Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 25
Skinkuhorn
Guðný Vilhjálmsdóttir
Guðný Vilhjálmsdóttir er nýjasti
viðmælandi Skinkuhorns, hlað-
varps Skessuhorns. Guðný er frá
Helgavatni í Þverárhlíð. Hún er
útskrifaður ferðamálafræðingur og
starfar í dag sem verktaki í hinum
ýmsu störfum. Hún hefur einnig
búið og starfað í Shanghæ og Hong
Kong en í heildina hefur hún ferð-
ast til 66 landa og er hvergi nærri
hætt. Hún hafði frá ýmsu að segja
í Skinkuhorninu. „Ég er nýkomin
heim núna en ég var á ferðalagi um
Mið-Asíu og Mið-Austurlöndin.
Planið var bara að fara út í mánuð
eða jafnvel í styttri tíma, en ég
endaði á að vera úti í tvo mánuði
og kom bara heim vegna þess að
ég var að halda jógahelgi á Íslandi
með vinkonum mínum,“ segir
Guðný sem fór í jógakennaranám
í Nepal árið 2019.
Hestaferð í Tadsjikistan
Guðný er nýkomin heim úr
hestaferð um hálönd í Asíu. „Upp-
haflega plan ferðarinnar var að
ég fór með vinkonu minni og
tveimur þýskum vinum okkar í
hestaferð í Tadsjikistan en svo
enduðum við á því að ferðast
mun meira. Tadsjikistan liggur
við Túrkmenistan og Afganistan.
Við vorum í vikuferð í fjöllunum.
Það var enginn þarna uppi nema
nokkrir smalar með kindur og
geitur sem bjuggu í einhverjum
steinkofum þarna uppi. Þarna var
allt að tíu stiga frost á næturna svo
ég skil ekki alveg hvað dýrin þarna
uppi borða, þarna voru örfá strá
og mjög hrjóstrugt. Við sváfum
þarna í tjöldum en fórum hæst upp
í 4.800 metra hæð yfir sjávarmáli.
Þetta voru sex nætur og sjö dagar
í hnakk. Það var farið mjög hægt
yfir, þetta er svo hátt uppi að lík-
aminn okkar andar öðruvísi þannig
að maður kemst ekkert mikið upp
af fetinu og aldrei meira en 25 km
á dag svo það var bara einn hestur
á mann alla ferðina. En þetta var
mjög skemmtileg upplifun og
gaman að prófa þetta,“ segir hin
ævintýragjarna Guðný.
Úsbekistan, Kúrdistan
og Jemen
„Við héldum svo áfram að ferð-
ast áfram um nágrannalöndin. Við
þurftum að ferðast með lestum og
stundum þurftum við að húkka
okkur far. Þetta er svolítið menn-
ingin þarna t.d. í Úsbekistan. Það
keyrðu eiginlega allir um á Lödu
þar en þetta er gamalt Sovét-
ríki, það tala allir rússnesku þarna
og gera bara ráð fyrir að ferða-
menn tali rússnesku líka. Ég hef
sjaldan upplifað mig jafn örugga
og í þessum löndum sem ég var að
ferðast í þarna. Ég myndi t.d. aldrei
húkka mér far í Suður-Ameríku.
Við fórum til margra landa svo í
framhaldinu, m.a. Oman, Kúr-
distan, Azerbaijan og t.d. Jemen.
Jemen hefur lengi verið lokað og
maður má ekki fara inn í landið
nema með leiðsögumanni. Það er
ennþá stríð í norðri en við fórum í
landið að sunnanverðu og máttum
bara vera þarna yfir einn dag en
það eru t.d. engin hótel þarna. Öll
hús eru í niðurníðslu og umhverfið
bara almennt. Almennt finnst mér
svo gaman að sjá hvernig fólk
annars staðar í heiminum býr. Upp-
lifa ólíka menningarheima og sjá
allt öðruvísi náttúru og menningu.“
Bjó í heilt ár í Kína
Hvað er mesta menningarsjokkið
sem þú hefur upplifað? „Ég hef oft
pælt í þessu hugtaki, menningar-
sjokk og þýðingunni á bak við það.
Mér finnst ég aldrei hafa upplifað
mikið menningarsjokk. Ég var
reyndar í Kína í heilt ár og þegar
maður er svona lengi á einum
stað upplifir maður kannski dýpri
tengingu við menninguna. Ég var
fyrst í Sjanghæ, sem er reyndar
frekar alþjóðleg borg. En að ferð-
ast út fyrir bæjarmörkin í lítil þorp
og sjá hvernig fólk lifir þar er mjög
öðruvísi. Ég hugsa að Kína hafi
verið eitt af skrítnustu löndunum,
en sennilega vegna þess að ég var
svo lengi þar og upplifði meira.
Eftir að hafa verið hálft ár í
Sjanghæ fór ég í hálft ár til Hong
Kong og það var ekki eins mikið
sjokk. Það var í rauninni bara svo-
lítið evrópskt.“
Brúðkaup í Indlandi
Hvert er næstu ferð heitið? „Ég
er ekki búin með einn fjórða af
heiminum og ég á örugglega aldrei
eftir að ná til allra landa í heim-
inum. Ég fer örugglega eitthvað
út á næsta ári, vinkona mín er að
fara til Afríku og ég er að pæla í að
fara með henni. Svo er mér boðið
í brúðkaup á Indlandi í byrjun árs
2024. Það er mjög margt sem ég á
eftir að gera og sjá, ég á t.d. eftir að
skoða Suður-Ameríku mun betur.
Ég hef ekki komið til Ástralíu eða
Eyjaálfunnar, það er mjög langt í
burtu og miklu dýrara að vera þar
en t.d. í Asíu eða Afríku. Svo telst
náttúrlega Suðurskautslandið sem
heimsálfa, ég veit ekki hvort ég
fari þangað en það er aldrei að vita.
Næsta utanlandsferð er reyndar
bara vinkonuferð til Köben.“
Hlusta má á viðtalið við Guð-
nýju í heild sinni á vefsíðu Skessu-
horns, Spotify og Soundcloud.
com/skessuhorn.
sþ/ Ljósm. aðsendar
Úr hestaferð Guðnýjar í Tadsjikistan.
Það var farið hægt yfir en þunnt fjallaloftið býður ekki upp á mikla áreynslu.
Hestaferðin tók sjö daga í heildina.
Guðný í hálendi Tadsjikistan.