Skessuhorn - 16.11.2022, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 29
Allt landið
miðvikudagur 16. nóvember
Dagur íslenskrar tungu er haldin
hátíðlegur á landsvísu.
Borgarfjörður
miðvikudagur 16. nóvember
Félag eldri borgara í Borgar-
fjarðardölum hedur upp á dag
íslenskrar tungu í Brún, grunn-
skólanemar koma í heimsókn. Við-
burðurinn er klukkan 13:30–17.
Akranes
föstudagur 18. nóvember
ÍA og Skallagrímur eigast við í
1. deild karla í körfuknattleik í
íþróttahúsinu á Vesturgötu og
hefst viðureignin klukkan 19.15.
Búðardalur
föstudagur 18. nóvember
Slökunarnámskeið fyrir 60 ára og
eldri. Kennt er í fjögur skipti, mið-
vikudaga og föstudaga í þessari
og næstu viku. Námskeiðið er
haldið í Dalabúð kl. 17-18:30 á
miðvikudögum og kl. 14-15:30 á
föstudögum. Kennari er Elín Matt-
hildur Kristinsdóttir. Skráning fer
fram í síma 695-2579 eða á tölvu-
pósti ivar.orn73@gmail.com.
Stykkishólmur
fimmtudagur 17. nóvember
Prjónaklúbburinn og Narfeyrar-
stofa sameinast um kósý stund
í kjallaranum kl. 21. Allir eru vel-
komnir og það er engin krafa um
að mæta með handavinnu, alla-
vega ekki of flókna, svo hægt sé
að spjalla. Tilboð verða á barnum.
Borgarfjörður
föstudagur 18. nóvember
Hrútauppboð Hreðja verður
haldið í hlöðunni í fjósinu á
Hvanneyri. Á viðburðinum verður
til sölu hlutur í afburðarhrútnum
Hreðjari, hver og einn má kaupa
eins marga hluti í hrútnum og
hann lystir. Sá einstaklingur sem
stendur uppi sem stærsti hluthafi
að uppboði loknu fær veglega
vinninga í boði Hreðjars.
Borgarfjörður
laugardagur 19. nóvember
Sviðaveisla og Hagyrðingakvöld
í félagsheimilinu Brautartungu.
Húsið opnar kl. 20 og borðhald
hefst kl. 20:30. Framreidd verða
heit og köld svið, söltuð og reykt
ásamt jafningi, kartöflu- og rófu-
stöppu. Drykkjarföng sjái hver
um fyrir sig. Kvæðamannafélagið
Snorri í Reykholti mun svo slá
botninn í samkomuna með hag-
yrðingakvöldi undir stjórn Stef-
áns Skafta Steinólfssonar, frá Ytri-
-Fagradal. Miðaverð er 5000 kr,
16 ára aldurstakmark og enginn
posi. Pantanir á Facebook, í síma
868-4361 eða umfdagrenning@
gmail.com fyrir kl 22:00 fimmtu-
daginn 17. nóvember.
Á döfinni
Nýfæddir Vestlendingar
8. nóvember. Stúlka.
Þyngd: 2.992 gr. Lengd: 49 cm.
Foreldrar: Anna Ragnhildur
Skúladóttir og Maixcland De
Armas Ramirez, Reykjavík.
Ljósmóðir: Fanný Berit
Sveinbjörnsdóttir.
12. nóvember. Stúlka.
Þyngd: 4.370 gr. Lengd: 53 cm.
Foreldrar: Dagný Vilhjálmsdóttir
og Sigurður Ólafsson, Borgar-
firði. Ljósmóðir: G. Erna. Valen-
tínusdóttir.
Síðdegis í gær var tekin skóflu-
stunga við Asparskóga 3 á Akra-
nesi þar sem Bjarg íbúðafélag hses.
hyggst byggja 24 íbúðir í þremur
sjálfstæðum húsum á tveimur
hæðum sem mynda eins konar
randbyggð, með garði í miðju sem
verður opinn til suðvesturs. Íbúð-
irnar eru tveggja til fimm herbergja
með sérinngangi frá svalagangi.
Húsið verður byggt með svokall-
aðri box aðferð sem er þannig að
boxeiningar eru smíðaðar inni í
verksmiðju og nánast fullvinnast
að innan, raðast saman á bygginga-
stað og eru síðan klædd að utan á
staðnum.
Fyrstu íbúðir verða afhentar á
fjórða ársfjórðungi 2023 og þær
síðustu á öðrum ársfjórðungi 2024.
Verktaki er Eðalbyggingar og SG
hús á Selfossi og arkitekt er Svava
Jóns arkitektur og ráðgjöf.
Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri segir að þarna sé enn eitt
skrefið stigið í átt að öruggum og
hagfelldum leigumarkaði á Akra-
nesi.
vaks
Íslandsmótið í glímu fór fram
í íþróttahúsinu í Reykjahlíð í
Mývatnssveit 5. nóvember sl.
Vaskur hópur úr Glímufélagi Dala-
manna tók þátt í mótinu og gekk vel
og fóru tveir Íslandsmeistaratitlar
með heim í Dalina að móti loknu.
Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir
varð Íslandsmeistari í opnum flokki
kvenna, þá varð hún í öðru sæti í
flokki -75 kg kvenna. Alexandra
Agla Jónsdóttir varð Íslandsmeist-
ari hjá stúlkum 12-13 ára. Þórarinn
Páll Pálsson varð annar hjá strákum
12-13 ára.
Dagný Sara Viðarsdóttir varð í
þriðja sæti hjá unglingum og Birna
Rún Ingvarsdóttir varð í því fjórða.
Þá lenti Birna einnig í þriðja sæti í
-75kg flokki kvenna.
gbþ
Skóflustunga tekin
við Asparskóga 3
Tölvugerð mynd af sams konar húsi. Ljósm. aðsend
Tveir Íslandsmeistaratitlar
rötuðu heim í Dali
‹
Keppendur úr GFD. Fv. Þórarinn Páll
Pálsson, Alexandra Agla Jónsdóttir,
Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir, Dagný
Sara Viðarsdóttir, Birna Rún Ingvars-
dóttir.
«
Guðbjört Lóa Þorgrímsdóttir Íslands-
meistari í opnum flokki kvenna ásamt
Einari Eyþórssyni úr Mývetningi,
Íslandsmeistara karla í opnum flokki.