Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 19
Á ráðstefnu um úrgangsmál, sem
fram fór á Hótel Hamri í Borg-
arnesi sl. mánudag, komu fulltrúar
sveitarfélaga á Vesturlandi saman
til að kynna sér ný lög sem taka
munu gildi um næstu áramót og
snúa að flokkun sorps. Sorpurðun
Vesturlands stóð fyrir ráðstefn-
unni en frá og með áramótum
munu landsmenn innleiða ný lög
þar sem skylt verður að flokka í
fjóra aðskilda flokka, þ.e. pappi
og pappír, plast, lífrænn úrgangur
og almennt sorp. Ekki verður því
lengur heimilt að flokka pappa
og plast í sömu tunnu. Gunnar
Dofri Ólafsson, samskipta- og
viðskiptaþróunarstjóri hjá Sorpu
kynnti á fundinum tvískiptar
tunnur sem höfuðborgarsvæðið
hyggst hefja notkun á en sam-
ræmt flokkunarkerfi hefur verið
samþykkt fyrir allt höfuðborgar-
svæðið. Akraneskaupstaður hefur
nú þegar fengið kynningu á flokk-
unarkerfinu og fleiri sveitarfélög
sýnt því áhuga.
,,Við þurftum að leysa það
vandamál að koma fjórðu
tunnunni fyrir við sérbýli í þétt-
býliskjörnum. Tvískipta tunnan
er hugsuð fyrir sérbýli þar sem
er lítið pláss. Þá verður hægt að
hafa pappír/plast í einni tunnu
og lífrænt/almennt í annarri.
Tunnurnar verða pantaðar milli
jóla og nýárs en innleiðingarferlið
hefst 1. maí og gengur út október
í Reykjavík en það er misjafnt eftir
sveitarfélögum hvað þau hyggjast
taka langan tíma í innleiðinguna.
Núna eru þrjú mismunandi flokk-
unarkerfi á höfuðborgarsvæðinu
sem verða loks samræmd en einnig
verða merkingar samræmdar með
nýju kerfi Sorpu.
„Við viljum hjálpa öðrum
sveitarfélögum í landinu með því
að bjóða þeim þetta kerfi. Þetta er
það sem við höfum séð að sé skil-
virkasta og ódýrasta leiðin, frá-
bært væri ef þetta kerfi hentar
fleirum. Skoðanakannanir sýna
að flestir landsmenn vilja samrænt
kerfi á landsvísu en það er hjálp
í því þegar fleiri notast við sam-
rænt flokkunarkerfi og sömu verk-
ferlar eru þá til staðar hjá neyt-
endum og úrvinnslustarfsemi á
landsvísu. Það verður mikið lagt
upp úr kynningarstarfi því við
viljum hafa kerfið skýrt og skiljan-
legt. Við viljum hafa sama kerfið
alls staðar, heima hjá okkur og í
sumarbústaðnum,“ sagði Gunnar
Dofri í kynningu sem hann hélt á
ráðstefnunni.
Nú keppast sveitarfélög við að
finna lausn á innleiðingu flokkunar-
kerfisins fyrir árslok en aðlaga þarf
söfnun á sorpi í nýtt kerfi sem sam-
ræmist lögum, í hverju sveitar félagi
fyrir sig. Ljóst er því að stórar
áskoranir eru framundan í sorp-
málum á landsvísu.
sþ
Ný lög um meðhöndlun úrgangs
setja sveitarfélögum skyldur á
hendur hvað söfnun og ráðstöfun
úrgangs varðar. Skylt verður um
næstu áramót að auka sérsöfnun
við heimili, svo eitthvað sé nefnt
en breytingar má rekja til nýrrar
úrgangslöggjafar í Evrópu. Við
innleiðingu laganna fengu sveitar-
félög og atvinnulíf góðan tíma
til umsagnar á lögunum og hefur
greinargóð vinna farið fram undan-
farna mánuði.
Ábyrgð breytinganna liggur
á herðum sveitarfélaga lands-
ins, en þau bera ábyrgð á mála-
flokknum samkvæmt lögum. Stórar
spurningar hafa vaknað þar sem
forsendur og grundvöll vantar til
að ganga út frá nýju fyrirkomulagi
úrgangsmála. Reglugerð hefur ekki
verið mótuð sem fangar nýtt fyrir-
komulag sorpmála og Úrvinnslu-
sjóður hefur ekki klárað að móta
verðskrá, þ.e. hvað sjóðurinn
hyggst greiða fyrir endurvinnslu-
efnin í tunnum íbúa, en um er að
ræða framlengda framleiðendaá-
byrgð, sem sveitarfélögin verða að
kynna sér vel þar sem Úrvinnslu-
sjóður tryggir þar með sveitarfé-
lögunum tekjur vegna sérsöfnunar.
Mörgum sveitarfélögum skortir
tíma, mannauð og þekkingu til að
bregðast við lagabreytingunum á
skömmum tíma.
Vegna þessarar stöðu boðaði
Sorpurðun Vesturlands hf. til ráð-
stefnu um úrgangsmál sl. mánu-
dag þar sem fulltrúar sveitarfé-
laga á Vesturlandi gátu í sam-
einingu kynnst nýrri reglugerð
og myndað umræðuvettvang um
mögulegar lausnir. Ný lög kveða á
um fjórðu tunnuna við hvert híbýli
en nú verður plast, pappi, lífrænt
og almennt sorp flokkað í aðskilda
flokka á landsvísu.
Á ráðstefnunni tóku til máls sér-
fræðingar í sorpmálum á lands-
vísu, þau Hrafnhildur Tryggva-
dóttir, deildarstjóri umhverfis og
framkvæmda hjá Borgarbyggð.
Eygerður Margrétardóttir, sér-
fræðingur í umhverfis- og úrgangs-
málum hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga. Valgeir Páll Björns-
son verkfræðingur Sorpu bs., Þor-
gerður M. Þorbjarnardóttir, sér-
fræðingur í umhverfismálum hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Gunnar Dofri Ólafsson, sam-
skipta- og samskiptaþróunar-
stjóri Sorpu bs., Stefán Gíslason
umhverfisstjórnunarfræðingur og
Steinar Sigurjónsson frá Gríms-
nes- og Grafningshreppi. Fund-
inum stjórnaði Freyr Eyjólfsson,
verkefnisstjóri hringrásarhagkerfis
hjá Sorpu.
sþ
SORP. Nú skulu landsmenn auka flokkun sorps á heimilum. Ný lög taka gildi um áramótin þar sem sveitarfélögum er skylt að sjá til þess að flokkun verði aukin. Hér á myndinni er horft inn í eina af urðunarreinum
í Fíflholtum á Mýrum. Slíkir urðunarstaðar eiga í framtíðinni að fá minna magn til urðunar. Ljósm. mm
Ný lög um sorpmál setja sveitarfélög í krefjandi stöðu
Eygerður Margrétardóttir, sérfræðingur í umhverfis- og úrgangsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga svarar hér
fyrirspurn á fundinum. Ljósm. sþ.
Fjórða tunnan kemur um áramótin
Hér má sjá tvískipta tunnu sem Gunnar Dofri Ólafsson kynnti á ráðstefnunni. Frá vinstri: Eygerður Margrétardóttir, Þorgerður
M Þorbjarnardóttir, Freyr Eyjólfsson, Gunnar Dofri Ólafsson og Valgeir Páll Björnsson, en öll fluttu þau erindi á ráðstefnunni.