Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 23
Kvikmynd um
kirkju og mannlíf
Það er Ingibjartur Jóhannesson sem
smíðar glugga og hurðir í kirkjuna,
en hann er bróðir Hilmars og býr
og starfar í grennd við Akureyri.
Inga Lóa og Hilmar ganga bæði í
öll verk og segja að oftast hafi þau
verið með tvo aðra sér til aðstoðar
í smíðinni. Þar af er reyndar einn
kvikmyndatökumaður, Niko-
lai Galitzine sem auk þess að
aðstoða er búinn að taka upp um
300 klukkutíma af efni til að nota
í kvikmynd um kirkjubygginguna
og mannlífið í Grímsey. Veðrið lék
ekki alltaf við þau í sumar því það
rigndi mikið sem orsakaði mikla
leðju á byggingarstað.
300 rúmmetrar af efni
Aðspurð hvers vegna þau hafi tekið
verkefnið að sér segja þau að í því
hafi falist góð tilbreyting og það sé
gott að fara í annað umhverfi um
tíma. Þau hafa áður unnið að ver-
kefnum fyrir Hjörleif og hann veit
að þau gera þetta vel. Upphafleg
kostnaðaráætlun fyrir bygginguna
var 100 milljónir króna, en sú tala
reyndist vera án efnisflutninga
svo líklega verður þetta allnokkuð
dýrara. Sem dæmi má nefna að
kirkjan er byggð á malarpúða og
flytja þurfti 300 rúmmetra af efni í
hann í sekkjum úr landi með ferj-
unni.
Kirkjuklukkur frá
söfnuði Hallgrímskirkju
Meðal þess sem eyðilagðist þegar
fyrri kirkja brann voru kirkju-
klukkurnar tvær sem voru úr
bronsi. Þannig hafði hagað til
fyrir rúmum fimmtíu árum að
Grímseyingar gáfu eina af klukkum
Hallgrímskirkju í Reykjavík og var
gjöfin fjármögnuð af Vigfúsi Frið-
jónssyni sem rak um tíma síldar-
söltun í Grímsey. Nú hyggst söfn-
uður Hallgrímskirkju endurgjalda
gjöfina með því að leggja nýrri
Miðgarðakirkju til tvær klukkur og
verður það gert hjá Royal Eijsbouts
Klokkengieterij í Hollandi, en þar
hafa kirkjuklukkur Hallgrímskirkju
einnig verið steyptar.
Aðdáunarverð samstaða
Hilmar og Inga Lóa segja í sam-
tali við Skessuhorn að umhverfið
í Grímsey sé algerlega einstakt.
Þar er t.d. mikið fuglalíf, enda
hvorki minkur né refur í eynni
og hundar auk þess bannaðir. Þau
fengu reyndar undanþágu fyrir lít-
inn hund sem þau eiga gegn því að
hafa hann í bandi þar til mófugl-
arnir voru horfnir á braut. Þau
segja að í Grímsey sé gott mannlíf
og aðdáunarvert að sjá hversu vel
íbúarnir standa saman að öllu þegar
á reynir, ekki bara að því að byggja
nýja kirkju og menningarhús.
Stuðningsreikningur
Í lokin má nefna að nokkuð vantar
enn upp á fjármögnun verksins og
styrktarreikningur því enn opinn
fyrir þá sem vilja taka þátt í endur-
reisn Miðgarðakirkju. Reiknings-
númerið er: 565-04-250731, kt:
460269-2539.
gj
Ljósmyndir: Frá Grímsey. Mynda-
taka Anna María Sigvaldadóttir,
Hilmar Jóhannesson og Sandra Dögg.
Margir gripir urðu eldi að bráð
Eftirfarandi er skráð á heimasíðu
Minjasafns Akureyrar um brun-
ann í Miðgarðakirkju 21. septem-
ber 2021:
Mikil menningar- og samfélags-
verðmæti urðu eldinum að bráð
þegar eitt elsta hús í Grímsey,
Miðgarðakirkja, brann. Kirkjan
var mikilvægur hlekkur í samfé-
laginu á gleði og sorgarstundum
auk þess sem hún var mikilvægur
áfangastaður fyrir gesti af megin-
landinu. Miðgarðakirkja var reist
árið 1867. Árni Hallgrímsson
(1832-1917) frá Garðsá í Eyjafirði
var yfirsmiður hennar. Kirkjunni
var breytt umtalsvert árið 1932
þegar bætt var við einfalt kirkju-
húsið forkirkju með háum turni
og kór. Til hafði staðið að stein-
steypt kirkja leysti gömlu kirkj-
una af hólmi. Guðjón Samúelsson
lagði fram hugmyndir árið 1925
að nýrri kirkju og báru endurbæt-
urnar sem ráðist var í talsverðan
svip af þeirri tillögu. Helgi Ólafs-
son smiður og bóndi á Borgum í
Grímsey sá um endurbæturnar
og fórst afar vel úr hendi að fella
saman gamla kirkjuhúsið og
nýbyggingarnar. Frekari fram-
kvæmdir fóru fram á kirkjunni
árið 1956 og var hún endurvígð
12. ágúst 1956 af Ásmundi Guð-
mundssyni biskup. Nokkrir góðir
gripir glötuðust í eldinum. Predik-
unarstólinn frá 1867, altaristafla
frá 1879 eftir Arngrím Gíslason
málara, eftirmynd af kvöldmál-
tíðarmynd Leonardo da Vinci;
fagurlega útskorinn skírnarfontur
eftir Einar Einarsson frá 1958, og
tvær fagrar söngtöflur eftir hann
svo fáeinir gripir séu tilteknir. Þá
er horfið handbragð þeirra sem
reistu kirkjuna og máluðu.
Kvöldsólin við heimskautsbaug.
Stuðlabergsflísar á þaki turnsins.
Þakið tilbúið undir að verða lagt stuðlabergi til varnar.
Veggir eru klæddir timbri sem mun grána með tíð og tíma.
Inga Lóa spáir og spekúlerar.
Miðgarðakirkja sem brann í september 2021. Ljósm. akureyri.net