Skessuhorn - 16.11.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202220
Laugardaginn 12. nóvember síðast-
liðinn var glæsilegt villibráðarhlað-
borð á veitingastaðnum Kaffi 59 í
Grundarfirði. Borðin voru hlaðin
girnilegum krásum og fór enginn
svangur út frá þessari veislu. Það
var kokkurinn Þórir Árnason
sem hafði yfirumsjón með kræs-
ingunum ásamt starfsfólki veitinga-
staðarins en þar mátti finna rétti
eins og rauðrófugrafinn lax, engifer
marineraðan skarf, hreindýrapate,
grafna geit og margt fleira. Aðal-
réttirnir voru svo hægeldaður
hreindýravöðvi og steikt gæsa-
bringa. Vel var mætt til veislunnar
og var ekki annað að sjá en að
gestir hafi verið himinlifandi með
veitingarnar. tfk
Síðastliðinn fimmtudag frumsýndi
leikfélagið Lauga í Snæfellsbæ
gamanleikritið Sex í sama rúmi í
félagsheimilinu Röst á Hellissandi.
Guðmundur Jensson, formaður
leikfélagsins Laugu, segir í samtali
við Skessuhorn að Lauga hafi verið
stofnuð í mars á þessu ári. „Það var
fyrir tilviljun að ég komst að því að
það var búið að leggja niður Leik-
félag Ólafsvíkur. Þá fékk ég nokkra
í lið með mér til þess að stofna
þetta leikfélag sem ber nafnið
Lauga, en það er nefnt eftir Sigur-
laugu Heiðrúnu Jóhannsdóttir sem
var hjartað í Leikfélagi Ólafsvíkur
– en hún sá m.a. um að hýsa leik-
stjóra, sjá um miðasölu og redda
öllu fyrir leikfélagið. Nafnið var því
sjálfgefið og kom aldrei annað til
greina en að láta þetta nýstofnaða
leikfélagi heita Lauga. Það var hins
vegar þrautinni þyngri að fá kenni-
tölu og það tók sinn tíma að eiga við
hið opinbera,“ segir Guðmundur.
„Ég var í vetur að skoða hvaða
leikrit væru á lausu sem hentaði
okkur,“ segir Guðmundur. „Þá
sá ég að leikritið Sex í sama rúmi
hentaði okkur prýðilega, en við
styttum það um helming og endur-
bættum það í nútíma með okkar
,,lokal“ bröndurum. Leikstjóri í
þessu verki er Kári Viðarsson og
er leiksviðið talsvert frábrugðið
venjulegum leiksviðum sem flestir
þekkja, en sviðið er langsum á gólf-
inu, en ekki á sviðinu sjálfu.“ Guð-
mundur segir að þetta sé hugmynd
Kára leikstjóra en með þessu móti
fæst meiri nánd við áhorfendur.
Það komast 63 áhorfendur á hverja
sýningu og hafa bæjarbúar mætt vel
á þær sýningar sem búnar eru, en
upphaflega var hugsað um að hafa
sýningarnar fjórar og seldist upp á
þær allar. Verða því tvær aukasýn-
ingar í boði sem er að verða uppselt
á einnig. „Það gætu því bæst fleiri
sýningar við,“ segir Guðmundur.
Hann er því hæstánægður með
viðtökurnar en sjálfur leikur hann
stórt hlutverk í verkinu.
af
Síðastliðinn sunnudag fóru fram
í Reykholtskirkju tónleikar til
styrktar Minningarsjóði Heimis
Klemenzsonar. Fyrir þeim stóðu
tónlistarkonurnar Anna Þór-
hildur Gunnarsdóttir frá Brekku
í Norður árdal, Borgnesingur-
inn Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
og Steinunn Þorvaldsdóttir frá
Hjarðarholti í Stafholtstungum.
Stöllurnar þrjár voru fyrstu styrk-
þegar sjóðsins þegar úthlutað var
úr honum í desember 2020 en þær
eru allar nýfluttar heim eftir fram-
haldsnám í tónlist. Anna Þórhildur
Gunnarsdóttir lauk meistaragráðu
í klassískum píanóleik í Maastricht
í Hollandi, Hanna Ágústa, nam
klassískan söng í Leipzig í Þýska-
landi, og Steinunn Þorvaldsdóttir
klassískan söng, með tónsmíðar sem
aukafag, við Listaháskóla Íslands
og Konunglega tónlistarháskól-
ann í Stokkhólmi. Þeim til halds og
trausts voru þær Ásta Marý Stefáns-
dóttir og Freydís Þrastardóttir.
Á dagskrá tónleikanna voru
íslensk og erlend ljóð ásamt aríum.
Þá fluttu söngkonurnar frumsamið
efni eftir Steinunni en að undan-
förnu hefur hún samið tónlist við
borgfirsk ljóð í formi einsöngs- og
kórverka. Í lok tónleikanna flutti
Steinunn einnig Hamraborgina,
sem oftar en ekki er flutt af karl-
kyns söngvurum, af stakri snilld.
„Stjórn sjóðsins þakkar þeim
sem komu og hlýddu á tónlistar-
konurnar þrjár, sem og tónlistar-
konunum fyrir framtakið. Mark-
mið sjóðsins er að halda uppi og
heiðra minningu Heimis Klemenz-
sonar frá Dýrastöðum með því að
styrkja efnilega nemendur til tón-
listarnáms og styrkingar tónlistar-
viðburða í héraði. Þá er minnt á að
unnt er að styrkja sjóðinn með því
að láta fjármuni af hendi rakna á
reikning 326-22-1916, kt. 500119-
0980,“ segir í tilkynningu frá stjórn
sjóðsins.
mm
Gamla myndin
Í tilefni þess að á næsta ári fagnar Skessuhorn 25 ára starfsafmæli hefur ritstjórn blaðsins
verið að grúska í gömlum myndakössum sem geyma myndir fyrir og í kringum síðustu
aldamót. Mynd vikunnar er frá árinu 2001 og er tekin af Íslandsmeisturum ÍA í 5. flokki í
knattspyrnu undir stjórn þjálfarans Jóns Huga Harðarsonar sem er ef vel er að gáð með þeim
á miðri mynd.
Vel heppnaðir
styrktartónleikar
minningarsjóðs
Frá vinstri: Ásta Marý Stefánsdóttir með Jón Ármann Stefánsson, Anna Þórhildur
Gunnarsdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Steinunn Þorvaldsdóttir og Freydís
Þrastardóttir. Ljósm. jgs.
Sex í sama rúmi fær góðar viðtökur í Snæfellsbæ
Atriði úr gamanleiknum Sex í sama rúmi.
Leikarar og leikstjóri stilltu sér upp til myndatöku eftir general prufuna.
Glæsilegt villibráðarkvöld á Kaffi 59
Þórir Árnason kokkur er hér að skera niður hægeldaðan hreindýravöðva fyrir gesti.