Skessuhorn - 16.11.2022, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Mikil þörf er á því að endurnýja og
bæta tækjakost til bráðaþjónustu á
heilsugæslustöðvum á landsbyggð-
inni. Öllu getur skipt að þær séu
betur tækjum búnar til greiningar
bráðavanda og slysa. Þá verður að
vera til staðar vel þjálfað starfsfólk
til að sinna fyrstu viðbrögðum.
Undanfarin ár hef ég beitt
mér mjög fyrir öruggu aðgengi
að læknisþjónustu víðsvegar um
landið og að það búsetuöryggi sem
í því felst sé tryggt. Nýlega vakti
ég sérstaka athygli á þörfinni á að
bæta tækjakost heilsugæslustöðva
með skriflegri fyrirspurn til heil-
brigðisráðherra þar um og hvað
hann hygðist gera til að tæknivæða
betur heilsugæslu á landsbyggð-
inni þannig að hún geti betur sinnt
þessu hlutverki sínu og einnig um
þjálfun fólks að nota þau til grein-
inga og veita fyrstu aðstoð. Þá vakti
ég athygli á því að framhaldsnám
í bráðatækni væri mikilvægt skref
í þessa veru, en ekki er slíkt nám í
boði á Íslandi.
Nú hefur í framhaldi af fyr-
irspurn minni verið kunngjört
að bráðaþjónusta verði efld um
allt land með bættum tækjabún-
aði og 113,5 milljóna framlagi til
heilbrigðisstofnanna utan höfuð-
borgarsvæðisins til þess að endur-
nýja og bæta tækjakost vegna
bráðavanda. Þó meira þurfi til er
þetta mikilvægt skref.
Ég get ekki annað en þakkað
ráðherra skjót viðbrögð þó fyrir-
spurninni sjálfri hafi ekki enn
verið svarað með beinum hætti, en
niðurstaðan er almenningi til heilla
og það er aðal atriðið. Það er nefni-
legi lykilatriði ef við viljum tryggja
byggðajafnrétti og góð skilyrði
fyrir dreifðri búsetu að standa vel
að öryggi landsmanna í hvívetna.
Of víða hafa íbúar ekki öruggt
aðgengi að læknisþjónustu og þurfa
að fara um langan veg eftir henni.
Því skiptir sköpum að heilsugæslu-
stöðvar séu vel tækjum búnar og
nærþjónusta við íbúa sé með bestu
móti. Ég skora því á ráðherra að
halda uppteknum hætti og bregð-
ast við öðrum aðkallandi þáttum til
að tryggja öruggt aðgengi að heil-
brigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Bjarni Jónsson
Höfundur er þingmaður Vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi
Vök Baths á bakka Urriðavatns við
Egilsstaði, er handhafi Nýsköpunar-
verðlauna ferðaþjónustunnar
árið 2022, en Samtök ferðaþjón-
ustunnar (SAF) afhenda verðlaunin
á afmælisdegi samtakanna, 11. nóv-
ember ár hvert. Eliza Reid forseta-
frú afhenti verðlaunin við hátíð-
lega athöfn í Hörpu í síðustu viku.
SAF afhenda Nýsköpunarverð-
laun fyrir athyglisverðar nýjungar
og er markmiðið að hvetja fyrir-
tæki innan samtakanna til nýsköp-
unar. Verðlaununum er ætlað að
hvetja frumkvöðla landsins til dáða
í ferðaþjónustu. Þetta er í nítjánda
skipti sem SAF veita nýsköpunar-
verðlaun ferðaþjónustunnar en
þetta árið bárust 14 tilnefningar
í samkeppninni um verðlaunin.
Verðlaun SAF hafa tvisvar sinnum
frá árinu 2004 runnið til fyrirtækja
á Vesturlandi. Árið 2006 til Land-
námsseturs Íslands í Borgarnesi
og árið 2015 til Into the Glacier á
Langjökli.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Vök Baths eru heitar laugar.
Böðin samanstanda af tveimur
fljótandi sjóndeildarlaugum, einu
sinnar tegundar á Íslandi, tveimur
heitum laugum á landi, vaðlaug,
eimbaði, köldum úða göngum og
veitingastaðnum Vök Bistro. Vök
Baths dregur nafn sitt af heitum
vökum sem birtust reglulega á ísi-
lögðu Urriðavatninu vegna jarð-
hita sem streymdi upp á yfir-
borðið. Fljótandi laugarnar, eða
„vakirnar“, sem nú liggja í vatninu
hafa þannig sama form og þær sem
mynduðust á ísi lögðu vatninu.
Gestum Vök Baths býðst ekki bara
að baða sig í heitu laugunum og
köldu Urriðavatninu því í móttöku
staðarins er tebar þar sem hægt
er að gæða sér á te sem gert er úr
jurtum úr nágrenninu og blandað
við heitt vatnið sem kemur beint
úr jörðinni.“
mm
Vök Baths hlutu Nýsköpunarverðlaun
ferðaþjónustunnar
Frá afhendingu verðlaunanna. F.v. Eliza Reid forsetafrú, Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Vök Baths, Ívar
Ingimarsson stjórnarmaður í fyrirtækinu og Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Pennagrein
Bætt bráða
þjónusta á
heilsugæslu
stöðvum