Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202226
Skagamenn léku í sumar fjórða árið
í röð í efstu deild karla í knattspyrnu
sem nefndist Besta deildin. ÍA lauk
leik í næst neðsta sæti deildar-
innar með 25 stig úr 27 leikjum og
féll í Lengjudeildina ásamt Leikni
Reykjavík. ÍA vann sex leiki, gerði
sjö jafntefli og tapaði fjórtán. Blaða-
maður Skessuhorns kíkti í vinnuna
til Jóns Þórs fyrir helgi og fór yfir
tímabilið með honum.
Ef við förum yfir tímabilið í heild
sinni þá spilið þið átta leiki í apríl
og maí. Einn sigur, þrjú jafntefli og
fjögur töp. Var þér ljóst þarna að það
yrði ykkar hlutskipti að vera í fallbar-
áttu í sumar?
„Byrjunin benti ekki til þess,
fyrstu þrír leikirnir voru glimrandi
fínir og voru í takt við það sem við
vorum búnir að gera í aðdraganda
mótsins. Hlutirnir voru að smella
alveg ágætlega fyrir okkur en síðan
lendum við í mannfalli þannig að
við missum svolítið taktinn. Við
misstum menn í veikindi og þeir
Viktor Jóns, Alexander Davey, Aron
Bjarki og Wout Droste glímdu við
meiðsli. Þarna voru máttarstólpar
í vörn og sókn farnir og þar með
misstum við hryggjarsúluna í liðinu
ásamt því að Oliver Stefánsson var
mikið inn og út framan af sumri.
Við misstum taktinn alveg þarna
og náðum honum aldrei í raun til
baka,“ segir Jón Þór.
Byrjuðu upp á nýtt
Í júní spilið þið ekki nema tvo leiki sem
enda báðir með jafntefli á móti KR og
FH. Hvað lagðir þú upp með í þessum
mánuði varðandi æfingar sökum lítils
leikjaálags?
„Maí var martraðarmánuður þar
sem við lentum í veikindahrinu leik-
manna sem lagðist þungt á okkur.
Menn voru kannski ekki lengi frá
vegna veikinda en virtust missa
allt form hvað varðar orku, kraft,
úthald og þol. Við vorum farnir að
horfa í þetta landsleikjahlé til þess
að ná vopnum okkar aftur og hlaða
batteríin þannig að það var ákveðið
í bland við gott frí að æfa vel. Við
náðum að nýta þennan tíma gríðar-
lega vel, hreinsa hugann og byrja
upp á nýtt, bæði andlega og líkam-
lega. Við áttum síðan okkar besta
leik eftir fríið í Frostaskjólinu á
móti KR í grátlegu 3-3 jafntefli og
í kjölfarið gerðum við 1-1 jafntefli
við FH. Þá hélt ég að við gætum
byggt ofan á þessa frammistöðu en
annað kom á daginn.“
Hugur í hópnum og
menn virkilega að reyna
Í júlí spilið þið fjóra leiki og tapið
þeim öllum. Hvernig er að vera þjálf-
ari í þessum aðstæðum, hvernig gekk
að halda mönnum við efnið og er ekki
erfitt að vera jákvæður í svona taphr-
inu?
„Þegar þarna er komið sögu
höfum við ekki enn náð að spila
tvo leiki í röð með sömu varnarlínu
þannig að við náum aldrei þeim
stöðugleika og þeim ramma á
varnarleikinn sem þú þarft. Það
reyndist okkur erfitt auk þess að vera
það lið í deildinni sem mátti minnst
við því því við vorum með marga
nýja leikmenn og búið að vera mikið
rót á leikmannahópi liðsins síð-
ustu ár þar að auki. Annars var mik-
ill hugur í hópnum og hver einasti
leikmaður gerði sér grein fyrir því
að við værum með nógu gott lið til
að standa okkur vel í þessari deild.
Menn voru virkilega að leggja sig
fram og reyna að ná betri úrslitum
en af ýmsum ástæðum náðist það
ekki. Það skorti upp á liðsheildina
hjá okkur, hópurinn var stór en vant-
aði upp á tengingu og þéttleikann
sem maður vill hafa. Hvað jákvæðn-
ina varðar, ef þú hefur ekki trú á
hlutunum og því sem þú ert að gera
og liðinu þínu, þá er það auðvitað
ómögulegt verkefni. Maður reynir
að taka það jákvæða og bæta það
sem vantar upp á. Þó úrslitin væru
ekki að skila sér þá voru ákveðnir
þættir sem við vorum ánægðir með
en því miður duttu úrslitin ekki fyrir
okkur í þessum leikjum.“
Stór ákvörðun
Í ágúst spilið þið fimm leiki, tapið fyrstu
þremur leikjunum á móti Breiðablik,
Val og KA en náið loks sigri í tveimur
næstu leikjum. Þú tekur markvörðinn
og fyrirliðann Árna Snæ út úr liðinu
í byrjun mánaðarins og setur Árna
Marinó inn. Varst þú búinn að hugsa
þetta lengi og fannst þér eitthvað
breytast með tilkomu Árna Marinó?
