13-18 ára alls staðar
að af Vestfjörðum. Fram kemur
á vef Vestfjarðastofu að þingið
hafi verið líflegt og fræddust ung-
mennin meðal annars um lýðræði,
ungmennaráð, hvernig þau geta
haft áhrif á samfélagið sitt, sam-
starf sveitarfélaga á Vestfjörðum
og fengu kynningu á styrkja-
möguleikum frá Rannís. Þau fengu
einnig tækifæri til að vinna að sam-
eiginlegum verkefnum sem tengj-
ast þeirra áhugasviði. Á þinginu
skein í gegn að innan hópsins var
mikill áhugi fyrir meira samstarfi
á milli ólíkra svæða á Vestfjörðum
og ungmennin styrktu tengslin sín
á milli. Enn fremur fengu þau að
koma að endurskoðun á áherslum
í Sóknaráætlun Vestfjarða 2020-
2024 en það er gífurlega dýrmætt
að fá fram sjónarmið unga fólksins
við þá vinnu segir á vestfirdir.is.
Að lokum ber að nefna að ung-
mennin sýndu því eindreginn áhuga
að stofna Ungmennaráð Vestfjarða
þar sem miklu máli skiptir að ungt
fólk fái tækifæri til að koma sínum
skoðunum á framfæri. Af því tilefni
var kosið í starfshóp skipaðan ung-
mennum, einu frá hverju sveitar-
félagi, sem hefur það að markmiði
að vinna að stofnun ungmennaráðs
landshlutans í samvinnu við Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga.
Fjórir fulltrúar komu frá Reyk-
hólahreppi en það voru þær
Hildigunnur Eiríksdóttir, Ásborg
Styrmisdóttir, Bergrós Vilbergs-
dóttir og Birgitta Brynjólfsdóttir.
vaks
Biðskylda af Kaldadalsvegi
Fyrsta ungmennaþing
Vestfjarða
Hildigunnur, Ásborg, Bergrós og Birgitta. Ljósm. reykholar.is/jöe
Vel sóttur stefnumótunarfundur
og ungmennaþing í Borgarbyggð
Fullorðna fólkið að ræða málin. Ljósm. borgarbyggd.is
Fundurinn var vel sóttur.