Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202224
Ríkisskattstjóri hefur nú lokið
álagningu opinberra gjalda á lög-
aðila vegna rekstrarársins 2021.
Í tilkynningu frá fjármálaráðu-
neytinu kemur fram að álögð
gjöld nema samtals 218,3 millj-
örðum króna og hækka um 38
ma.kr. á milli ára, en breytingar
einstakra skatta eru bæði til hækk-
unar og lækkunar. Stærstu einstöku
breytinguna er að finna í tekjuskatti
lögaðila en þar aukast tekjur ríkis-
sjóðs um 31,1 ma.kr., eða 44,9%,
milli ára. Stærsta hlutfallslega
breytingin varð á sérstökum fjár-
sýsluskatti sem ríflega tvöfaldaðist
milli ára en þar sem hann er við-
bótartekjuskattur á tekjuskattstofn
umfram 1 ma.kr. er sterk fylgni
milli hans og hefðbundins tekju-
skatts. Tryggingagjald hækkar um
5,2 ma.kr. frá fyrra ári, eða 5,4%,
þrátt fyrir tímabundna lækkun
gjaldsins árið 2021.
Gjaldskyldum félögum fjölgar
um 2.483, eða 5,2%, milli ára og
eru nú 50.571 en félögum sem
greiða tekjuskatt fjölgar um 2.250,
eða 13,8% milli ára. Gjaldskyldum
félögum fækkaði lítillega í síðustu
álagningu en hafa nú aldrei verið
fleiri. Félögum sem greiða tekju-
skatt hafði fækkað ár frá ári síðast-
liðin sex ár en eru nú aftur orðin
álíka mörg og þegar mest var árið
2016.
Síðustu ár hefur sú góða þróun
orðið að skilum framtala hefur
fjölgað hlutfallslega ár frá ári. Bætt
skil framtala eru til þess fallin að
fækka kærum og endurákvörðunum
og skapast því meiri vissa um að
álagning opinberra gjalda á lög-
aðila skili sér í ríkissjóð. Í ár var
86% framtala skilað áður en álagn-
ing fór fram, líkt og tvö síðustu ár,
en það hlutfall fór fyrst yfir 80%
árið 2018.
Endurgreiðsla ofgreiddra opin-
berra gjalda lögaðila nam um 20
mö.kr. í ár samanborið við 24
ma.kr. árið á undan og lækkar því
um 17% milli ára.
mm
Fimmtudaginn 10. nóvember sl.
voru fyrstu íbúðirnar á Þjóðbraut 3
á Akranesi formlega afhentar skjól-
stæðingum Brákar hses. og leigufé-
lagsins Bríetar. Það var hluti fatl-
aðra íbúa á Akranesi sem fengu þar
afhentar nýjar íbúðir og var með
því tryggt öruggt húsnæði til fram-
búðar. Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra, bæjarstjórn Akra-
ness auk fulltrúa frá Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar, Brák og Bríet
sem voru viðstaddir og hélt Sig-
urður Ingi tölu. Nýju íbúarnir voru
svo boðnir velkomnir heim með
blómum og konfekti.
gbþ/ Ljósm. vaks
Vatnsaflsstöðin Akhalkalaki í
Georgíu, sem Landsvirkjun á hlut
í og hefur tekið þátt í að reisa, var
vígð í byrjun mánaðarins. Uppsett
afl stöðvarinnar er tæplega 10 MW
og mun hún vinna um 50 GWst
af endurnýjanlegri raforku árlega.
Hluti af verkefninu var einnig upp-
bygging á tengdum innviðum í
nærsamfélagi stöðvarinnar, svo sem
áveitukerfi og veitukerfi drykkjar-
vatns.
Eignarhlutur Landsvirkjunar
er í gegnum dótturfélagið Lands-
virkjun Power, sem heldur utan
um erlend verkefni fyrirtækisins.
„Tilgangur Landsvirkjunar Power
er að flytja út þá sérþekkingu sem
við Íslendingar höfum aflað okkur
á sviði endurnýjanlegra orkugjafa
og stuðla þannig að orkuskiptum
erlendis. Félagið veitir ráðgjöf við
undirbúning, byggingu og rekstur
endurnýjanlegra virkjunarkosta og
tekur þátt í þróun þeirra,“ segir í
tilkynningu.
Íslenska verkfræðistofan Ver-
kís var í nánu samstarfi við Lands-
virkjun Power í Akhalkalaki verk-
efninu og hafði yfirumsjón með
hönnun þess. Eigendur verkefnisins
eru þrír: Caucasus Clean Energy
Holding, sem fjárfestir einungis í
vatnsaflsvirkjunum í Georgíu, LPV
Co, sem er í eigu Landsvirkjunar
Power og verkfræðistofunnar Ver-
kís og Hydro Energy, georgískt
félag sem var stofnað sérstaklega
um upphaflega þróun verkefnisins.
mm
Á meðfylgjandi mynd er Víðir
Haraldsson skipstjóri á línu-
bátnum Lilju SH frá Rifi. Eftir að
línan hafði verið lögð aðfararnótt
þriðjudags tók hann sig til og grill-
aði hamborgara fyrir mannskap-
inn. Vakti það mikla ánægju en þrír
eru í áhöfninni ásamt Víði. Þeirra á
meðal var Alfons Finnsson fréttarit-
ari Skessuhorns sem er í afleysinga-
túr um borð í Lilju. Þeir byrjuðu að
draga línuna klukkan níu morgun-
inn eftir og reiknuðu með að það
tæki um níu tíma og var því stefnt
að heimferð síðdegis í gær. Ágæt-
lega hafði fiskast á krókana þegar
rætt var við Alfons um hádegisbil
í gær.
mm
Álagningu
opinberra gjalda
á lögaðila lokið
Línan lögð og
síðan grillað í
mannskapinn
Landsvirkjun flytur út þekkingu
við gerð vatnsaflsvirkjana
Nýja virkjunin í Akhalkalaki í Georgíu. Ljósm. Landsvirkjun Power.
Íbúðir á Þjóðbraut 3
afhentar íbúum
Fv. Kristmundur Valgarðsson, Hermann Jónasson, Soffía Guðmundsdóttir, Heiðrún Hermannsdóttir, Sævar Freyr Þráinsson,
Kristinn Sveinsson, Sindri Víðir Einarsson, Martha Lind Róbertsdóttir, Tinna Björk Sigmundsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Liv Aase Skarstad og Ragnar Baldvin Sæmundsson.
Sigurður Ingi og Tinna Björk taka sjálfu.
Heiðrún Hermannsdóttir bauð bæjar-
stjóranum að líta í heimsókn.