Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202222
Grímsey liggur á heimskautsbaug,
41 km frá norðurströnd landsins.
Hún er 5,3 ferkílómetrar að stærð,
5,5 km að lengd og bjargbrúnin
stendur hæst 105 metra yfir sjó.
Íbúar í eynni eru 57 talsins og hefur
fækkað nokkuð síðustu árin. Þar
var leikskóli og grunnskóli og þar
var Miðgarðakirkja, sem reist hafði
verið 1867 og þótti með merkilegri
kirkjubyggingum landsins. Það var
íbúum eyjarinnar mikið áfall þegar
kirkjan brann til grunna í septem-
ber á síðasta ári. Ekki réðist neitt
við eldinn í stífri norðanátt sem
þá var og nánast allt varð eldinum
að bráð. En menn létu ekki deigan
síga. Fljótlega var ákveðið að byggja
nýja kirkju og fá Hjörleif Stefánsson
arkitekt til þess að teikna hana. Var
það gert í nánu samstarfi við íbúa
Grímseyjar og útlit nýju kirkjunnar
hefur augljósa skírskotun til þeirrar
eldri. Í framhaldinu var svo samið
við smíðaverkstæðið Loftkastal-
ann um verkið, en það er í eigu
Vestlendinganna Hilmars Jóhann-
essonar og Ingu Lóu Guðjóns-
dóttur. Skessuhorn tók þau tali fyrir
nokkru til að forvitnast um kirkju-
bygginguna og framvindu mála.
Ekki gefist upp
Grímseyingar sameinuðust fljótt
um byggingu nýs guðshúss í stað
Miðgarðakirkju sem svo var nefnd
og var nyrsta kirkja landsins. Þau
Hilmar og Inga Lóa voru kölluð
til verksins. Þau eru búsett í
Rauðanesi í Borgarhreppi en með
fyrirtækið í Gufunesi í Reykjavík,
þar sem þau reka listasmiðju. En
kirkjusmíðin krafðist samfelldrar
viðveru þeirra í Grímsey síðast-
liðna rúma fjóra mánuði og verk-
inu er ekki lokið. Einstök stað-
setning byggingarinnar veldur
því að ekki er auðvelt um vik með
efnisflutninga og tækjabúnað.
Þau gátu t.d. ekki haft afnot af
krana til að athafna sig og urðu
að smíða stillansa sjálf eftir því
sem byggingunni miðaði. Kirk-
jan er 12,5 metrar á hæð og hönn-
unin er mjög sérstök. Fullbúin
mun hún nánast verða hluti lands-
lagsins. Veggirnir eru úr lerki og
sökkull og þak eru klædd flísum
úr sérskornu íslensku stuðlabergi.
Með tímanum mun lerkið grána.
Við kirkjuna er útbygging með
almenningssnyrtingum, en slíkt
hefur vantað í eyjunni.
Ekki fastir bekkir
Byggingin í heild er 89 fermetrar
að gólffleti og kirkjuskipið sex
metra breitt og ellefu metra langt.
Þar er hátt til lofts og kórloft. Um
formlegan kór er þó ekki að ræða
í Grímsey heldur annast söfnuður-
inn sönginn. Gluggar kirkjunnar
eru úr lerki eins og veggir hennar.
Þeir eru gereftislausir og áfellur eru
úr svokölluðu Carbon stáli. Ekki
verða í kirkjunni neinir fastir bekkir
heldur lausir stólar og er ætlunin að
nýta hana fyrir ýmsa menningar-
viðburði auk kirkjulegra athafna.
Hún er nú orðin fokheld og næsta
verk er að setja stuðlabergsflísar á
þakið. Þær munu vega um níu tonn,
svo hugað hefur verið sérstaklega
að burði byggingarinnar.
Kirkja byggð í Grímsey
Hilmar Jóhannesson Inga Lóa Guðjónsdóttir.
Nýja kirkjan er byggð á malarpúða og þurfti að flytja 300 rúmmetra af möl í
stórsekkjum út í eyjuna.
Hér er samhliða unnið við jarðvegsskipti og í kirkjuturninum.
Nýja kirkjan risin og norðurljósin sveipa ævintýraljóma á eyjuna.
Kirkja rís.