Jón Þór segir að á þessum tíma-
punkti hefði Árni Marinó átt tæki-
færi skilið því það var orðin ansi
löng leikjatörn hjá liðinu án sigurs.
„Þá veltir maður öllum steinum
og veltir ýmsu fyrir sér. Kannski
hefðum við átt að gera þetta fyrr
en markmannsstaðan er sú staða
sem þú vilt síst vera að hræra í á
miðju tímabili og við reyndum
að bíða með það eins lengi og við
gátum. Árni Snær var auk þess fyr-
irliði liðsins og því var þetta stór
ákvörðun en við þurftum stórar
ákvarðanir á þessum tímapunkti.
Þetta var ein af mörgum sem var
tekin til að reyna að snúa gengi
liðsins til hins betra.“
Allt þyngist og
verður grárra
Fyrsti sigurleikurinn í næstum fjóra
mánuði kom loks í 18. umferðinni
á móti ÍBV og í kjölfarið sigur á
Keflavík. Þetta hefur verið mikill
léttir og breytti þetta miklu?
„Þetta breytti öllu því þegar
leikjunum fjölgar sem þú nærð
ekki sigri þá þyngist allt og verður
grárra. Það á alveg eins við leik-
menn, þjálfara, stuðningsmenn,
stjórnarmenn og alla sem eru
í kringum liðið að þetta hefur
gríðarleg áhrif á andlegu og líkam-
legu hliðina. Við vorum búnir að
skoða marga þætti hvernig við
gætum snúið þessu við og það er
meira en að segja það að ná því
en á endanum eru þetta engin vís-
indi. Við vorum búnir að finna það
út að það væru þættir í okkar leik
sem við vorum mjög ósáttir við,
tölfræðiþættir eins og tæklingar,
seinni bolti, hlaup, sprettir og svo
framvegis. Við breyttum þessum
þáttum markvisst og við sáum það
sem gullið tækifæri að bæta liðið
verulega með einföldum hætti.
Það er ekkert sjálfgefið fyrir lið
í þessari stöðu að vinna þá sigra
sem við gerðum og ég tel að það
hafi verið stórt að hafa náð því
með liðið í þessu ástandi. Eftir
svona marga tapleiki í röð var það
að ná að vinna svona baráttu- og
karakter sigra með þessum hætti
afar kærkomið.“
Í raun og veru sakamál
Í september gerðuð þið jafntefli við KR,
töpuðuð stórt á móti FH og töpuðuð í
mjög mikilvægum leik á móti Leikni.
Þetta hlýtur að hafa verið afar svekkj-
andi?
„Þetta var alveg grátlegt, þegar
maður horfir til baka og niður-
staðan er sú að við föllum á marka-
tölu þá var það mjög svekkjandi. Í
raun og veru er það sakamál að spila
þrjá leiki við Leikni í sumar og fá
aðeins eitt stig út úr þeim leikjum.
Það er þar sem maður staldrar mest
við þegar maður fer að telja til baka
stigin í sumar og verulega þungt að
tapa mikilvægum stigum í þessum
leikjum.“
Svo tók við í október mót sex neðri
liðanna í deildinni um það að sleppa
við fall. Í þriðju umferðinni gerðuð
þið jafntefli við Leikni sem nánast
felldi ykkur. Hefðuð þið ekki mátt taka
meiri áhættu í þeim leik?
Jón Þór segir þegar hann rifjar
þetta upp að eftir á að hyggja flokk-
ist það sem mistök að hafa ekki
gert það en á þeim tímapunkti sem
þjálfararnir voru að velta því fyrir
sér hefði verið ágætis taktur í þeirra
leik. „Við vorum bæði með Viktor
og Eyþór Aron frammi sem báðir
fengu dauðafæri til að koma okkur
yfir í leiknum undir lokin. Þegar þú
tekur áhættu og hendir öllum fram
þá geturðu tekið taktinn úr leik
liðsins og vegna þess að við vorum
að skapa okkur færi þá vorum við
hikandi við það. Kannski hefðum
við átt að gera það en svona eru
þessar ákvarðanir oft, það þarf að
hrökkva eða stökkva og eftir á að
hyggja miðað við hvernig leikurinn
þróaðist á lokamínútunum þá voru
mistök að breyta ekki.“
Með stóran hóp af
ungum leikmönnum
Eftir sigra á ÍBV og FH var ljóst að
ÍA var fallið í Lengjudeildina eftir
fjögurra ára veru í efstu deild. Það er
ljóst að þú verður áfram þjálfari liðsins
og sex erlendir leikmenn eru á förum.
Hver er stefna þjálfarans varðandi
leikmannamál og með framhaldið?
„Ég tel að okkur vegni best
þegar stefna ÍA er höfð í hávegum
og við náum að búa til lið sem er
byggt upp á heimamönnum. Ég
trúi því einlæglega að það hafi
virkað best fyrir okkur og við
höfum svo sem reynt að fara aðrar
leiðir í að búa til gott lið en það
hefur ekki gengið upp af ýmsum
ástæðum. Mín stefna í leikmanna-
málum er sú að við séum með öfl-
ugan kjarna af heimamönnum
sem við byggjum okkar lið í
kringum. Við erum með stóran
hóp af ungum leikmönnum sem
eiga framtíðina fyrir sér og þeirra
bíður stórt tækifæri til þess að láta
til sín taka. Það er undir þeim
komið að taka það stóra skref, þeir
verða að átta sig á því að skrefið
er mjög stórt og þeir þurfa að
þroskast og fullorðnast mjög hratt
á mjög skömmum tíma. En með
mikilli vinnu þá tel ég þá eiga
góða möguleika á því. Það eru
spennandi hlutir framundan hjá
liðinu og ég get ekki beðið eftir
að byrja nýtt undirbúningstímabil
frá byrjun sem ég náði ekki á þessu
tímabili.“
Hvað með aðstöðuna hjá félaginu?
Má bæta hana og að hvaða leyti?
„Það sem vantar er aðstaða til
að iðka knattspyrnu utan dyra
allt árið, okkur vantar gervigras
úti hvort sem það er á aðalvöll-
inn eða á æfingasvæðið eða hvaða
leið sem menn geta eða vilja fara
í þeim málum. Aðalvöllurinn er
ónýtur og það er gríðarlega erfitt
að spila góða knattspyrnu á honum
yfir bestu mánuðina. Við getum
ekki vökvað hann, ef það er þurrt
á leikdegi þá er mjög erfitt að spila
á honum og ef það er rigning þá
verður hann mjög blautur af því
hann hleypir engu vatni í gegnum
sig, hann drenar ekki. Númer eitt
er að fá nýjan völl þar sem hægt er
að spila betri knattspyrnu, hvort
sem það er góður grasvöllur eða
gervigrasvöllur, það breytir mig
engu máli. Við búum við þannig
aðstæður að gervigrasið hentar
okkur betur og það myndi kosta
um 130-170 milljónir með flóð-
ljósum og vökvunarkerfi ef farið
yrði í þá framkvæmd.“
Mikil vinna framundan
Hvernig líst þér á næsta sumar og er
ekki stefnan að fara með liðið beint upp
aftur?
„Það eru margir hlutir í félaginu
sem við þurfum að skoða og sú
vinna er þegar hafin. Við þurfum
að greina það hvað það er sem
fer úrskeiðis hjá okkur, við erum
í reglulegu millibili að lenda í
vandræðum í meistaraflokki karla
og það er eitthvað sem við þurfum
að finna lausn á. Það snýst ekki
bara um næsta ár heldur hvernig
komum við okkur upp aftur og
höldum okkur þar. Búum til öfl-
ugt og gott lið til frambúðar og
þar held ég að stefnan komi sterk
inn. Í gegnum tíðina höfum við
farið rækilega út af sporinu í þeim
efnum og þegar maður kafar ofan
í þetta þá eru ótrúleg líkindi með
því þegar við föllum. Þetta eru
nánast sömu hlutirnir sem eiga sér
stað í aðdragandanum þannig að
þetta er ekki spurningin um stefnu
ÍA, hún hefur alltaf verið til.
Vandamálið er að ef við förum út
af því spori, af hverju fylgjum við
því ekki og hvernig getum við gert
það til framtíðar, það er algjört
lykilatriði. Við þurfum að byrja
á byrjuninni og eins og staðan er
akkúrat núna þá er mikil vinna
framundan, bæði í kringum liðið
og í umgjörðinni allri. Þá er ekk-
ert annað að gera en að bretta upp
ermar og byrja þá vinnu á réttum
stað. Svo komum við liðinu upp
og getum þá vonandi náð því að
byggja upp góðan grunn sem hægt
er að hlúa vel að um ókomin ár,“
segir Jón Þór að lokum.
vaks
„Við þurfum að búa til öflugt og
gott lið til frambúðar“
Rætt við Jón Þór Hauksson þjálfara Skagamanna um tímabilið í sumar
Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA. Ljósm. vaks
Lið ÍA sem lék í Bestu deildinni í sumar. Ljósm. kfia